Eftir mánuðum

30. apr. 2012

Verum saman 1. maí!

Hátíðahöld 1. maí í Reykjavík hefjast kl. 13:00 með því að fólk safnast saman á Hlemmi. Gangan leggur af stað kl. 13:30 og útifundur hefst á Ingólfstorgi kl. 14:10. Að loknum fundi kl. 15:15 býður Kennarasambandið félagsmönnum sínum upp á hið árlega 1. maí kaffi á Kaffi Reykjavík, Vesturgötu 2.
Lesa meira

27. apr. 2012

Ársfundur lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar 2012, verður haldinn miðvikudaginn 16. maí kl. 15:00 í húsakynnum BSRB að Grettisgötu 89, Reykjavík. Allir sjóðfélagar sem og launagreiðendur og viðkomandi stéttarfélög eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta.
Lesa meira

27. apr. 2012

Fundir vegna umsókna í Vonarsjóð FG og SÍ

Stjórn Verkefna- og námsstyrkjasjóðs FG og SÍ (Vonarsjóðs) þakkar félagsmönnum fyrir jákvæð viðbrögð við óumflýjanlegum breytingum á styrkúthlutunum úr sjóðnum. Einnig vill stjórnin vekja athygli á því að næstu fundir verða tveir en ekki einn vegna fjölda umsókna sem bárust fyrir 16. apríl og þurfa að fara fyrir fund. Fundirnir verða mánudaginn 30. apríl og föstudaginn 4. maí. Í framhaldi af þeim verður hægt að svara umsóknum. Félagsmenn FG og SÍ eru beðnir um að sýna biðlund og gefa fulltrúum tækifæri á að vinna umsóknirnar í maí.
Lesa meira

26. apr. 2012

Körlum fjölgar við kennslu í leikskólum

Í frétt frá Hagstofu Íslands um leikskóla kemur m.a. fram að frá desember 2009 til sama mánaðar árið 2011 fjölgar körlum í starfi í leikskólum um 64, en konum fækkar um 188. Einkum fjölgar körlum sem starfa við kennslu. Þeir voru 197 árið 2009 en 253 árið 2011, og hafði því fjölgað um 28,4% á tveimur árum. Á þessu tveggja ára tímabili fækkaði konum í sömu störfum um 154; 3,1%. Í desember 2011 störfuðu 5.515 manns í 4.798 stöðugildum við leikskóla á Íslandi. Það er fjölgun um 27 starfsmenn frá fyrra ári (0,5%) og stöðugildum fjölgaði einnig um 27 (0,6%). Leikskólabörnum hefur fjölgað um 198 á sama tíma, eða um 1,0%. Frá desember 2009 hefur leikskólabörnum fjölgað um 443 en starfsmönnum fækkað um 124, segir í frétt Hagstofu Íslands.
Lesa meira

25. apr. 2012

Ársfundur LSS 8. maí

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga verður haldinn þriðjudaginn 8. maí kl. 16:00, í húsakynnum Sambands íslenskra sveitarfélaga að Borgartúni 30, Reykjavík.
Lesa meira

25. apr. 2012

Foreldraverðlaunin 2012

Heimili og skóli óska eftir tilnefningum til foreldraverðlauna 2012. Verðlaunin verða afhent miðvikudaginn 16. maí við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. Tilnefningar sendist rafrænt á eyðublaði á vefsíðunni heimiliogskoli.is. Síðasti skiladagur tilnefninga er 1. maí 2012.
Lesa meira

25. apr. 2012

Könnun á þörf og framkvæmd undirbúningstíma

Í gær, 24. apríl, var send út könnun til félagsmanna í Félagi leikskólakennara og til leikskólastjóra á þörf og framkvæmd undirbúningstíma utan hefðbundinna starfa á deild. Könnunin er unnin samkv. bókun 6 í kjarasamningi FL við sveitarfélögin. Könnunin verður opin til kl. 15:00, föstudaginn 4. maí 2012. Mikilvægt er að sem flestir taki þátt í könnuninni.
Lesa meira

24. apr. 2012

BRIM 2012

Úskriftarsýning nemenda á listnámsbraut Borgarholtsskóla verður haldin í Brimhúsinu við Reykjavíkurhöfn dagana 27.-29. apríl næstkomandi. Opið er alla sýningardagana frá kl. 14-18. Sýningin verður opnuð formlega fimmtudaginn 26. apríl kl. 17-19.
Lesa meira

24. apr. 2012

Áskoranir og ævintýri - útinám barna í þéttbýli

Alþjóðleg ráðstefna um útinám og náttúruleg leiksvæði verður haldin á Menntavísindasviði Háskóla Íslands frá 31. maí til 2. júni 2012. ATH að framlengdur umsóknarfrestur til skráningar er til 4. maí!
Lesa meira

24. apr. 2012

Virk umræða um skólastefnu KÍ

Nýverið hefur skólastefnu KÍ verið dreift til félagsmanna. Framkvæmdastjórn skólamálaráðs hefur á starfsáætlun sinni að kynna stefnuna og hvetja til umræðu um hana sem víðast. Í því skyni sendi framkvæmdastjórn skólamálaráðs tölvupóst til félagsmanna þar sem félagsmenn voru hvattir til að velta efni stefnunnar fyrir sér. Í fyrsta pistlinum var sjónum beint að „Skólastarfi og menntun“. Álíka pistlar verða sendir út um hvern kafla stefnunnar.
Lesa meira

23. apr. 2012

Símenntun og starfsþróun kennara er forsenda skólaþróunar

Á ársfundi KÍ 18. apríl síðasliðinn voru meðal annars samþykktar ályktanir um símenntun, starfsþróun og nýja kennaramenntun. Hvatt er til heildstæðrar stefnumótunar í símenntun og starfsþróun kennara og vakin athygli á fjölbreyttum atvinnumöguleikum með tilkomu nýs fimm ára kennaranáms.
Lesa meira

20. apr. 2012

Opnað fyrir einstaklingsstyrki hjá Vonarsjóði miðvikudaginn 25. apríl

Því miður þarf að seinka opnun fyrir einstaklingsstyrki hjá Verkefna- og námsstyrkjasjóði (Vonarsjóði) þar sem ljúka þarf afgreiðslu áður innsendra umsókna. Það er því ekki hægt að sækja um einstaklingsstyrki fyrr en miðvikudaginn 25. apríl nk. Sjá má bréf frá stjórn sjóðsins varðandi breytingar á reglum hér.
Lesa meira

18. apr. 2012

Kennarahúsið lokar kl. 15:30

Skrifstofum KÍ í Kennarahúsinu er lokað kl. 15:30 í dag, 18. apríl, vegna ársfundar Kennarasambandsins.
Lesa meira

17. apr. 2012

Ársfundur KÍ 18. apríl

Ársfundur Kennarasambands Íslands verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 18. apríl, á Hótel Sögu. Dagskráin hefst með morgunhressingu kl. 9:30 en fundurinn er settur kl. 10:00. Sjá dagskrá hér.
Lesa meira

17. apr. 2012

Fleiri flakkarar

Í dag, 17. apríl, kl. 18:00 geta þeir sem eiga 100+ punkta bókað flakkara á bókunarvefnum. Ef félagsmenn lenda í vandræðum geta þeir haft samband við Hönnu Dóru, framkvæmdastjóra Orlofssjóðs, í síma 867 8697 eða Elís formann sjóðsins í síma 899 1504. Svara þau fyrirspurnum frá kl. 18:00 til 20:00 í kvöld.
Lesa meira

16. apr. 2012

Einstaklingsstyrkir Vonarsjóðs

Vegna breytinga á reglum Verkefna- og námsstyrkjasjóðs (Vonarsjóðs) er ekki hægt að sækja um einstaklingsstyrki fyrr en mánudaginn 23. apríl nk. Sjá má bréf frá stjórn sjóðsins varðandi breytingarnar hér.
Lesa meira

13. apr. 2012

Kynning á umsóknarferli hjá Sameinuðu þjóðunum

Mánudaginn 16. apríl kl. 14:00-17:00 og þriðjudaginn 17. apríl kl. 14:00-17:00 munu tveir fulltrúar mannauðsskrifstofu SÞ í New York kynna fyrir áhugasömum langt og umfangsmikið umsóknarferli fyrir stöður hjá alþjóðastarfsliði SÞ. Kynningarfundirnir verða haldnir í utanríkisráðuneytinu, Rauðarárstíg 25. Áhugasamir geta skráð sig með tölvupósti á póstfangið skraning hjá utn.stjr.is með upplýsingum um nafn auk menntunar og ósk um hvor fundurinn verður sóttur.
Lesa meira

13. apr. 2012

Félag leikskólakennara og Samtök atvinnulífsins undirrita kjarasamning

Í gær kl. 16:00 skrifaði samninganefnd Félags leikskólakennara undir samning við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd skóla innan Samtaka sjálfstæðra skóla sem vísuðu samningsumboði til SA. Samningurinn er tilvísunarsamningur þannig að samningurinn sem KÍ/FL gerði við sveitarfélögin í ágúst sl. gildir fram til 30. júní 2014. Í samningnum er kveðið á um að kaup og kjör fari samkvæmt kjarasamningi KÍ/FL við Samband íslenskra sveitarfélaga sem undirritaður var 20. ágúst 2011, þá halda þeir félagsmenn FL þeim kjörum sem þeir hafa haft samkvæmt fyrri kjarasamningi eða ráðningarsamningi umfram það sem kveðið er á um í kjarasamningi KÍ/FL við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Lesa meira

12. apr. 2012

Flakkarabókanir hefjast á mánudaginn

Mánudaginn 16. apríl kl. 18:00 opnar fyrir bókanir í flakkara. Þann dag geta þeir sem eiga 300 punkta eða fleiri bókað á bókunarvefnum.
Lesa meira

12. apr. 2012

Félag leikskólakennara er á Facebook

Félag leikskólakennara hvetur alla félagsmenn sína til þess að gerast vinir síðunnar og taka þátt í umræðum og fylgjast með því sem er að gerast í félagsstarfinu. Þegar hafa rúmlega 1800 manns skráð sig á síðuna. Síðan er á þessari slóð: https://www.facebook.com/leikskolakennarar. Síðan er opin öllum til aflestrar, en ef félagsmenn vilja tjá sig um efni hennar verða þeir að gerast vinir hennar.
Lesa meira

11. apr. 2012

Aldrei veik

Ný nálgun á fjarvistir frá vinnu veldur byltingu í líðan og heilsufari. Á vef VIRK eru nokkur forvitnileg myndbönd þar sem sagt er frá því hvernig nýrri fjarvistarstefnu er hleypt af stokkunum og hvernig hún hefur virkað á viðkomandi vinnustöðum en tveir þeirra eru skólar. Í Bakkaskóla í Fredericia, venjulegum dönskum grunnskóla, voru 35 af 45 kennurum skólans aldrei veikir á síðasta ári. Þann árangur má rekja til fjarverustefnu vinnustaðarins þar sem áhersla er lögð á forvarnir, umhyggju starfsfólksins gagnvart hvert öðru, gagnkvæmt traust og nærveru skólastjórans.
Lesa meira

11. apr. 2012

Vissir þú að...

...70% allra sjúkdóma í heiminum í dag stafa af hreyfingarleysi, reykingum og mataræði?
Lesa meira

10. apr. 2012

Áskoranir og ævintýr - útinám barna í þéttbýli

Alþjóðleg ráðstefna um útinám og náttúruleg leiksvæði verður haldin við Menntavísindasvið Háskóla Íslands frá 31. maí til 2. júní 2012.
Lesa meira

10. apr. 2012

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk

Stóra upplestrarkeppnin fagnar 16 ára afmæli í ár. Verkefnið er árlega sett af stað á degi íslenskrar tungu og hefst þá ræktunarhluti verkefnisins sem stendur fram í lok febrúar. Þá hefst hátíðarhlutinn og eru hátíðirnar 31 þetta árið. Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn stýra verkefninu og taka við skráningum frá skólum og fylgjast með framkvæmd þess um land allt.
Lesa meira

10. apr. 2012

Ályktanir fulltrúafundar Félags framhaldsskólakennara 29. mars 2012

Fulltrúafundur Félags framhaldsskólakennara árið 2012 var haldinn í Reykjavík 29. mars sl. Fundinn sátu fulltrúar úr öllum framhaldsskólum landsins, auk stjórnar, samninganefndar og skólamálanefndar félagsins. Fundurinn samþykkti ályktanir um ýmis brýn hagsmunamál framhaldsskólakennara.
Lesa meira

10. apr. 2012

Málstofa um einelti

Rannsóknarstofa í bernsku- og æskulýðsfræðum - BÆR og Verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti standa að málstofu um einelti 12. apríl 2012 kl. 14:00-16:30 í stofu H 207 í húsnæði MVS við Stakkahlíð. Aðgangur öllum opinn og er ókeypis.
Lesa meira

10. apr. 2012

Breytingar á úthlutun úr Verkefna- og námsstyrkjasjóði FG og SÍ

Stjórn Verkefna- og námsstyrkjasjóðs FG og SÍ (Vonarsjóðs) hefur endurskoðað úthlutunarreglur sjóðsins í samræmi við þá þróun sem verið hefur síðastliðið ár. Sú ánægjulega þróun hefur orðið að mun fleiri félagsmenn sækja nú um styrki til sjóðsins en áður. Þessi þróun hefur orðið til þess að fjárstreymi úr sjóðnum er meira en sjóðurinn getur borið til lengri tíma litið. Vegna fjölgunar umsókna á síðasta ári er nú þegar ljóst að sjóðurinn getur ekki staðið við skuldbindingar sínar nema breytingar verði gerðar á úthlutunarreglum hans. Sjá meðfylgjandi bréf til félagsmanna.
Lesa meira

4. apr. 2012

Gleðilega páska!

Kennarasamband Íslands óskar félagsmönnum sínum og öðrum landsmönnum gleðilegra páska.
Lesa meira

4. apr. 2012

Bókanir á Orlofsvefnum

Athugið félagsmenn, að á Orlofsvefnum er bókunum núna aðeins haldið í 30 mínútur meðan að fólk er að ganga frá greiðslu.
Lesa meira




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli