Samtök opinberra starfsmanna, BHM, KÍ og BSRB, hafa tekið þátt í samráði aðila vinnumarkaðarins um kjarasamningagerð og forsendur hennar í ljósi efnahagsþrenginga í landinu. Myndin af umfangi fjárhagsvandans er fyrst nú að skýrast og er mun dekkri en lá fyrir við upphaf vinnunnar. Samtökin hafa lagt áherslu á að verja störf og kjaraumhverfi félagsmanna. Stöðugleikasáttmáli er mikilvægur grundvöllur uppbyggingar og endurreisnar í landinu jafnframt því að mynda umgjörð fyrir vinnu við gerð kjarasamninga til ársloka 2010. Samtök opinberra starfsmanna telja nauðsynlegt að mynda enn breiðari grundvöll undir áframhaldandi vinnu með stjórnvöldum við uppbyggingu efnahags, atvinnulífs og kjara í landinu og að í þeirri vinnu verði jafnræði allra aðila tryggt.
F.h. BHM, BSRB og KÍ
Guðlaug Kristjánsdóttir, Árni Stefán Jónsson, Eiríkur Jónsson
Hér er pdf af Stöðugleikasáttmálanum en hann var undurritaður 25. júní 2009.
Stability Pact of the Icelandic Federation of Labour (ASÍ), the Confederation of University Graduates (BHM), the Federation of State and Municipal Employees (BSRB), the Icelandic Teachers’ Association (KÍ), the Confederation of Icelandic Bank and Finance Employees (SFF), the Confederation of Icelandic Employers (SÁ), the Government of Iceland and the National Association of Local Authorities. Here is the english version of the Stability pact.