Frétt

19. mar. 2009

Ársþing Samtaka fámennra skóla 9. maí

Ársþing Samtaka fámennra skóla

Menntun á tímum uppgjörs og endurnýjunar:
Samtök fámennra skóla 20 ára

Ársþing Samtaka fámennra skóla 2009 verður haldið í Stórutjarnaskóla í Þingeyjarsveit laugardaginn 9. maí nk og hefst kl 13:30. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er: Menntun á tímum uppgjörs og endurnýjunar: Samtök fámennra skóla 20 ára. Á þinginu verður 20 ára afmælis samtakanna minnst en síðan verða fluttir eftirfarandi fyrirlestrar með tilheyrandi umræðum:

  • Það þarf þorp til að mennta barn – og barn til að mennta þorp: Rúnar Sigþórsson dósent við Háskólann á Akureyri
     
  • Hvað finnst mér eða hvað finnst ykkur að mér eigi að finnast? Um sjálfstæða hugsun og búsetu: Ævar Kjartansson útvarpsmaður
     
  • Byggðir og bú. Um stoðkerfi menntunar í dreifbýli: Óli Halldórsson forstöðumaður Þekkingarseturs Þingeyinga

Aðalfundur Samtaka fámennra skóla verður haldinn síðar um daginn. Þar verður m.a. lögð fyrir tillaga stjórnar um að samtökin verði lögð niður. Því er mikilvægt að sem flestir, sem láta sig varða málefni fámennta skóla mæti á fundinn. Í lögum félagsins segir m.a.:

2. grein

Hlutverk samtakanna er að efla samstarf og samskipti fámennra skóla, stuðla að bættu og fjölbreyttara skólastarfi og standa vörð um hagsmuni skólanna.

3. grein

Félagar geta orðið kennarar, leiðbeinendur og skólastjórar í fámennum skólum á öllum skólastigum. Einnig allir þeir sem áhuga hafa á fræðslumálum og vilja leggja félaginu lið.

Skráningarfrestur er til 6. maí nk. og skulu skráningar berast á netfangið oliarn@storutjarnaskoli.is. Skráningargjald er kr. 2.000,- (síðdegiskaffi innifalið). Þeir sem ætla að taka þátt í hátíðarkvöldverði og árshátíð SFS (kr. 3000,-) taki það fram sérstaklega. Eins þarf að taka fram hvort fólk ætlar að gista á staðnum, en boðið er upp á fjölbreytta möguleika á gistingu, allt frá svefnpokaplássi upp í tveggja manna herbergi með baði.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli