Reglur um félagsaðild í launalausu leyfi o.fl.

Umsókn um félagsaðild í launalausu leyfi skal senda til stjórnar KÍ í tölvupósti á ki hjá ki.is eða með bréfi.

Varðandi félagsaðild í launalausu námsleyfi þá er skilyrði fyrir félagsaðild að einstaklingur sé í formlegu námi sem er staðfest af viðkomandi skóla. Jafnframt þarf að liggja fyrir staðfesting vinnuveitanda um að viðkomandi sé í launalausu leyfi.

Stjórn KÍ afgreiðir umsóknir einu sinni í mánuði á reglulegum stjórnarfundum og fær umsækjandi svar um leið og ákvörðun stjórnar liggur fyrir.

Félagsaðild tekur gildi þegar stjórn KÍ hefur samþykkt umsókn og félagsgjald sem nú er 12.000 kr. eingreiðsla fyrir árið berst. Félagsmaður ber sjálfur ábyrgð á greiðslu félagsgjalds. Félagsaðild fellur niður um leið og félagsgjöld hætta að berast.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli