
30. nóv. 2011
Félag íslenskra sérkennara efnir til fræðsludags mánudaginn 5. desember nk. á Grand Hótel í Reykjavík. Skemmtileg dagskrá og áhugaverðir fyrirlesarar.
Lesa meira30. nóv. 2011
Föstudaginn 2. desember 2011 verður haldin ráðstefna um útinám í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð kl. 10:00-16:30. Ráðstefnan er opin öllum sem starfa við og hafa áhuga á útinámi og útivist, til dæmis þeim er starfa í skólum, í frístundastarfi, hjá félögum og í fyrirtækjum.
Lesa meira29. nóv. 2011
Stjórn Orlofssjóðs hefur upp á síðkastið unnið að því að endurskoða reksturinn og reyna að ná hagstæðari samningum varðandi ýmis liði í rekstri sjóðsins. Ljóst er að eftir mikla uppbyggingu Orlofssjóðs KÍ í Heiðarbyggð og endurbyggingu húsa í Ásabyggð eru skuldir sjóðsins orðnar verulegar en samkvæmt samþykkt á þingi KÍ frá því í vor skal unnið áfram að því á næsta kjörtímabili að greiða skuldir sjóðsins niður.
Lesa meira25. nóv. 2011
Fimmtudaginn 1. desember næstkomandi verður dagur íslenskrar tónlistar haldinn hátíðlegur og í tilefni hans munu allar útvarpsstöðvar landsins spila þrjú íslensk lög samtímis kl. 11:15. Íslendingar geta því sameinast við viðtækin og sungið lög til heiðurs íslenskri tónlist. Markmiðið er að fá sem flesta til að kveikja á útvarpinu kl. 11:15 og syngja með. Börn í skólum, fólk á vinnustöðum og bara allir allstaðar, syngja með.
Lesa meira
23. nóv. 2011
22. nóvember var undirritaður kjarasamningur milli Sigöldu ehf. vegna Leikskólans Aðalþings og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara. Hér er um að ræða fyrsta heildræna kjarasamning sem KÍ/Félag leikskólakennara gerir við sjálfstætt starfandi skóla.
Lesa meira22. nóv. 2011
Málþingið
Nám á Norðurlöndum: Möguleikar og hindranir verður haldið þriðjudaginn 29. nóvember á milli kl. 9:00 og 14:30 í húsnæði Norræna félagsins að Óðinsgötu 7. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir 25. nóvember nk.
Lesa meira
16. nóv. 2011
Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, er nú fagnað í sextánda sinn. Allt frá 1996 hafa skólar landsins og margar aðrar stofnanir og samtök haldið upp á daginn með margvíslegum hætti.
Lesa meira16. nóv. 2011
Velferðarvaktin hefur sent fjárlaga- og velferðarnefnd Alþingis og öllum sveitastjórnum bréf þar sem skorað er viðkomandi að sýna aðgát við gerð fjárhagsáætlana. Í bréfinu er bent á að við hagræðingaraðgerðir verði að hafa í huga að bernskan kemur ekki aftur og hvert ár í lífi barns vegi þungt.
Lesa meira
16. nóv. 2011
Undanfarna mánuði hafa félagsmenn getað sótt um styrki í sjúkra- og endurmenntunarsjóði á „Mínum síðum“ KÍ og farið þaðan á bókunarvef orlofssjóðs. Frá og með 15. nóvember næstkomandi verður bókunarvél orlofssjóðs einungis aðgengileg á „Mínum síðum“. Þetta er gert að kröfu Persónuverndar sem hefur gagnrýnt hversu opin bókunarvélin hefur verið fram að þessu.
Lesa meira
15. nóv. 2011
Kennarasamband Íslands er einn af þeim vinnustöðum sem taka þátt í þróunarverkefni sem nefnist Virkur vinnustaður og er á vegum fyrirtækjasviðs VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs. Verkefnið er til þriggja ára og taka 12 fyrirtæki/stofnanir þátt, en undir þau tilheyra samtals 35 vinnustaðir með tæplega 1600 starfsmenn. Tilgangur verkefnisins er að veita stjórnendum og starfsmönnum fræðslu og ráðgjöf við að móta og innleiða stefnu um velferð, fjarvistir og endurkomu til vinnu.
Lesa meira
15. nóv. 2011
Á fundi stjórnar Orlofssjóðs nýverið, var samþykkt að lækka verð á leigu á salnum Fróða tímabundið eða fram að næstkomandi áramótum. Þetta er gert til að kynna aðstöðuna bæði fyrir vinnustaði og félagsmenn.
