A deild

Úthlutunarreglur í gildi frá 1. mars 2011.

Almennir styrkir

  • Almennir styrkir til einstakra félagsmanna til að sækja endurmenntunarnámskeið og ráðstefnur innanlands eða utan. Hámarksstyrkur er kr. 240.000 á kr. á tveggja ára tímabili. Námskeið sem haldið er og skipulagt af launagreiðanda er ekki styrkhæft. Ath. að námskeiðsgögn/bækur er ekki styrkhæft.
     
  • Umsóknareyðublað.

Kynnisferðir hópa utan- og innanlands

  • Kynnisferðir hópa í útlöndum (leikskóla eða stofnunar). Styrkir til félagsmanna sem fara í hópferðir til útlanda, skipulagðar af leikskóla eða viðkomandi stofnun til kynningar á starfsemi leikskóla eða annarra stofnana.
     
    • Umfang dagskrár þarf að vera a.m.k. einn og hálfur dagur og staðfesting móttökuaðila þarf að fylgja umsókn.
       
    • Styrkurinn er kr. 100.000 fyrir ferðir innan Evrópu og kr. 130.000 fyrir ferðir utan Evrópu (miðað við umsóknir sem fóru fyrir fund stjórar Vísindasjóðs FL og FSL 2. febrúar 2011 og seinna).
       
    • Heimilt er að bæta við styrk vegna ferðakostnaðar innanlands ef fjarlægð frá heimabyggð að flugstöð er meira en 100 km. Ferðastyrkur er hluti af 240.000 kr. styrk A hluta.
       
    • Leikskólastjóri eða forstöðumaður stofnunar sækir um fyrir hönd hópsins. Skólastjóri/ábyrgðarmaður skal skila skýrslu í lok ferðar.
       
    • Líða skulu a.m.k. FJÖGUR ÁR frá því styrkur er veittur þar til mögulega er hægt að sækja um aftur. Til að geta sótt um hópstyrk þarf helmingur af starfandi kennurum að fara í ferð á vegum leikskólans.
        
  • Kynnisferðir hópa innanlands (leikskóla eða stofnunar). Styrkir til félagsmanna sem fara í hópferðir innanlands ef áfangastaður er í a.m.k. 100 km eða lengra frá heimabyggð. Styrkurinn er kr. 30.000 fyrir ferð og gistingu. Umfang dagskrár þarf að vera a.m.k. einn dagur og staðfesting móttökuaðila þarf að fylgja umsókn. Líða skulu a.m.k. TVÖ ÁR frá því styrkur er veittur þar til hægt er að sækja um aftur.
     
  • Umsóknareyðublað.

Til athugunar

  • Ferðakostnaður. Sjóðurinn greiðir ferðakostnað fyrir félagsmenn sem búa 100 km eða lengra frá þeim stað sem námskeið/ráðstefna fer fram. Greitt er svokallað Bónusfargjald ef flogið er eða fargjald með áætlunarbíl ef um það er að ræða. Sjóðurinn tekur þátt í gistikostnaði vegna ráðstefna og námskeiða innanlands (8.000 kr. pr. nótt). Ferða- og gistikostnaður er hluti af 240.000 kr. styrk úr A hluta.
     
  • Sjóðsstjórn heldur fundi að jafnaði fyrsta miðvikudag annan hvern mánuð. Sjóðstjórn er samkvæmt reglum sjóðsins heimilt að fella niður fundi í tvo mánuði að sumarlagi. Fundir eru fyrsta miðvikudag í febrúar, apríl, júní, september, október og desember. Umsóknarfrestur rennur út viku fyrir fasta fundardaga.
     
  • Athuga skal að aðeins er hægt að sækja um í einum flokki fyrir hverri ferð, ráðstefnu eða námskeiði.

Eldri reglur




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli