Ársfundir

Ársfundir Kennarasambands Íslands

Ársfundir Kennarasambands Íslands eru haldnir þau ár sem þing er ekki haldið. Í 11. grein laga Kennarasambandsins segir: „Þau ár, sem ekki er haldinn aðalfundur, skulu stjórnir félaga boða til ársfundar skv. lögum hvers félags. Á ársfundi er m.a. fjallað um starfsemi félagsins og starfsáætlun auk þess sem reikningar eru lagðir fram.“

Á ársfundi skal leggja fram reikninga Kennarasambandsins fyrir næstliðið ár, skýrslu yfir starfsemi Kennarasambandsins og þingkjörinna nefnda ásamt því að ganga frá starfsáætlun fyrir komandi ár. Heimilt er stjórn að vísa öðrum málum til umfjöllunar á ársfundi.

Ferðakostnað vegna ársfunda greiðir viðkomandi félag/nefnd en uppihalds- og fundarkostnaður að öðru leyti greiðist af Kennarasambandi Íslands.”




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli