Frétt

17. mar. 2009

Ársfundir 12. og 13. mars voru vel sóttir og innihaldsríkir

Þann 12. og 13. mars sl. voru haldnir ársfundir Kennarasambandsins, skólamálaráðs og aðildarfélaga leik-, grunn- og framhaldsskólakennara. Auk hefðbundinna ársfundastarfa voru góðir gestir víða að úr samfélaginu fengnir til að flytja erindi um framkvæmd nýrra menntalaga, kjaramál, lífeyrismál, horfur í skólamálum næstu ár, hinn nýlega starfsendurhæfingarsjóð sem KÍ á aðild að og margt fleira. Glærur og fleira efni frá fundunum verður sett inn á vefinn fljótlega og auk þess verður fjallað um fundina, sem og ársfund Félags tónlistarskólakennara 14. febrúar sl., í næstu tveimur tölublöðum Skólavörðunnar.  
Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli