Frétt

19. feb. 2007

Skólastjórar hafa áhyggjur af skólahaldi náist ekki samkomulag

Skólastjórafélag Reykjavíkur hefur sent frá sér ályktun þar sem harmað er að samninganefndir LN og KÍ (FG/SÍ) hafa ekki náð samkomulagi um framkvæmd endurskoðunarákvæðis greinar 16.1. í kjarasamningi aðila frá 17.11.2004. Félagið lýsir yfir áhyggjum sínum komist aðilar ekki að sameiginlegri niðurstöðu varðandi endurskoðunina, en fátt bendir til þess í dag að sátt sé innan seilingar.

Áhyggjur skólastjórnenda í Reykjavík beinast fyrst og fremst að því hvaða áhrif deilan hefur á allt skólahald og gerir það erfiðara bæði varðandi starfsmenn og nemendur. Ályktunin í heild.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli