
29. maí 2012
Auglýst er eftir áhugasömum og frumlegum hugmyndasmiðum til þess að fylla inn í viðburðalandslag Menningarnætur 2012. Styrkir úr Menningarnæturpotti Landsbankans!
Lesa meira29. maí 2012
Þann 1. júní verður greidd út annar- eða orlofsuppbót.
Lesa meira24. maí 2012
Barnaverndarstofa stendur fyrir ráðstefnu um samvinnu skóla og barnaverndar á Grand hótel Reykjavík, 29. maí 2012, klukkan 8:30-16:00. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Skólastjórafélag Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök félagsmálastjóra, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur og Barnavernd Reykjavíkur.
Lesa meira
24. maí 2012
Jafnréttisnefnd KÍ stóð fyrir ráðstefnu um jafnréttisfræðslu í skólum miðvikudaginn 16. maí síðastliðinn. Á henni kom ýmislegt áhugavert fram og rúmlega 70 manns mættu til að hlýða á erindi og ræða málin. Námsgagnastofnun og Jafnréttisstofa voru einnig á staðnum með námsefni í jafnréttisfræðslu til sýnis. Á ráðstefnunni héldu þrír fyrirlesarar erindi um innleiðingu og mikilvægi jafnréttisfræðslu í skólum á öllum skólastigum. Að lokum voru pallborðsumræður.
Lesa meira
23. maí 2012
Athygli er vakin á afar áhugaverðu nýju veftímariti um skólamál sem Edda Kjartansdóttir og Nanna Christiansen eru að stofna og opnuðu óformlega þann 16. maí 2012. Markmiðið með tímaritinu er að gera umræðu um skólamál aðgengilega og sýnilega.
Lesa meira23. maí 2012
Í apríl kom út skýrsla um úttekt Mrn. á kennslu í stærðfræði í átta grunnskólum hér á landi. Markmið úttektarinnar var að afla upplýsinga um framkvæmd stærðfræðikennslu í grunnskólum með tilliti til aðalnámskrár, námsefnis, námsgagna, menntunar kennara, árangurs nemenda, stöðu námsgreinarinnar og viðhorfa til hennar. Í skýrslunni er varpað ljósi á það sem vel er gert, bent á það sem betur má fara og settar fram hugmyndir að úrbótum.
Niðurstöður eru áhugaverðar og ánægjulegar fyrir skólastarf hér á landi en þar kemur m.a. fram að styrkleikar stærðfræðikennslunnar séu áhugasamir kennarar, fámennir námshópar, góður námsstuðningur við nemendur sem eiga í erfiðleikum með stærðfræðinám og fjölbreytt námsmat.
Lesa meira
21. maí 2012
Þann 24. maí nk. heldur LSR kynningarfundi fyrir sjóðfélaga sem vilja fræðast um lífeyrismál; um uppbyggingu réttindakerfisins, iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslur. Hægt er að velja um tvær tímasetningar þann 24. maí nk.: 8:30-10:00 eða 16:30-18:00. Fundirnir eru haldnir á Hilton Reykjavík Nordica og er nauðsynlegt er að skrá sig fyrir 22. maí.
Lesa meira16. maí 2012
Í haust, 28. september til 1. október, verður haldið námsskeið á vegum Nordspråk um þann fjárssjóð sem norrænir söngvar eru og hvernig hægt er að nýta hann í kennslu. Dagskrá má skoða
hér og einnig á vefnum, sjá
hér.
Lesa meira
16. maí 2012
Í morgun, 16. maí, var undirritaður kjarasamningur Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara við Skóla ehf með fyrirvara um samþykki félagsmanna.
Lesa meira15. maí 2012
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga verður haldinn þriðjudaginn 22. maí á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 og hefst hann kl. 15:00.
Lesa meira
15. maí 2012
Næsti umsóknarfrestur fyrir styrki sem Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara - SEF úthlutar til endurmenntunar framhaldsskólakennara er 31. október.
Lesa meira15. maí 2012
Endilega athugið þessi áhugaverðu námskeið.
Lesa meira11. maí 2012
Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2012-2013. Sjá nánar frétt ráðuneytisins
hér.
Lesa meira
8. maí 2012
Ráðstefna Jafnréttisnefndar KÍ um jafnréttisfræðslu í skólum verður haldin í Skriðu á Menntavísindasviði HÍ miðvikudaginn 16. maí næstkomandi kl. 13:30-16:30. Á henni verður innleiðing, mikilvægi og skylda jafnréttisfræðslu í skólum á öllum skólastigum tekin fyrir og rædd. Þrír fyrirlesarar verða, einn af hverju skólastigi.
Lesa meira
7. maí 2012
Í morgun lauk allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna í Félagi leikskólakennara innan Kennarasambands Íslands um kjarasamning FL og Samtaka sjálfstæðra skóla sem skrifað var undir þann 12. apríl sl.
Lesa meira
7. maí 2012
... kennarar eru taldir vera í mestri áhættu að skaða röddina við vinnu sína?
Lesa meira
2. maí 2012
Stjórn Félags leikskólakennara hefur falið kjörstjórn Kennarasambands Íslands að framkvæma allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna Kennarasambands Íslands í Félagi leikskólakennara. Atkvæði eru greidd um kjarasamning Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara við Samtök sjálfstæðra skóla eftir umboði rekstraraðila sem var undirritaður 12. apríl 2012 með fyrirvara um samþykki félagsmanna.
Lesa meira