Verkefna- og námsstyrkjasjóður FG og SÍ - Vonarsjóður

 

Verkefna- og námsstyrkjasjóður
- Vonarsjóður -

 

Aðild að sjóðnum eiga kennarar og skólastjórnendur í grunnskólum. Upplýsingar um stjórn sjóðsins eru hér. Fulltrúar sjóðsins, Sigrún Harðardóttir, netfang sh hjá ki.is, og María Norðdahl, maria hjá ki.is, veita nánari upplýsingar um Verkefna og námsstyrkjasjóð (Vonarsjóð) í síma: 595 1111 á milli 09:00-16:00.

 

Sótt er um styrki á Mínum síðum:

Hægt er að sækja um eftirfarandi styrki:

  • A hluti - Starfsmenntunarstyrkir*.
  • B hluti - Styrkir vegna framhaldsnáms*.
  • C hluti - Hópstyrkir vegna náms- og kynnisferðir skóla/stofnana*.
  • D hluti - Styrkir til aðildar-, svæða- og sérfélaga.
  • E hluti - Styrkir til rannsóknar- og þróunarverkefna.
  • F hluti - Námslaun.

Athuga skal:

  • að allir styrkir eru greiddir út í einu lagi (einni greiðslu),
  • að aðeins er hægt að sækja um í einum flokki fyrir hverri ferð, ráðstefnu eða námskeiði,
  • að greiðsluseðlar sem berast sem kvittanir verða að vera stimplaðir frá banka,
  • að kvittanir mega ekki vera eldri en 6 mánaða.
Umsóknarfrestir vegna funda stjórnar eru: 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. júní, 15. ágúst, 15. september, 15. október og 15. desember. Umsóknir sem lagðar eru fyrir fund eru afgreiddar í næsta mánuði á eftir.

M.a. styrkhæft

Umsóknir í Vonarsjóð FG og SÍ sem ekki þurfa að fara fyrir fund:

  • Gítarnámskeið.
  • Heklunámskeið.
  • Myndlistarnámskeið.
  • Námskeið og ráðstefnur sem tengjast kennslu í grunnskólum.
  • Námskeið - stafrænar myndavélar.
  • Píanónámskeið.
  • Prjónanámskeið.
  • Saumanámskeið.
  • Sjálfstyrkingarnámskeið.
  • Söngnámskeið.
  • Tónlistarnámskeið.
  • Tungumálanámskeið.
  • Tölvunámskeið.

M.a. ekki styrkhæft

Á meðal þess sem EKKI er styrkhæft úr A hluta:

  • Líkamsrækt.
  • Kórgjöld.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli