Frétt

2. des. 2009

FG ályktar gegn niðurskurði

Stjórn Félags grunnskólakennara ályktaði rétt í þessu gegn frekari niðurskurði og áformum um slíkt í grunnskólum landsins. Bent er á að niðurskurður sé nú þegar orðinn verulegur og þrátt fyrir að mörg sveitarfélög nýti ekki útsvarsheimildir sínar að fullu krefjist þau engu að síður enn frekari niðurskurðar á kennslu og menntun grunnskólabarna.

Ályktun 2. desember 2009
Stjórn Félags grunnskólakennara ítrekar þá staðreynd að þegar hefur verið skorið verulega niður í skólakerfinu. Tæplega 80% sveitarfélaga hafa dregið úr yfirvinnu, forfallakennslu og búnaðarkaupum auk þess sem kennslustundum hefur verið fækkað, fjölgað í námshópum og dregið úr vettvangsferðum nemenda svo eitthvað sé nefnt.

Jafnframt lýsir stjórnin yfir undrun sinni á því að á sama tíma og sveitarfélög krefjast enn frekari niðurskurðar á kennslu og menntun grunnskólabarna skuli mörg þeirra ekki nýta útsvarsheimildir sínar að fullu.
Stjórn Félags grunnskólakennara skorar á sveitarstjórnarmenn að taka eindregna afstöðu með menntun og standa við fyrri yfirlýsingar um að verja menntakerfið, sem sannarlega er hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga, og láta hér staðar numið í niðurskurðaráformum.

Stjórn Félags grunnskólakennara. 


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli