Föstudaginn 16. mars 2012 kl. 13 til 17 verður haldin ráðstefna 3f félags um upplýsingatækni og menntun og Háskólans í Reykjavík. Ráðstefnan hefur fengið yfirheitið Margt smátt gerir eitt stórt - Upplýsingatækni og nýjungar. Meginþema ráðstefnunnar verður upplýsingatækni í skólastarfi. Fjallað verður sérstaklega um þær breytingar sem eru að verða í skólastofunni með tilkomu smærri tækja og tóla. Spáð er í framtíðina, munu verða miklar breytingar á kennsluháttum í nánustu framtíð, hver verða áhrifin á námsgagnagerð.
Ráðstefnan er samvinnuverkefni 3f og Háskólans í Reykjavík.
Áhugasömum fræðimönnum, kennurum, námsefnishöfundum, útgefendum og öðrum sem hafa þekkingu og reynslu á þessu sviði er boðið að senda inn 200 orða ágrip fyrir 1. mars 2012.
Allar nánari upplýsingar á vefsíðu ráðstefnunnar http://3f.is/radstefna/.