
Álftanesskóli óskar eftir umsjónarkennara á yngsta stigi frá 1. janúar 2018
Álftanesskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 10. bekk. Í skólanum eru 450 nemendur. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf, vellíðan nemenda og umhverfisvernd undir fjöðrum skólans sem eru: Vinátta – Vísindi - Listir og – allir eru einstakir. Álftanesskóli er Grænfánaskóli og starfar eftir hugmyndafræði og vinnuaðferðum Uppeldis til ábyrgðar- uppbygging sjálfsaga. Nokkur mikilvæg þróunarverkefni eru í vinnslu í skólanum sem styrkt eru af Þróunarsjóði grunnskóla Garðabæjar. Unnið hefur verið að þróun lestrarstefnu skólans og einnig er unnið að þróun fjölbreyttra kennsluhátta t.d. eftir vinnuaðferðum um ,,Vörður og vegvísir“.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hæfniskröfur
Um 80-100% starfshlutfall er að ræða. Umsóknarfrestur er til og með 11. desember 2017.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sveinbjörn Markús Njálsson skólastjóri, markus@alftanesskoli.is og í síma 5404700/8215007 eða Erna I. Pálsdóttir aðstoðarskólastjóri erna.palsdottir@alftanesskoli.is og í síma 540470/8215009.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.