Frétt

30. mar. 2011

Áunnin lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra staðfestir í bréfi til Kennarasambands Íslands að af hans hálfu hafi aldrei verið gert ráð fyrir því að áunnin lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna verði sérstaklega skert, eða þeim breytt á einhvern hátt án þess að um slíkar breytingar sé viðhaft fullt samráð við heildarsamtökin.

Bréf fjármálaráðherra í heild:

Á fundi forsætis- og fjármálaráðherra með forsvarsmönnum heildarsamtaka opinberra starfsmanna, þann 18. 03. 2011, var lögð fram sameiginleg ályktun þeirra varðandi lífeyrismál. Í ályktuninni er harðlega mótmælt innihaldi Minnisblaðs ASÍ/SA, dags. 25. febrúar 2011, um stöðu lífeyrismála. Jafnframt er krafist „...fullvissu frá ríkisstjórninni um að hún muni ekki standa fyrir skerðingu á núverandi réttindum“.

Það er fjármálaráðherra bæði ljúft og skylt að árétta að af hans hálfu hefur aldrei verið gert ráð fyrir því að áunnin lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna verði sérstaklega skert, eða þeim breytt á einhvern hátt án þess að um slíkar breytingar sé viðhaft fullt samráð við heildarsamtökin. Fjármálaráðherra er fullkomlega meðvitaður um tilurð og sérstöðu lífeyriskerfis opinberra starfsmanna og hefur m.a. af þeim sökum sett á fót sérstakan starfshóp, skipaðan fulltrúum ríkis og heildarsamtaka opinberra starfsmanna, til að fjalla sérstaklega um stöðu A- og B- deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.

Steingrímur J. Sigfússon.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli