Megináherslur:
-
Við erum upplýsandi, áhugaverð og skemmtileg.
-
Við tölum um alla af virðingu.
-
Við veljum af kostgæfni það efni sem við birtum og deilum engu sem...
...vafi leikur á að leyfi sé fyrir.
...er meiðandi.
Markmið:
-
Við ætlum að efla ímynd kennara.
-
Við ætlum að auka umræðu um kennarastarfið.
-
Við ætlum að auka umræðu um menntamál.
-
Við ætlum að gera kennarastarfið sýnilegt.
Almennt:
-
Við eigum góð samskipti á samfélagsmiðlum.
-
Við förum ekki í vörn ef við fáum neikvæðar athugasemdir.
-
Við tölum við alla af virðingu.
-
Við viðurkennum mistök fúslega og leiðréttum hratt og örugglega.
-
Við virðum friðhelgi einkalífsins með því að veita aldrei upplýsingar um einkahagi fólks eða einstök mál sem eru í gangi.
-
Við berum sjálf ábyrgð á því efni sem við deilum á samfélagsmiðlum.
-
Við berum virðingu fyrir öllum og líðum ekki fordóma, níð, einelti eða móðganir.
Munum:
-
Einu sinni á netinu, alltaf á netinu.
-
Allt sem við segjum á samfélagsmiðlum hefur áhrif á hvernig fólk lítur á okkur.
-
Ertu í vafa? Spyrðu!
Reglur þessar eru endurskoðaðar á hverju ári
Sérstök ákvæði fyrir starfsmenn Kennarasambands Íslands
-
Starfsmenn KÍ eru fulltrúar sambandsins hvar og hvernig sem þeir koma fram. Þetta á ekki síst við á samfélagsmiðlum.
-
Við stofunum ekki til deilna á samfélagsmiðlum. Rísi deilur komum við sjónarmiðum Kennarasambandsins á framfæri á einfaldan og skýran hátt.
-
Þeir sem hafa heimild til að setja inn efni á samfélagsmiðla í nafni KÍ eru:
- Formaður KÍ
- Varaformaður KÍ
- Formenn aðildarfélaga
- Starfsfólk upplýsinga- og kynningarsviðs