Í frétt frá Hagstofu Íslands kemur fram að heildarfjöldi nemenda á öllum skólastigum hefur aukist um 18,7% frá 1997 og er á yfirstandandi skólaári rúmlega 102 þúsund. Á tímabilinu hefur konum fjölgað mun meira og eru þær núna 62,3% nemenda á háskólastigi og 53,2% nemenda á framhaldsskólastigi.
Athygli vekur að skólasókn 16 ára nemenda hefur minnkað um 1% eftir að hafa hækkað að jafnaði um 1 prósentustig á ári frá 1999.
Tölur þessar eru miðaðar við fjölda nemenda um miðjan október 2006.
Sjá nánar á vef Hagstofunnar.