Frétt

18. apr. 2008

Dansað fyrir barnahjálp

Danssmiðja Íslenska dansflokksins er að þessu sinni í samvinnu við Peter Anderson og ABC barnahjálp. Sýnd verða tvö ný dansverk til styrktar ABC barnahjálp. Miðaverðið, 1.500,- krónur, rennur óskert til að kosta skólagöngu barns í Pakistan ásamt skólamáltíðum í heilan mánuð. „Í eina sæng“ eru tvö ný dansverk sýnd til styrktar ABC barnahjálp

Verkin sem verða sýnd að þessu sinni eru Tímarúm og Special Treatment.

Tímarúm, Danssmiðjuverk eftir Guðmund Helgason, er abstrakct verk þar sem unnið er með rými og tíma. Í verkinu eru 3 dansarar fæddir hver á sínum áratugnum sem tákna fortíð, nútíð og framtíð. Tónlistin er einnig hver frá sinni öldinni (18., 19., og 20. öldinni) en það er píanó í þeim öllum sem tengir þau saman.

Special Treatment, nýtt verk eftir Peter Anderson, er unnið í samvinnu við dansarana og er byggt á þeirri hugmynd að í samfélaginu eru fáir útvaldir sem fá betri meðferð en við hin. Tónlistin er eftir íslensku hljómsveitina Beicon.

Sýningar eru föstudaginn 18. og laugardaginn 19. apríl að Sætúni 8 (gamla Heimilistækja húsið) og hefjast kl. 20.00.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli