
30. mar. 2012
Enn eru 143 vikur lausar til leigu í sumar. Skoðið hvort eitthvað hentar ykkur!
Nokkrar fyrirspurnir hafa borist vegna gráu kassanna í listanum
Laus tímabil á bókunarvefnum. Þegar þeir koma fyrir í yfirlitinu er um að ræða flakkara (sem ekki er byrjað að úthluta), búið að bóka viðkomandi tímabil eða það ekki í boði.
Lesa meira29. mar. 2012
Meðfylgjandi er listi yfir viku- og flakkaraleigu í húsum KÍ,
sjá hér.
Lesa meira
29. mar. 2012
Eitthvað hefur borið á því að félagsmenn sem töldu sig hafa pantað orlofshús fengu sendan tölvupóst þar sem fram kom að pöntuninni hefði verið eytt eða hún afpöntuð. Í flestum tilfellum er ástæðan sú að pöntuninni var ekki lokið. Það er að segja orlofshúsið hefur verið merkt pantað en ekki gengið frá greiðslu og því gerist þetta.
Lesa meira
29. mar. 2012
Í dag, 29. mars, kl. 18:00 geta þeir sem eiga 100+ punkta bókað hús á bókunarvefnum. Ef félagsmenn lenda í vandræðum geta þeir haft samband við Hönnu Dóru, framkvæmdastjóra Orlofssjóðs, í síma 867 8697 og Elís formann sjóðsins í síma 899 1504. Svara þau fyrirspurnum frá kl. 18:00 til 21:00 í kvöld.
Lesa meira29. mar. 2012
FSL þarf smæðar sinnar vegna að vera útsjónasamt í rekstri félagsins. Því var ákveðið að setja saman í einn pakka ársfund, samráðsfund og sameiginlegan stjórnarfund með FL. Í starfsáætlun félaganna segir að sameiginlegur fundur stjórna skuli haldinn á Akureyri 13. apríl og við notum ferðina og boðum til ársfundar og samráðsfundar 12. og 13. apríl í Hofi.
Lesa meira
29. mar. 2012
Spennandi ráðstefna sem mikill metnaður er lagður í og langur undirbúningur að baki. Dagskráin ekki af verri endanum. Kíkið á þessa!
Lesa meira
28. mar. 2012
Nokkuð hefur verið um fyrirspurnir vegna stöðu orlofspunkta þar sem félagsmenn finna ekki viðkomandi upplýsingar. Til þess að finna punktastöðu þarf að vera inni á
Mínum síðum. Þar á að vera hnappur sem heitir
Síðan mín og undirsíða sem heitir
Mínar upplýsingar. Þar kemur punktastaðan fram. Stundum kemur upp sú staða að hnappurinn
Síðan mín sést ekki og þá er nægilegt að bíða stutta stund eða fara á milli annarra möguleika á síðunni til þess að hnappurinn birtist.
Lesa meira
27. mar. 2012
Þann 29. mars nk. verður ársfundur Félags leikskólakennara haldinn á Grand hóteli í Reykjavík. Ársfundur er haldinn þau ár sem ekki er aðalfundur. Á fundinum er fjallað um starfsemi félagsins og starfsáætlun auk þess sem reikningar eru lagðir fram. Rétt til setu á ársfundi hafa stjórn og varastjórn, formenn svæðadeilda, samninganefnd og fulltrúar félagsins í skólamálanefnd og kynningarnefnd.
Lesa meira
27. mar. 2012
Áhugaverð ráðstefna um sjónarmið barna verður haldin á Alþjóðadegi kennara þann 5. október. Þar verður meðal annars fjallað um hvernig hægt er að öðlast skilning og auka þekkingu á viðhorfum og hugmyndum ungra barna á ýmsum þáttum í daglegu lífi þeirra og skólagöngu.
Lesa meira27. mar. 2012
Föstudaginn 30. mars nk. halda útskriftarnemar, í uppeldis- og menntunarfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, ráðstefnu og kynna BA verkefni sín. Ráðstefnan er haldin í Skriðu, húsi Menntavísindasviðs við Stakkahlíð og stendur frá kl. 9:00 til 17:00. Erindi ráðstefnunnar eru flokkuð niður í þemu og ættu allir að gera fundið eitthvað við sitt hæfi.
Lesa meira
27. mar. 2012
Mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, staðfesti þann 10. mars 2012 verklagsreglur um starfsemi fagráðs eineltismála í samræmi við reglugerð nr. 1040/2011 um ábyrgð og skyldur skólasamfélagsins í grunnskólum. Í 7. gr. reglugerðarinnar segir: „Foreldrar eða skólar geta óskað eftir aðstoð sérstaks fagráðs, sem starfar á ábyrgð mennta- og menningarmálaráðuneytis, ef ekki tekst að finna viðunandi lausn innan skóla eða sveitarfélags, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og aðkomu sérfræðiþjónustu...“
Lesa meira22. mar. 2012
Vakin er athygli á sumarnámskeiðum ætluðum framhaldsskólakennurum.
Lesa meira
21. mar. 2012
Kennarasamband Íslands hefur ákveðið að senda ekki afrit launamiða heim til félagsmanna. Launamiðar hafa verið sendir rafrænt til skattstjóra og eru allar upphæðir forskráðar á framtöl þeirra sem fengið hafa greiðslur úr sjóðum KÍ. Launamiðar eru einnig sendir í tölvupósti til þeirra félagsmanna sem eru með netfang skráð í félagakerfi KÍ.
Lesa meira
21. mar. 2012
Þann 29. mars nk. verður fulltrúafundur Félags framhaldsskólakennara haldinn í Hvammi á Grand hótel, Reykjavík. Dagskrá og fundarboð er hægt að sjá
hér.
Lesa meira
21. mar. 2012
Í tilefni af nýlegri skýrslu um úttekt á fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008 boðar stjórn LSR til fundar með sjóðfélögum fimmtudaginn 22. mars á Akureyri. Fundurinn verður haldinn í Lionssal á 4. hæð Skipagötu 14 og hefst kl. 16:30.
Lesa meira
20. mar. 2012
Nýtt Ferðablað Orlofssjóðs er komið út.
Hægt er að skoða það hér.
Lesa meira
20. mar. 2012
Fimmtudaginn 29. mars stendur Sjónarhóll fyrir málþingi um börn og ungmenni með hegðunar- og/eða geðraskanir. Málþingið verður haldið á Hótel Hilton Reykjavík Nordica og stendur frá kl. 12:30 til 16:30.
Lesa meira
20. mar. 2012
Náum áttum, opinn samstarfshópur um fræðslu- og forvarnamál, efnir til morgunverðarfundar á Grand Hóteli næstkomandi miðvikudag, 21. mars 2012, kl. 8:15-10:00. Yfirskrift fundarins er „Velferð barna þremur árum síðar! Hvað segja lykiltölur um stöðuna í dag“.
Lesa meira
19. mar. 2012
Kennarar og nemendur kynna meistara- og doktorsnám við Menntavísindasvið fimmtudaginn 22. mars kl. 16-18 í Fjöru - matsal. Gestir eru hvattir til að koma í heimsókn í Stakkahlíðina og spjalla við kennara og nemendur og fá upplýsingar um fjölda spennandi námsleiða. Þrjár deildir sviðsins, Kennaradeild, Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild og Uppeldis- og menntunarfræðideild munu kynna fjölbreytt framhaldsnám.
Lesa meira
19. mar. 2012
Ársfundur VIRK verður haldinn fimmtudaginn 12. apríl 2012 kl. 8:00 til 12:00 í Hörpu í salnum Norðurljós. Dagskráin er tvískipt. Fyrri hluti fundarins inniheldur fræðandi erindi og hefst hann með ávarpi Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra kl. 8:15. Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK mun síðan fara yfir starfsemi VIRK á síðastliðnu ári og Ingibjörg Jónsdóttir prófessor við Institute of Stress Medicine í Gautaborg mun halda erindi um reynslu og niðurstöður nýjustu rannsókna varðandi forvarnir og starfsendurhæfingu vegna kulnunar og síþreytu á vinnustöðum. Kaffihlé verður frá kl. 10:30 til 11:00 og að því loknu hefjast hefðbundin ársfundarstörf.
Lesa meira
15. mar. 2012
Lokatónleikar Nótunnar 2012 fara fram sunnudaginn 18. mars í Eldborg í Hörpu. Nótan og Tónlistarsjóður Hörpu fyrir ungt fólk hafa gert með sér samstarfssamning til þriggja ára þess efnis að lokatónleikar hátíðarinnar fari fram í Hörpu. Sannkölluð hátíðarstemming verður í húsinu allan daginn en á milli tónleika Nótunnar bjóða tónlistarnemendur upp á lifandi tónlist í anddyri Hörpu, hljóðfæraverslanir og Epli.is leyfa gestum að skoða og prófa hin ýmsu hljóðfæri, tæki og tól, - allt frá íslenskri fiðlu og langspili til iPads. Boðið verður upp á hljóðfærasmiðju þar sem yngsta kynslóðin getur búið til sín eigin hljóðfæri og tekið með sér heim, nemendur frá Listaháskóla Íslands verða á staðnum sem og Tónlistarsafn Íslands og Samtök Listrænt Ágengra Tónsmiða Umhverfis Reykjavík sem munu grilla slátur o.fl.!
Lesa meira
13. mar. 2012
Föstudaginn 16. mars nk. fer fram doktorsvörn við Uppeldis- og menntunarfræðideild Menntavísindasviðs. Þá ver Þórdís Þórðardóttir doktorsritgerð sína Menningarlæsi - Hlutverk barnaefnis í uppeldi og menntun telpna og drengja í tveimur leikskólum. Athöfnin fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands í Aðalbyggingu og hefst klukkan 13:00.
Lesa meira
13. mar. 2012
Aðalfundur BERNSKUNNAR Íslandsdeildar OMEP - alþjóðlegra samtaka um uppeldi ungra barna verður haldinn laugardaginn 24. mars 2012 kl. 11:00 í leikskólanum Ökrum, Línakri 2, Garðabæ. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf.
Lesa meira
13. mar. 2012
Föstudaginn 16. mars 2012 kl. 13 til 17 verður ráðstefna 3f félags um upplýsingatækni og menntun og Háskólans í Reykjavík haldin, undir heitinu Margt smátt gerir eitt stórt - Upplýsingatækni og nýjungar.
Lesa meira9. mar. 2012
Í tilefni af nýlegri skýrslu um úttekt á fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdragana bankahrunsins 2008 boðar stjórn LSR til fundar með sjóðfélögum. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 14. mars og hefst hann kl. 16:30.
Lesa meira9. mar. 2012
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga, Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar, Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar, Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar, Lífeyrissjóður starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar og Lífeyrissjóður Neskaupstaðar
boða til sameiginlegs sjóðfélagafundar á Grand Hótel við Sigtún þann 13. mars nk. kl. 17:00. Farið verður yfir rekstur og afkomu Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga og lífeyrissjóða í hans rekstri í ljósi nýútkominnar skýrslu Landssamtaka lífeyrissjóða um úttekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008.
Lesa meira9. mar. 2012
Félag dönskukennara stendur fyrir ráðstefnu um dönsku og dönskukennslu föstudaginn 16. mars. Ráðstefnan er haldin í Háskólanum í Reykjavík og stendur frá kl. 14:00-17:30.
Lesa meira
6. mar. 2012
Orlofssjóður KÍ hefur tekið í notkun nýjan bókunarvef sem fékk heitið Frímann. Farið er inn á nýja bókunarvef í gegnum Mínar síður á forsíðu KÍ.
Lesa meira
6. mar. 2012
Hér á landi voru það Menningar- og friðarsamtök kvenna sem minntust dagsins lengst af en undanfarin ár hafa fleiri samtök tekið þátt í að minnast dagsins með sérstakri dagskrá. Kennarasamband Íslands er aðili að tveimur fundum í Reykjavík ásamt öðrum stéttarfélögum og samtökum launafólks í tilefni af deginum.
Lesa meira5. mar. 2012
Föstudaginn og laugardaginn 9. og 10. mars nk. verður haldið námskeið i Garðaskóla undir heitinu
Heimspekileg samræða í leik- og grunnskólum: Fyrstu skrefin. Námskeiðið hefst á fyrirlestri um heimspeki í skólastarfi og er öllum opið. Á dagskránni er síðan verkefnavinna og samræður þátttakenda og verður sérstök áhersla lögð á vinnubrögð sem henta vel í kennslu yngri barna. ATH: uppfærð auglýsing.
Lesa meira
2. mar. 2012
Heimasíðan
Gegneinelti.is hefur verið endurbætt. Meðal annars hefur undirskriftakerfi síðunnar verið einfaldað til muna þannig að mjög einfalt er fyrir alla, jafnt unga sem aldna, að undirrita þjóðarsáttmálann um baráttu gegn einelti.
Lesa meira
2. mar. 2012
Íslandsmót iðn- og verkgreina verður haldið i Háskólanum í Reykjavík 9.-10. mars nk. Íslandsmótið veitir ungu fólki tækifæri til sýna fram á færni sína og kunnáttu í iðn- og verkgreinunum. Tekist er á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipulagshæfileika og fagmennsku.
Lesa meira2. mar. 2012
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins stendur fyrir námskeiði 22. og 23. mars nk. í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Lesa meira
2. mar. 2012
Punktastýrð úthlutun á vikuleigu hefst 28. mars nk., en 16. apríl á flakkaraleigu.
Lesa meira
2. mar. 2012
Skila þarf inn umsóknum í síðasta lagi 16. apríl 2012.
Lesa meira
1. mar. 2012
Í júní bjóða ÍT ferðir upp á einstaka sögu- og menningarferð til Alsír og Marseille, í fylgd Steinunnar Jóhannesdóttur rithöfundar sem skrifaði Reisubók Guðríðar. Ferðin stendur yfir dagana 1.-9. júní og eru örfá sæti laus. Fyrir kennara er boðið upp á skólaheimsókn einn daginn í Algeirsborg. (ath. ekki styrkhæft)
Lesa meira
1. mar. 2012
Félagsmenn athugið! Seinkun verður á opnun nýs Orlofsvefs KÍ. Ef áætlanir standast verður opnað fyrir bókanir kl. 18:00 í kvöld.
Lesa meira1. mar. 2012
Samtök tungumálakennara vilja heiðra kórstjóra/tónmenntakennara fyrir það öfluga starf sem þeir inna af hendi til eflingar erlendra tungumála á Íslandi, með því að kenna og flytja söngva frá öllum heimshornum. Formenn kórfélaga og Tónmenntakennarafélags Íslands - TKÍ, veita viðurkenningunum viðtöku föstudaginn 2. mars kl. 20:00 við hátíðlega athöfn.
Lesa meira1. mar. 2012
Fimmtudaginn 29. mars nk. verður fulltrúafundur FF haldinn á Hvammi, Grand Hótel Reykjavík.
Lesa meira