Frétt

5. feb. 2008

Eru samkeppni og val í opinberri þjónustu leið til að auka gæði og hagkvæmni? - (From Target to Market: How to Deliver High Quality Public Services?)

Síðdegismálþing Stofnunar stjórnsýslufræða og Félags forstöðumanna ríkisstofnana verður haldið þann 11. febrúar nk. kl. 15.05-17.00 í Háskólatorgsbyggingu H.Í., neðstu hæð stofa HT-102.

Málþingið fjallar um nýjar leiðir í opinberri þjónustu; leiðir sem byggja á vali notenda og samkeppni milli þeirra sem veita þjónustuna. Málþingið verður tvískipt, fyrri hlutinn fjallar um almenn atriði, en sá síðari um heilbrigðisþjónustu. 

Verð er kr. 3.000.- en 1500.- fyrir nemendur H.Í.) og nauðsynlegt að skrá þátttöku hér: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is/page/samkeppniogval.

Fyrirlesari verður Julian Le Grand prófessor við London School of Economics, en hann er einn fremsti fræðimaður Breta á sviði heilbrigðis- og velferðarmála, og höfundur fjölda bóka, m.a. The Other Invisible Hand: Delivering Public Services through Choice and Competition, 2007. Auk fjölda trúnaðarstarfa fyrir bresku ríkisstjórnina er prófessor Le Grand einn helsti höfundur þeirra umbóta ríkisstjórnar Tony Blairs sem lúta að nútímavæðingu í opinberri þjónustu og var hann m.a. ráðgjafi forsætisráðherra við innleiðingu stefnu bresku stjórnarinnar um aukið valfrelsi notenda og samkeppni innan opinberrar þjónustu: http://www.julian.legrand.me.uk/.

Við erindi prófessors Le Grand munu í lokin bregðast þau Rúnar Vilhjálmsson prófessor í heilsufélagsfræði og dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýsluráðgjafi í heilbrigðisráðuneytinu, en hún skrifaði doktorsritgerð sína hjá prófessor Le Grand. Stjórnandi verður Arnar Þór Másson aðjúnkt í stjórnsýslufræðum við H.Í. og sérfræðingur fjármálaráðuneytisins í stjórnsýsluumbótum.

Val og samkeppni í opinberri þjónustu, 15.05-16.00

Ríki og sveitarfélög veita háum og vaxandi upphæðum til menntunar, heilbrigðis og félagsþjónustu. Þrátt fyrir vaxandi framlög eru ávallt skiptar skoðanir um hversu vel takist til um gæði þjónustunnar og má m.a. vísa þar til nýlegra umræðna hér um gæði og árangur grunnskóla í kjölfar úttekta Ríkisendurskoðunar og alþjóðlegra mælinga á frammistöðu nemenda.

En hvaða aðferðir eða leiðir í opinberri stjórnun geta eða hafa aukið gæði þjónustunnar? Le Grand mun freista þess að svara þessari grundvallarspurningu. Hann mun byggja á rannsóknum, en ekki síður reynslu sinni sem einn helsti ráðgjafi í umbótastarfi breskra stjórnvalda á undanförnum árum. Hann mun fara yfir mismunandi módel við að veita og meta opinbera þjónustu; árangursmarkmið og –stjórnun, samráð og áhrif notenda (voice) og ígildi (quasi) markaða með auknu vali notenda og samkeppni milli þeirra sem þjónustuna veita.

Val notenda og samkeppni veitenda í heilbrigðisþjónustu , 16.05-17.00 með umræðum

Í mörgum löndum eru stjórnvöld að prófa sig áfram á þeirri leið að auka val sjúklinga og samkeppni innan heilbrigðiskerfis sem bæði er fjármagnað og að hluta til rekið af hinu opinbera. Le Grand mun í fyrirlestri sínum byggja á reynslu bæði Breta og annarra þjóða og fjalla um þær fræðikenningar sem liggja að baki þessum áformum og öðrum meiri háttar umbreytingum á sviði heilbrigðisþjónustu. Þ.á.m. eru þær að setja upp s.n. “kaupenda-seljendakerfi”, fela forgangsröðun óháðum aðila, sem meti hagkvæmni og árangur lyfja og læknismeðferða, s.s. NICE stofnunin í Bretlandi, og loks aukna áherslu margra þjóða á að auka hlut einkaaðila í rekstri heilbrigðisþjónustunnar.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli