Jafnréttisnefnd

Á stofnþingi Kennarasambands Íslands 1999 og 2. þingi KÍ 2002 var lagt til að komið yrði á fót jafnréttisnefnd á vegum Kennarasambands Íslands. Nefndin hefur starfað frá því í febrúar 2003 og vinnur skv. stefnu KÍ í jafnréttismálum.

Skv. 34. grein laga KÍ skal jafnréttisnefnd skipuð 3 til 5 fulltrúum sem stjórn KÍ skipar. Kjörtímabil jafnréttisnefndar er milli reglulegra þinga.

Hlutverk jafnréttisnefndar er að:

  • Vera stjórn KÍ til ráðuneytis um jafnréttismál og gera tillögur til stjórnar um aðgerðir í jafnréttismálum,
  • endurskoða og þróa jafnréttisstefnu KÍ reglulega,
  • vinna umsagnir um frumvörp og önnur erindi þar sem óskað er eftir áliti KÍ um jafnréttismál, 
  • hafa forgöngu um samstarf við jafnréttisnefndir annarra launþegasamtaka,
  • annast verkefni sem tengjast aðkomu KÍ að alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars,
  • annast tilfallandi verkefni sem stjórn KÍ felur nefndinni og falla að verksviði hennar.

Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá starfsmanni jafnréttisnefndar, Hafdísi Dögg Guðmundsdóttir, netfang hafdis hjá ki.is.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli