28. jún. 2012
Félagsmenn athugið! Eitthvað er af lausum húsum um helgina. Kannski er ÞITT draumahús laust! Skoðaðu laus hús á bókunarvef Orlofssjóðs á
Mínum síðum.
Lesa meira
26. jún. 2012
Sumareplið var að koma út. Hægt er að skoða það
hér.
Lesa meira
26. jún. 2012
Kennarahúsið verður lokað frá og með 14. júlí til og með 6. ágúst. Afgreiðslan opnar aftur þriðjudaginn 7. ágúst.
Lesa meira25. jún. 2012
Einhverjir félagsmenn hafa lent í vandræðum með að komast á bókunarvef Orlofssjóðs. Ef upp kemur villumelding þar sem kemur fram t.d.
This page has insecure content þarf að velja
Load anyway, sjá mynd.
Lesa meira25. jún. 2012
Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeið 28. og 29. ágúst 2012. Einnig er í boði viðbótarnámskeið fyrir þá sem starfa í leikskóla.
Lesa meira25. jún. 2012
Frumgreinanám er skipulagt og verðlagt að geðþótta háskólanna sem halda því úti og ekki er farið að lagakröfum um menntun og réttindi kennara. Félag framhaldsskólakennara fagnar skýrslu Ríksiendurskoðunar um námið og hefur sent menntamálaráðherra ályktun þessu að lútandi.
Lesa meira25. jún. 2012
Í fyrsta skipti lagði mennta- og menningarmálaráðherra fram skýrslu um skólahald í leikskólum á vorþingi Alþingis 2012. Þetta er gert í samræmi við 3. gr. laga um leikskóla frá 2008, en í þeim lögum er nýmæli um að ráðherra skuli leggja fram skýrslu um framkvæmd skólastarfs í leikskólum á þriggja ára fresti. Skýrslan fjallar um skólaárin 2008 - 2009, 2009 - 2010 og 2010 - 2011 og tekur hún mið að lögum um leikskóla og á að mynda skýr tengsl við áherslur laganna.
Lesa meira
21. jún. 2012
Félagsmenn athugið! Kennarahúsið verður lokað frá kl. 15:00 í dag vegna sumarskemmtunar starfsfólks. Opnað verður á venjulegum tíma í fyrramálið.
Lesa meira
19. jún. 2012
Konur fengu kosningarétt þann 19. júní árið 1915 og því er fagnað um allt land í dag um leið og minnt er á vonda stöðu kvenna víðsvegar um heim og bent á leiðir til úrbóta. Ingibjörg H. Bjarnason menntafrömuður, dans- og leikfimikennari, bekkjarkennari og síðar skólastjóri (forstöðumaður) Kvennaskólans var fyrst kvenna til að setjast á Alþingi en það þar var árið 1922. Eins og mýmörg dæmi sanna hafa kennarar lengst af verið framarlega í samfélagsumræðu og -úrbótum. Kvenréttindafélag Íslands gefur út 19. júní sem fylgir með Fréttablaðinu í dag og vegleg dagskrá er á vegum félagsins, sem einnig er nýkomið með fésbókarsíðu. Á vef félagsins eru einnig upplýsingar um hátíðahöld víðar um landið.
Lesa meira
14. jún. 2012
Mennta- og menningarmálaráðuneytið mun í samstarfi við Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga efna til ráðstefnu 31. ágúst nk. kl. 13:00-16:30 um grunnþætti í nýrri menntastefnu. Ráðstefnan verður haldin í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði.
Lesa meira13. jún. 2012
Á fundi stjórnar Vísindasjóðs FL og FLS sem haldinn var í morgun, miðvikudaginn 13. júní, var ákveðið að breyta úthlutunarreglum sjóðsins. Sú jákvæða þróun hefur orðið að mun fleiri félagsmenn sækja nú um styrki til sjóðsins en áður. Þessi breyting hefur orðið til þess að fjárstreymi úr sjóðnum er meira en sjóðurinn getur borið til lengri tíma litið að mati stjórnar. Sem dæmi má nefna að kynnisferðir til útlanda jukust úr 20 í 60 milljónir fyrstu 5 mánuði þessa árs miðað við fyrstu 5 mánuði ársins 2011. Í ljósi þessa ákvað stjórn sjóðsins meðfylgjandi breytingar.
Lesa meira12. jún. 2012
Endurmenntun Háskóla Íslands, í samvinnu við Félag leikskólakennara, býður upp á námskeiðið
Upplýsingatækni með ungum börnum. Skráningarfrestur er til 5. nóvember 2012.
Lesa meira12. jún. 2012
Endurmenntun Háskóla Íslands, í samstarfi við Félag leikskólakennara, býður upp á námskeiðið
Leikur að bókum. Markmiðið með námskeiðinu er að veita leikskólakennurum margháttaðan innblástur tengdan vinnu með barnabækur í leikskólanum. Kynntar verða ferskar og einfaldar aðferðir til að gera barnabækur lifandi fyrir börnunum og leysa úr læðingi sköpunarkraft, ímyndunarafl og síðast en ekki síst bókaást hjá bæði börnum og fullorðnum. Skráningarfrestur er til 4. október 2012. Einnig er boðið upp á fjarnámskeið með sama heiti og rennur skráningafresturinn út 27. ágúst fyrir það.
Lesa meira12. jún. 2012
Tvö sæti laus í ferð á Fimmvörðuháls næstkomandi laugardag 16. júní til 17. júní. „Fyrstur kemur fyrstur fær“.
Lesa meira
12. jún. 2012
Föstudaginn 14. september n.k. verður haldið HringÞing um menntamál innflytjenda í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum, háskólum og fullorðinsfræðslu. HringÞingið er þátttakendum að kostnaðarlausu og öllum opið. Skólafólk, foreldrar, nemendur og aðrir áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem fyrst því fjöldi er takmarkaður.
Lesa meira7. jún. 2012
Úrslit allsherjaratkvæðagreiðslna um kjarasamning KÍ/FL við Skóla ehf og Waldorfleikskólann Sólstafi.
Lesa meira
6. jún. 2012
Til að auðvelda aðgengi félagsmanna að orlofshúsavefnum Frímann er búið að setja inn hnapp þar sem hægt að skoða húsnæði og annað sem er í boði fyrir félagsmenn KÍ.
Lesa meira6. jún. 2012
Sjöunda norræna drama ráðstefnan
Drama Boreale verður haldin 6.-10. ágúst 2012 í Háskóli Íslands, menntavísindasviði.
Lesa meira5. jún. 2012
Félag enskukennara - FEKÍ - stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu undir heitinu
Making Sense Through Writing dagana 7.-9. júní nk. Ráðstefnan er ætluð öllum tungumálakennurum sem og öðrum sem áhuga hafa. / FEKI's 2012 International Conference for everyone in language education, June 7-9.
Lesa meira
5. jún. 2012
Kramhúsið býður upp á námskeiðið Skapandi kraftur dagana 12.-14. júní nk. Kennt verður í Kramhúsinu frá kl. 9:00-17:00 alla dagana.
Lesa meira5. jún. 2012
Björk Óttarsdóttir varaformaður FSL var nýlega ráðin sem sérfræðingur í leik- og gunnskólamálum í mennta og menningarmálaráðuneytinu. Stjórn FSL þakkar henni vel unnin störf og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi. Stjórn skipti með sér verkum á ný á fundi 4. júní sl. og var Sigrún Sigurðardóttir leikskólastjóri á Ökrum í Garðabæ kjörin varaformaður. Sverrir Jörstad Sverrisson verður áfram ritari, Inga Líndal Finnbogadóttir kemur inn í aðalstjórn sem gjaldkeri og Björg Sigurvinsdóttir verður áfram meðstjórnandi.
Lesa meira1. jún. 2012
Umboðsmaður barna minnir á málstofu um innleiðingu Barnasáttmálans á Norðurlöndunum sem verður haldin þriðjudaginn 5. júní frá klukkan 9:00 til 11:30 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Málstofan er öllum opin meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á netfangið
ub hjá barn.is sem fyrst.
Lesa meira