Síðustu daga hafa verið haldnir nokkrir fundir í vinnuhópum vegna gerðar svokallaðs stöðugleikasáttmála og í gær var kynnt frumvarp til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Fátt í því frumvarpi kemur í sjálfu sér á óvart þar sem flestir þættir þess höfðu verið ræddir á vettvangi samningsaðila áður en þeir voru kynntir í frumvarpinu.
Engin fundarhöld eru fyrirhuguð um helgina en ráðgert að taka málin upp að nýju eftir helgi. Engar raunverulegar viðræður hafa átt sér stað um gerð nýrra kjarasamninga vegna félaga innan KÍ og ólíklegt verður að teljast að launahækkanir séu í farvatninu. Fulltrúar KÍ í viðræðum undanfarinna vikna hafa lagt megináherslu á að verja grunnstoðir velferðarkerfisins eins og t.d. skólakerfið. Þá hefur áherslan beinst að því að verja störf félagsmanna og núverandi kjör frekar en að vera með háværar kröfur um almennar launahækkanir. Framundan eru erfiðar aðgerðir stjórnvalda sem munu bitna með einum eða öðrum hætti á öllum. Segja má að mikilvægasta verkefnið í dag sé því að milda þær aðgerðir eftir föngum og reyna að tryggja að aðgerðirnar komi sem jafnast niður á þeim sem enn hafa úr einhverju að spila.
Það þjónar ekki tilgangi að skerða kjör fólks ef sú aðgerð leiðir til þess að fjölga þeim sem ekki geta staðið í skilum. Með því væri einungis verið að auka á vanda heimila og lánastofnanna án þess að leysa nokkurn annan vanda á móti. Það er því mikilvægt að fara varlega með öll inngrip í kjör lágtekju og millitekjuhópa en í þeim hópi eru félagsmenn Kennarasambands Íslands upp til hópa.
Ekki kemur til álita að Kennarasamband Íslands muni gera kjarasamning sem felur í sér lækkun kjarasamningsbundinna taxtalauna.