Í ályktun sem Kennarasambandið sendi frá sér í dag eru sveitarstjórnarmenn hvattir til að sýna sanngirni og ganga þegar í stað til samninga við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. „Það er ólíðandi að grunnlaun starfsmanna sveitarfélaga sem lægst hafa launin skuli ekki hækka í það minnsta til jafns við það sem gerst hefur almennt meðal launafólks á Íslandi að undanförnu“, segir meðal annars í ályktuninni.
Ályktunin í heild:
Stjórn Kennarasambands Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fyrir bættum launakjörum. Stjórnin hvetur Launanefnd sveitarfélaga til að hverfa frá þeirri stefnu sinni að fjötra starfsmenn sveitarfélaga í spennitreyju lágra launa. Það er ólíðandi að grunnlaun starfsmanna sveitarfélaga sem lægst hafa launin skuli ekki hækka í það minnsta til jafns við það sem gerst hefur almennt meðal launafólks á Íslandi að undanförnu.
Stjórn KÍ hvetur sveitarstjórnarmenn til að sýna sanngirni og ganga þegar í stað til samninga við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Komi til frekari verkfallsaðgerða af hálfu LSS krefst stjórn KÍ þess að vinnuveitendur virði löglega boðaða vinnustöðvun Landssambandsins og hvetur jafnframt félagsmenn annarra stéttarfélaga til að sýna samstöðu með slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum og tryggja að engin verkfallsbrot verði framin.
Samþykkt 13. ágúst 2010