Hér er safnað saman efni sem tengist afleiðingum efnhagsþrenginga á skólastarf og/eða er gagnlegt fyrir félagsmenn KÍ á krepputímum, svo sem upplýsingum um vinnuvernd, lífeyrismál, ákvörðunum stjórnvalda sem snerta skólamál, tilkynningum um fundi og fleira. Hérna eru einnig fréttir sem varða samningamál félagsmanna. Ábendingar um efni sem á heima undir þessum lið eru vel þegnar og sendist á netfangið kristin hjá ki.is.
FRÉTTIR - KENNARINN OG KREPPAN FRÉTTIR - SAMNINGAFRÉTTIR
19. jún. 2009
Síðustu daga hafa verið haldnir nokkrir fundir í vinnuhópum vegna gerðar svokallaðs stöðugleikasáttmála og í gær var kynnt frumvarp til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Fátt í því frumvarpi kemur í sjálfu sér á óvart þar sem flestir þættir þess höfðu verið ræddir á vettvangi samningsaðila áður en þeir voru kynntir í frumvarpinu.
Lesa frétt
9. jún. 2009
Nokkuð hefur verið um fundarhöld í Karphúsinu og eins hefur verið fundað með ráðherrum ríkisstjórnarinnar og embættismönnum síðustu daga. Vinnuhópur um ríkisfjármál og velferðarmál hefur fundað nokkrum sinnum og eins hefur hópur um efnahags- og atvinnumál haldið nokkra fundi. Lítið hefur verið um fundarhöld í þeim hópi sem fjallar um launaþáttinn og ljóst að á þeim stað eru sjónamið aðila nokkuð ólík. Þá hafa verið haldnir fundir í sameiginlegum hópi allra vinnuhópanna.
Lesa frétt29. maí 2009
Núna er fundað í Karphúsinu en fátt fréttnæmt. Hins vegar hefur verið boðaður fundur næsta þriðjudag þar sem hittast stjórn Kennarasambandsins, stjórnir aðildarfélaga KÍ og samninganefndir þeirra. Þrennt verður tekið fyrir á fundinum: 1. Farið yfir helstu atriði sem rætt er um í Karphúsinu og með ráðherrum ríkisstjórnar. 2. Nokkrar tölfræðilegar upplýsingar. 3. Umræður og, eftir atvikum, ákvarðanir um næstu skref.
Lesa frétt25. maí 2009
Í frétt á Vísi.is í dag kemur fram að menntamálaráðherra hyggist ekki fara gegn vilja kennara, en Kennarasambandið hefur lagst gegn hugmyndum Sambands íslenskra sveitarfélaga um fækkun skóladaga í grunnskólum.
Lesa frétt25. maí 2009
Föstudaginn 22. maí voru haldnir fundir í vinnuhópum sem tengjast endurskoðun og gerð kjarasamninga. Fulltrúar KÍ í hópunum lögðu fram yfirlýsingu (sjá frétt dags. 22. maí) frá Kennarasambandi Íslands þar sem sett eru fram skilyrði fyrir áframhaldandi þátttöku KÍ í samflotinu. Vikuna 25. til 29. maí verður áfram fundað í hópum og reynt að ná utan um þau verkefni sem hópunum er ætlað að vinna.
Lesa frétt22. maí 2009
Fundir voru haldnir í Karphúsinu 19 og 20. maí sem marka upphaf nýrrar vinnulotu samningsaðila á almennum og opinberum vinnumarkaði. Unnið er eftir fundaáætlun sem stendur til 9. júní en þá er reiknað með að niðurstöður liggi fyrir um kjarasamninga ASÍ og SA og um forsendur og ramma kjarasamningagerðar á vinnumarkaði sem byggir bæði á framlagi samtaka launamanna og vinnuveitenda og á innleggi ríkisins í málið.
Lesa frétt
20. maí 2009
Mikilvægt er að félagsmenn geti fylgst jafnóðum með samningamálum. Þar ber að nefna helstu fundi í samflotinu (sjá nánar í samningabólu), einnig fundi og annað samstarf samningsaðila hjá hinu opinbera , fundi innan KÍ og fleira. Hér er safnað saman samningafréttum og þær birtar sem sk. samningabólur, samsvarandi bólum um vinnuumhverfismál sem birtar eru mánaðarlega. Samningabólurnar eru jafnframt settar undir liðinn Kennarinn og kreppan hægra megin á síðunni. Við vonum að þetta mælist vel fyrir. Hér er fyrsta samningabólan.
Lesa frétt
20. maí 2009
Áfram er fundað um stöðugleikasáttmálann í Karphúsinu í dag og fulltrúar á vinnumarkaði vinna hörðum höndum, í samráði við ríkisstjórnina, að því að slíkur sáttmáli líti dagsins ljós hið fyrsta. KÍ fer með eftirfarandi áhersluatriði inn í þessar mikilvægu samningaviðræður.
Lesa frétt
12. maí 2009
Um skólann sem öruggan vinnustað. Þessi grein birtist áður í Skólavörðunni, 3. tbl, 9. árgangi 2009.
Lesa frétt
12. maí 2009
Eiríkur Jónsson situr fyrir svörum um viðbótarlífeyrissparnað. Þessi grein birtist áður í Skólavörðunni, 3. tbl., 9. árgangi, 2009.
Lesa frétt
7. maí 2009
Brot úr 1. maí ávarpi Kennarasambands Íslands, Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, Bandalags háskólamanna og Sambands íslenskra framhaldsskólanema.
Lesa frétt
20. apr. 2009
Á sameiginlegum fundi stjórnar og kjararáðs KÍ þann 17. apríl sl. voru til umræðu tilraunir vinnuveitenda til að lækka laun starfsfólks skólanna. Fundarmenn lýstu yfir áhyggjum sínum af því að fólki væri í einhverjum tilfellum stillt upp við vegg og þvingað til að samþykkja lækkun dagvinnulauna. Í þessu sambandi er mikilvægt að hafa í huga að frjálsir samningar um launaskerðingu gegn samsvarandi minnkun vinnuskyldu eru í samræmi við lög og venjur og eru því á ábyrgð hvers launamanns og vinnuveitenda hans. Allar þvingandi aðgerðir af hendi vinnuveitenda sem fela í sér skerðingu á taxtalaunum með því að minnka stöðuhlutfall eða með því að þvinga fólk í launalaust leyfi eru að mati KÍ brot á friðarskyldu og því um lögbrot að ræða.
Lesa frétt
10. feb. 2009
Frummælendur á janúarfundum Kennarasambandsins tóku saman talsvert efni á glærum og hægt er að nálgast þær hér.
Lesa frétt