Eftir árum

28.des..2010

Kynningarbæklingur um frambjóðendur til formanns og stjórnar FF

Hægt er að nálgast kynningarbækling um frambjóðendur til formanns og stjórnar FF á tengli til hægri á forsíðu FF.
Lesa meira

15.okt..2010

Ályktun FF frá fundi 4. október sl.

Félag framhaldsskólakennara fundaði með formönnum félagsdeilda og trúnaðarmönnum í framhaldsskólum 4. október sl. á Grand hóteli í Reykjavík. Á fundinum var ályktað um aðferðir við fyrirhugaðan niðurskurð á fjárveitingum til framhaldsskóla 2011.
Lesa meira

27.ágú..2010

Námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla

Umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2011-2012 þurfa að berast menntamálaráðuneyti eigi síðar en 1. október 2010. Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig geta skólameistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara viðkomandi skóla.
Lesa meira

8.mar..2010

Fulltrúafundur FF 12. mars nk.

Þann 12. mars nk. verður fulltrúafundur FF haldinn í Hvammi á Grand Hóteli í Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:45 með afhendingu gagna.
Lesa meira

15.feb..2010

Fræðslunámskeið FF fyrir trúnaðarmenn 29. janúar

Föstudaginn 29. janúar hélt FF fræðslunámskeið fyrir trúnaðarmenn í framhaldsskólum. Auk hefðbundinnar fræðslu fyrir trúnaðarmenn talaði Guðrún Ragnarsdóttir um rannsókn á líðan og starfsumhverfi framhaldsskólakennara við breyttar starfsaðstæður sem félagsmenn eru nú að svara. Atli Harðarson kynnti starfsemi siðaráðs KÍ og Margrét Gunnarsdóttir starfsendurhæfingarráðgjafi KÍ, BHM og SSF kynnti nýja þjónustu fyrir félagsmennt KÍ sem byggir á ráðgjöf á sviði starfsendurhæfingar. Auk þess má nefna fróðlegt erindi Odds S. Jakobssonar hagfræðings KÍ um launa- og kjaraþróun í framhaldsskólum á tímum niðurskurðar.
Lesa meira

15.feb..2010

Sameiginlegur fræðslufundur stjórnenda og trúnaðarmanna 28. janúar

Þann 28. janúar síðastliðinn stóðu fjármálaráðuneytið og KÍ/framhaldsskóli sameiginlega að fræðslufundi fyrir trúnaðarmenn og skólameistara í framhaldsskólum. Efni fundarins byggði á bókun 2 og 1. kafla framkvæmdaráætlunar með kjarasamningi.
Lesa meira

25.jan..2010

Sameiginlegur fræðslufundur stjórnenda og trúnaðarmanna 28. janúar og fræðslunámskeið fyrir trúnaðarmenn 29. janúar

Fimmtudaginn 28. janúar n.k. verður haldinn fræðslufundur fjármálaráðuneytis og KÍ/framhaldsskóla fyrir stjórnendur og trúnaðarmenn í framhaldsskólum og daginn eftir, föstudaginn 29. janúar, heldur FF fræðslunámskeið fyrir trúnaðarmenn í framhaldsskólum.
Lesa meira

20.jan..2010

Breytingar á stjórn og samninganefnd FF

Þær breytingar urðu á stjórn og samninganefnd FF nú í byrjun janúar að Magnús Ingólfsson lét af trúnaðarstörfum fyrir félagið en Magnús hefur verið varaformaður FF frá aðalfundi FF 2008. Stjórn FF samþykkti á fundi sínum 18. janúar s.l. að Ásdís Ingólfsdóttir gjaldkeri félagsins taki einnig að sér störf varaformanns. Vegna þessara breytinga tekur Kolbrún Elfa Sigurðardóttir sæti sem aðalmaður í stjórn og samninganefnd FF en hún hefur verið varamaður í stjórn félagsins frá aðalfundi 2008. Félagið þakkar Magnúsi mikil og góð störf á liðnum árum. Ennfremur urðu þær breytingar á stjórn FF í haust að Valgerður Þ. E. Guðjónsdóttir lét af störfum sem varamaður. Félagið þakkar Valgerði sömuleiðis fyrir störf hennar og samfylgdina.
Lesa meira




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli