Félag náms- og starfsráðgjafa hefur sent frá sér ályktun þar sem félagsmenn lýsa yfir áhyggjum af stöðu efnahags- og atvinnumála. Brýnt sé að efla faglega ráðgjöf og styðja börn og ungmenni í náms- og starfsvali og einnig sé það sjálfsagt réttindamál að allir sem missa atvinnuna eigi aðgang að slíkri ráðgjöf. Félagsmenn FNS hafa að undanförnu fundið fyrir aukinni aðsókn í þá tegund ráðgjafar sem þeir veita og skora á stjórnvöld að gera allt sem þau geta til að tryggja góðan aðbúnað barna og ungmenna og grípa til enn frekari aðgerða til að koma í veg fyrir vaxandi atvinnuleysi.
Ályktunin í heild:
Ályktun frá Félagi náms- og starfsráðgjafa (FNS)
Á almennum félagsfundi FNS þann 5. febrúar var eftirfarandi ályktun samþykkt:
Félagsmenn FNS lýsa yfir áhyggjum af stöðu efnahags- og atvinnumála.
Félagsmenn FNS hafa að undanförnu fundið fyrir aukinni aðsókn í ráðgjöf. Náms- og starfsráðgjafar búa yfir sérþekkingu sem gerir þeim kleift að aðstoða einstaklinga við að takast á við breytingar á starfshögum eða atvinnumissi. Þeir standa einnig vörð um velferð ungs fólks í skólum og undirbúa nemendur undir næstu skref í námi og starfi, t.d. með skipulegri náms- og starfsfræðslu.
Félagsmenn FNS beina því til stjórnvalda að gera allt sem þau geta til að tryggja góðan aðbúnað barna og ungmenna, að niðurskurður útgjalda hjá ríki og sveitarfélögum bitni sem minnst á þeim og að fagleg náms- og starfsráðgjöf við þau verði efld.
Félagsmenn FNS skora á stjórnvöld að grípa til enn frekari aðgerða, til að koma í veg fyrir vaxandi atvinnuleysi. Atvinnumissir er gríðarlegt áfall fyrir einstaklinga, heimili og samfélagið í heild. Það er sjálfsagt réttindamál að allir sem fyrir því verða eigi aðgang að faglegri náms- og starfsráðgjöf.
Við þær aðstæður sem nú ríkja í íslensku samfélagi er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að styrkja faglega náms- og starfsráðgjöf og eru ríki og sveitarfélög því hvött til þess að marka skýra stefnu í málaflokknum.