Frétt

16. mar. 2009

Útilegukort, veiðikort og afsláttarávísanir í flugferðir

 
Ágæti félagsmaður

Orlofssjóður hefur gert samninga um sölu afsláttarávísana við þrjá aðila til viðbótar þeim sem auglýst voru í nýútkomnu Ferðablaði sjóðsins.

Þetta eru:

  1. Afsláttur á Útilegukorti sumarið 2009.
  2. Afsláttur á Veiðikorti sumarið 2009.
  3. Einnig er lokið samningum vegna sölu afsláttarávísana á gjafabréfum í flugferðir með Iceland Express.

Sala á Útilegukortinu, Veiðikortinu og afsláttarávísunum á leigu hjólhýsa fer fram á bókunarvef Orlofssjóðs KÍ https://secure.ki.is/orlofsvefur/ undir krækjunni „Afsláttarávísun“.

Útilegukortið

Orlofssjóður hóf sölu á Útilegukortinu lau. 14. mars, kl. 12:00 á hádegi. Útilegukortið er niðurgreitt af Orlofssjóði og kostar kr. 8.000,- til félagsmanna KÍ. Fullt verð er kr. 11.900,-. Kortið verður sent til félagsmanna í pósti í lok marsmánuðar.

Útilegukortið gildir á fjölda tjaldsvæða víðs vegar um landið og veitir eiganda þess, maka og fjórum börnum undir 16 ára aldri fría gistingu á tjaldsvæðum samstarfsaðila Útilegukortsins. Ef ætlunin er að fara útilegu í sumar og gista meira en eina helgi þá ættir þú að skoða kosti Útilegukortsins. Það á eflaust eftir að borga sig!

Útilegukortið er í gildi eins lengi og tjaldsvæðin eru opin. Nánari upplýsingar: http://www.utilegukortid.is. Engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði, en einungis má gista í fjórar nætur samfellt í hvert skipti.

Veiðikortið

Orlofssjóður hóf sölu á Veiðikortinu lau. 14. mars, kl. 12:00 á hádegi. Veiðikortið er niðurgreitt af Orlofssjóði og kostar það kr. 3.500,- til félagsmanna KÍ. Fullt verð er kr. 6.000,-. Kortið verður sent til félagsmanna í pósti innan viku frá kaupum.

Veiðikortið er hagkvæmur valkostur sem hentar jafnt veiðimönnum sem fjölskyldufólki. Með Veiðikortið í vasanum er hægt að veiða ótakmarkað í rúmlega 30 veiðivötnum víðsvegar á landinu. Einnig er hægt að tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra.

Með kortinu fylgir veglegur bæklingur þar sem vötnin eru ítarlega kynnt til að auðvelda aðgengið að þeim og kynna fyrir korthöfum þær reglur sem gilda við hvert vatnasvæði. Einnig eru kort og myndir frá vatnasvæðunum. Hægt er að skoða bæklinginn í vefútgáfu á heimasíðu Veiðikortsins, www.veidikortid.is, en þar má einnig lesa fréttir, fara á spjallið og lesa reglur og upplýsingar um vatnasvæðin.

Gjafabréf með Iceland Express

Orlofssjóður KÍ hóf sölu afsláttarávísana á gjafabréfum í flugferðir með Iceland Express, lau. 14. mars kl. 12:00 á hádegi. Verð á afsláttarávísun er kr. 14.000,- en verðmæti hennar er kr. 20.000,-. Afsláttarvísunin gildir í 2 ár eða til 14. mars 2011.

  • Afsláttarávísanirnar eru keyptar á bókunarvef KÍ undir krækjunni „Afsláttarávísun“ https://secure.ki.is/orlofsvefur/.
     
  • Ferð er síðan bókuð á söluvef Iceland Express, þar sem bókunarnúmer, sem fram kemur á afsláttarávísuninni, er sett inn í viðeigandi reit í bókunarferlinu og myndast þá afsláttur af heildarverðinu.

Hver félagsmaður getur keypt 2 afsláttarávísanir. Handhafi afsláttarávísunar greiðir allan umfram kostnað af ferðinni. Afsláttarávísanir á Gjafabréfi með Iceland Express eru ekki endurgreiddar af Orlofssjóði KÍ. Athugið að takmarkað magn afsláttarávísana er í boði.

Stjórn Orlofssjóðs KÍ.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli