Tímarit um menntarannsóknir er gefið út af Félagi um menntarannsóknir (FUM) og er vettvangur fyrir rannsóknaritgerðir og fræðilega umfjöllun um menntamál, en því er ætlað að höfða til fagfólks og fræðimanna af breiðu sviði, þ.á.m. af sviðum félagsvísinda, hagfræði og sagnfræði. Í lok þessa árs er væntanlegt 5. tölublað Tímarits um menntarannsóknir (TUM).
Frestur til að senda inn greinar til birtingar er til 15. júlí 2008 og skulu þær sendar til ritstjóra, Gretars L. Marinóssonar (gretarlm hjá khi.is). Nánar hér: http://www.fum.is/timarit/TUM-auglysing08.htm.