Frétt

30. mar. 2011

Norma 11 í Reykjavík 11. til 14. maí 2011

Norma 11 er ráðstefna um rannsóknir á stærðfræðimenntun og verður hún haldin í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð, 11. til 14. maí 2011. Ráðstefnan er haldin af samtökum norræna og baltneskra félaga um rannsóknir á þessu sviði. Á ráðstefnunni verða flutt um 100 erindi af þátttakendum frá Norðurlöndunum, baltnesku löndunum, Bretlandi, Spáni, Portúgal og Þýskalandi. Tækifæri verða gefin til að ræða rannsóknir og byggja upp tengslanet rannsakenda á fræðasviðinu. Ráðstefnan fer fram á ensku.

Ráðstefnugjald er 40.000 íslenskar krónur. Einnig er hægt að taka þátt einn dag og er þá gjaldið 6.000 krónur. Upplýsingar um skráningarferli er að finna á heimasíður ráðstefnunnar: http://vefsetur.hi.is/norma11/.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli