Verkefna- og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands auglýsir eftir umsóknum félagsmanna í grunnskólum um námslaun vegna framhaldsnáms á skólaárinu 2008-2009.
Væntanlegir styrkþegar fá greidd laun á námsleyfistíma í allt að tólf mánuði eftir lengd náms. Umsóknir sendist til Verkefna- og námsstyrkjasjóðs FG og SÍ, Laufásvegi 81, 101 Reykjavík. Umsóknarfrestur rennur út 1. október 2007. Eyðublöð fást á skrifstofu sjóðsins, í netfangi: asta hjá ki.is og á heimasíðu Kennarasambandsins www.ki.is
Nánari upplýsingar veitir starfsmaður sjóðsins á skrifstofu Kennarasambandsins.