Velferð í vinnunni

Í nóvember 2010 bauð KÍ stjórnendum í leik-, grunn-, tónlistar- og framhaldsskólum til fræðslufunda undir heitinu Velferð í vinnunni. Þar var farið í starfsumhverfi skóla, vinnuvernd og heilsueflingu, veikindarétt, réttindi í Sjúkrasjóði KÍ og starfsemi VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs. Auk þess voru á fundunum kynntar árangursríkar aðferðir til að vinna með fjarvistir starfsmanna.

Haldnir voru ellefu fundir um land allt sem um rúmlega 200 skólastjórnendur sóttu. Góðar umsagnir um fundina bárust KÍ ásamt því að þátttakendur lýstu yfir ánægju sinni með fundina á matsblöðum.

Hér er að finna það efni sem farið var yfir á fundunum ásamt viðeigandi slóðum (ítarefni).

1. Vinnuumhverfi - vinnuvernd - heilsuefling

Fyrirlesari: Hafdís Dögg Guðmundsdóttir, starfsmaður Vinnuumhverfisnefndar KÍ / Sesselja G. Sigurðardóttir, formaður Vinnuumhverfisnefndar KÍ.

2. Veikindaréttur

Fyrirlesari: Ingibjörg Úlfarsdóttir, launafulltrúi KÍ.

3. Réttindi í Sjúkrasjóði KÍ

Fyrirlesari: Kristín Stefánsdóttir, formaður Sjúkrasjóðs KÍ / María Norðdahl, starfsmaður Sjúkrasjóðs KÍ.

4. VIRK - Úr veikindum í vinnu

Fyrirlesari: Margrét Gunnarsdóttir, ráðgjafi KÍ hjá VIRK / aðrir ráðgjafar VIRK.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli