Frétt

16. nóv. 2009

Menntun í fyrsta sæti á þjóðfundi

Menntamál voru í fyrsta sæti af þeim níu meginþemum sem þjóðfundurinn 2009 valdi á laugardaginn til að vísa veginn til framtíðar. Átján þemasetningar um framtíðarsýn í menntamálum voru settar fram á fundinum, afrakstur samræðu 144 þjóðfundarfulltrúa sem aftur hvíldi á fyrri samræðu allt að 1500 fulltrúa.

Þemasetningarnar átján:

  1. Við viljum metnaðarfulla menntastefnu sem byggir á jafnrétti til náms óháð efnahag. Jafnframt þarf aukna áherslu á einstaklingsmiðað nám, verknám og góð tengsl skólastarfsins við íþróttahreyfinguna.
     
  2. Að stjórnsýsla grunn-, framhalds- og háskóla auki áherslu á nýsköpun og verkmenntun. Leggja áherslu á gjaldfrjálsar skólamáltíðir, skólabúninga og útrýmingu eineltis.
     
  3. Byggjum sjálfstætt og gagnrýnið þekkingingarþjóðfélag, þar sem allir hafa jafnan rétt til fjölbreytts, skapandi, bóklegs og verklegs náms alla ævi.
     
  4. Við viljum menntun fyrir alla óháð efnahag, öflugt menntakerfi með öflugri stoðþjónustu, þar sem siðfræði er rauður þráður gegnum allt kerfið.
     
  5. Menntun mótist af lýðræðislegri skapandi og gagnrýnni hugsun og varðveislu menningararfleifðar, jafnhliða því að efla rannsóknir og vísindi.
     
  6. Menntakerfi sem byggir á jafnrétti, fjölbreytni og nýsköpun, sem styrkir einstaklinginn með krafti og frumkvæði svo hæfileikar allra njóti sín.
     
  7. Allir hafi jafnan rétt til góðrar menntunar með tilliti til hæfni einstaklingsins. Ríkulegt menningarsamfélag með verndun íslenskrar tungu að leiðarljósi.
     
  8. Öllum skal tryggt jafnrétti til náms við hæfi. þar sem eineltisofbeldi er útrýmt. Sérstök áhersla á fjármálalæsi, gagnrýna hugsun og siðfræði.
     
  9. Allir hafi jafnan rétt til góðrar menntunar með áherslu á tengingu við atvinnulífið og umhverfismennt og aukinni fræðslu um gangverk þjóðfélagsins.
     
  10. Við búum í þekkingarsamfélagi þar sem nýsköpun ríkir og allir hafa aðgang að námi, einstaklingurinn fær að njóta sín og áhersla lögð á sköpunargleði.
     
  11. Framúrskarandi menntakerfi með jafnrétti til náms og tilliti til ólíkra sérþarfa, áherslu á fjölbreytt námsefni m.a. siðfræði og forvarnir gegn tölvufíkn, árangursmat kennara tekið upp.
     
  12. Ókeypis, vel skipulagt menntakerfi sem byggir á jafnræði og virðingu, þar sem áhersla er lögð á fjölbreytni og sköpun.
     
  13. Sjálfstæð, vel menntuð og siðmenntuð þjóð, sem veitir öllum jöfn tækifæri til menntunar og styður verkmenntun.
     
  14. Börnin eru framtíð þjóðarinnar. Aukum gæði og valkosti menntunar, menningar og lista. Allir hafa sama rétt til náms, óháð fjárhag. Aukum markvissar forvarnir.
     
  15. Ísland er alþjóðlega samkeppnishæft þekkingarsamfélag þar sem menntun er í forgangi og allir hafa tryggan aðgang að fjölbreyttu einstaklingsmiðuðu námi s.s. iðnmenntun og rannsóknatengdu háskólanámi. Byggðu á beinu lýðræði.
     
  16. Á Íslandi ríki jafnrétti til náms, virðing verkmenntunar aukin, skapandi hugsun efld og gæði menntunar tryggð.
     
  17. Tryggja jafnt aðgengi að góðu og öflugu menntakerfi þar sem áhersla er lögð á félagslega færni ásamt fjölbreyttum námstækifærum fyrir hvern einstakling.
     
  18. Þekkingarsamfélag með gott menntakerfi sem býður upp á jöfn tækifæri til menntunar.

Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli