Frétt

31. okt. 2008

Ráðstefna um tal- og málmein verður haldin 8. nóvember nk.

Félag talkennara og talmeinafræðinga, Íslenska málfræðifélagið, Málvísindastofnun Háskóla Íslands og Heyrnar- og talmeinastöð Íslands gangast fyrir ráðstefnu um tal- og málmein laugardaginn 8. nóvember næstkomandi í stofu HT-101 (hringstofu) Háskólatorgi Háskóla Íslands.

Fjallað verður um rannsóknir á málþroska táknmáls og raddmáls, stöðu íslenska táknmálsins sem móðurmáls, máltöku heyrnarskertra barna, framburð barna, greiningu á stami, þátt máltöku í málbreytingum, um málþroska fyrirbura, tengsl málfræðivillna og málþroskaröskunar, viðbrögð við alvarlegri málþroskaröskun ungra barna og um málörvun við upphaf skólagöngu.

Dagskrá með efniságripi verður birt á www.imf.hi.is/ og www.hti.is.

Allir velkomnir!


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli