Skólavarðan

Skólavarðan er málgagn Kennarasambands Íslands og kom 1. tölublað út í janúar 2001. Markmið blaðsins er að vera lifandi, öflugur, lýðræðislegur miðill félagsmanna Kennarasambands Íslands. Áhersla er lögð á fjölbreytt efni, fréttir, pistla, lengri greinar og viðtöl um fagmál, kjaramál og önnur hagsmunamál félagsmanna Kennarasambandsins í víðu samhengi. Skólavarðan er birt í flettiútgáfu á www.ki.is og send þeim sem þess óska. Auk þess eru send 2-9 blöð í skóla eftir fjölda félagsmanna.

Útgáfustjóri KÍ og ritstjóri Skólavörðunnar er Kristín Elfa Guðnadóttir, sími: 595 1104 og netfang: kristin hjá ki.is. Hún er einnig ritstjóri Eplisins, Ferðablaðsins og Handbókar KÍ. Verkefnastjóri í útgáfumálum 2012-2013 er Guðlaug Guðmundsdóttir, sími 595 1106, netfang gudlaug hjá ki.is. Auglýsingastjóri er Stella Kristinsdóttir, netfang: stella hjá ki.is.

Í útgáfustjórn KÍ sitja einn ritstjórnarfulltrúi frá hverju aðildarfélagi KÍ og annar til vara ef félag kýs svo.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli