25.maí.2011
Á fundi FF og formanna fagfélaga í morgun, þann 25. maí 2011, var kosin skólamálanefnd fyrir FF á grundvelli tilnefninga félagsins. Leitast var við að gæta jafnvægis milli faggreina og sviða við kosningu fulltrúanna.
Lesa meira19.maí.2011
Menntavísindasvið HÍ, að undirlagi Samstarfsnefndar um endurmenntun framhaldsskólakennara, býður framhaldsskólakennurum og stjórnendum 10 eininga námskeið um grunnþætti nýrrar námskrár: Grunnþættir menntunar og framhaldsskólastarf (KEN001M). Námskeið þetta hefur nokkra sérstöðu þar sem því er ætlað að styðja menntalög frá 2008. Hér er tækifæri til að byggja upp nýja þekkingu í framhaldsskólunum sem nýtist við innleiðingu nýrrar námskrár og styður þá þverfaglegu nálgun sem þar birtist í grunnþáttunum: læsi, sjálfbærni, lýðræði, mannréttindi, jafnrétti og sköpun.
Lesa meira23.apr..2011
Tvö námskeið á háskólastigi verða í boði fyrir framhaldsskólakennara árið 2011, annað í sumar og hitt næsta vetur. Námskeiðin eru haldin af Menntavísindasviði HÍ að undirlagi SEF - Samstarfsnefndar um endurmenntun framhaldsskólakennara, og mun SEF greiða skráningargjöld fyrir þátttakendur.
Lesa meira1.apr..2011
Aðalfundur Félags framhaldsskólakennara var haldinn 17. – 18. mars sl. og sóttu hann um 70 fulltrúar úr öllum framhaldsskólunum. Á fundinum voru kjaramálin, skólamálin og starfsaðstæður framhaldsskólakennara í brennidepli en yfirskrift fundarins var „Staða framhaldsskólans“.
Lesa meira
16.mar..2011
Aðalfundur Félags framhaldsskólakennara verður haldinn á Grand Hóteli, Reykjavík, dagana 17. og 18. mars nk. Á fundinum verða kjaramál í framhaldsskólum og starfsaðstæður framhaldsskólakennara í brennidepli en yfirskrift fundarins er „Staða framhaldsskólans“.
Kjarasamningur félagsmanna KÍ í framhaldsskólum rann út í lok nóvember á síðasta ári og er mikill seinagangur í viðræðum um endurnýjun hans.
Framhaldsskólinn stóð verulega höllum fæti í launamálum í nokkur ár áður en kreppan skall á og alvarlegur niðurskurður fjármuna til framhaldsskólastarfs hefur aukið enn á vandann. Hálfur annar milljarður hefur þegar verið tekinn út úr rekstri framhaldsskóla með beinum niðurskurði fjárframlaga og önnur eins upphæð sem ætluð var til framkvæmdar nýrra framhaldsskólalaga aldrei komist til skólanna heldur er horfin í skuldahít Ríkissjóðs.
Lesa meira
22.feb..2011
... um niðurstöður í stjórnarkjöri Félags framhaldsskólakennara 2011.
Lesa meira