Frétt

7. jan. 2008

Kosningar til stjórnar Félags leikskólakennara 17. til 22. janúar 2008

Kjörstjórn Félags leikskólakennara hefur ákveðið, að kosning vegna stjórnar FL fari fram með rafrænum hætti og hefjist fimmtudaginn 17. janúar kl. 9:00 og ljúki þriðjudaginn 22. janúar kl. 22:00.

Kosningarétt hafa allir félagsmenn í Félagi leikskólakennara. Bréf með upplýsingum um tilhögun atkvæðagreiðslunnar verður sent frá kjörstjórn til allra félagsmanna á næstu dögum.

Að gefnu tilefni skal taka fram að í þessum kosningum er eingöngu verið að kjósa stjórn félagsins. Í önnur trúnaðarstörf fyrir félagið er kosið á aðalfundi FL sem haldinn verður 13. og 14. mars n.k.

Aðeins eitt framboð barst í embætti formanns frá Björgu Bjarnadóttur núverandi formanni og er hún því sjálfkjörin. Tveir bjóða sig fram í embætti varaformanns þær Ingibjörg Kristleifsdóttir og Marta Dögg Sigurðardóttir, en Þröstur Brynjarsson núverandi varaformaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Aðrir í framboði til stjórnar eru: Arnar Yngvason, Björk Óttarsdóttir, Hrafnhildur Karlsdóttir, Inga Líndal Finnbogadóttir, Jóna Rósa Stefánsdóttir og Margrét Rúnarsdóttir. Á heimsíðu FL er hægt að nálgast upplýsingar um frambjóðendur, sjá hér.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli