Siðaráð er skv. lögum KÍ ein fastanefnda sambandsins. Um Siðaráð segir þetta í 33. laga KÍ:
Siðaráð 33. gr.
Siðaráð skal skipað 3 til 5 fulltrúum sem stjórn KÍ skipar. Kjörtímabil siðaráðs er milli reglulegra þinga.
Hlutverk siðaráðs er að:
- Auka þekkingu um siðfræði og félagsleg álitamál,
- endurskoða og útfæra siðareglur reglulega og viðhalda umræðum um þær,
- kynna siðareglur og móta sameiginlegan skilning á siðareglum,
- vinna með stjórn og ráðum að því að kynna viðhorf stéttarinnar til faglegra álitamála,
- vera stjórn KÍ til ráðuneytis um álitamál sem varða siðareglur sambandsins,
- annast tilfallandi verkefni sem stjórn KÍ felur ráðinu og falla að verksviði þess.
Sjá fulltrúa Siðaráðs KÍ hér. Starfsmaður Siðaráðs KÍ er Hafdís Dögg Guðmundsdóttir, netfang: hafdis hjá ki.is.