Föstudaginn 20. febrúar stendur Rannsóknastofa í vinnuvernd fyrir hádegisfyrirlestri í Odda, Háskóla Íslands, stofu 201 á milli 12 og 13. Fyrirlesari er Guðmundur Ingi Kjerúlf, verkefnisstjóri hjá fræðsludeild Vinnueftirlitsins.
Fjallað verður stuttlega um vinnuverndarstarf, vinnuverndarlög og reglur. Hvað er einelti og kynferðisleg áreitni? Hvað geta vinnustaðir gert til að fyrirbyggja einelti og hvernig koma má koma í veg fyrir að slík mál endurtaki sig. Guðmundur mun einnig kynna stefnu og viðbragðsáætlun vegna eineltis á vinnustað.
Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.