Lesa meira
11. nóv. 2011
Dagana 18.-19. nóvember verður haldin ráðstefna í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð - Skriðu undir yfirskriftinni Hvað má læra af rannsóknum á skólastarfi? Ráðstefnan hefst föstudaginn 18. nóvember kl. 14:00.
Lesa meira11. nóv. 2011
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skv. beiðni Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur o.fl. lagt fram á Alþingi
skýrslu um stöðu skólamála.
Lesa meira11. nóv. 2011
Málræktarþing Íslenskrar málnefndar og Mjólkursamsölunnar,
Æska í ólestri - mál okkar allra, verður haldið laugardaginn 12. nóvember í tilefni dags íslenskrar tungu 16. nóvember. Þingið fer fram í Skriðu, sal Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð kl. 11-14. Allir eru velkomnir.
Lesa meira
11. nóv. 2011
Rannsóknarstofa um þroska, mál og læsi vinnur að úttekt á stöðu barna og ungmenna með tal- og málþroskafrávik að beiðni Mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Rannsóknin er gerð að frumkvæði Menntamálanefndar Alþingis.
Lesa meira
9. nóv. 2011
Norræni loftslagsdagurinn verður haldinn hátíðlegur í Norræna húsinu, þann 11. nóvember kl. 15-16:30, en átakið er sameiginlegt verkefni norrænu menntamálaráðherranna. Markmið dagsins er meðal annars að stuðla að þátttöku nemenda í umræðu um loftslagsmál og efla norrænt skólasamstarf á sviði loftslagsmála. Þema loftslagsdagsins í ár er matur og loftslag.
Lesa meira
9. nóv. 2011
Á fundi sínum í Brussel 10. og 11. október sl. ályktuðu Evrópsku kennarasamtökin ETUCE um efnahagskreppuna og nýlega dýpkun hennar. Þar segir meðal annars að yfirvöld í aðildarríkjum Evrópusambandsins og sambandinu sjálfu hafi brugðist of seint og illa við til að lægja öldurnar og hrinda keðjuverkun vaxtar af stað á nýjan leik. Ströng sparnaðarstefnan sem framkvæmdastjórn ESB, Alþjóðabankinn og Seðlabanki Evrópu boða hefur ekki stuðlað að því að draga úr kreppunni og er þar að auki siðferðilega óverjandi.
Lesa meira
9. nóv. 2011
Á morgun, fimmtudaginn 10. nóvember, verður haldið málþing Samtaka félagsmálastjóra í Menningar- og listamiðstöðinni Duus-húsum, Duusgötu 2-8, Reykjanesbæ. Málþingið hefst kl. 13:00 og því lýkur kl. 15:30.
Lesa meira
8. nóv. 2011
Laugardaginn 12. nóvember næstkomandi verður opinn dagur í Listaháskóla Íslands, í húsnæði skólans við Laugarnesveg 91 kl. 11-16. Áhugasömum er boðið að koma í skólann og kynnast starfsemi hans. Þennan dag verða nemendur og kennarar til viðtals og upplýsingagjafar og til sýnis verða inntökumöppur og kynningar á inntökuferli, verkstæðum og aðstöðu skólans.
Lesa meira
7. nóv. 2011
Verkefnisstjórn í aðgerðum gegn einelti stendur fyrir sérstökum degi gegn einelti á morgun, þriðjudaginn 8. nóvember 2011. Verkefnisstjórnin samanstendur af fulltrúum fjármálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis, og er hún skipuð í kjölfarið á útgáfu Greinargerðar um mögulegar aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum sem kom út í júní 2010.
Lesa meira
7. nóv. 2011
Handbókin fyrir félagsdeildir FF, sem kynnt var á fundi með trúnaðarmönnum og formönnum félagsdeilda FF, er nú aðgengileg á vef
ff.ki.is.
Lesa meira3. nóv. 2011
Eflum fræðslu og forvarnir gegn einelti. Í tilefni af umræðu DV nú á haustmánuðum um eineltismál í skólum spyrjum við hvaða tilgangi þjónar sá fréttaflutningur og umræða. Hér er ekki verið að draga úr þeirri staðreynd að fjölmiðlar vekja fólk til umhugsunar um mikilvæga málaflokka en það er vandasamt að tryggja að umfjöllunin verði uppbyggileg. Í framhaldi af fréttum um eineltismál fer því miður oft af stað óvönduð og ómálefnaleg umræða um viðkomandi mál og einstaka skóla á fréttavefjum og bloggsíðum. Því er spurt, er slíkum fréttaflutningi og umræðu ætlað að vekja athygli á og leysa eineltismál í skólum eða bæta á vandann?
Stjórnendur, kennarar og starfsmenn skóla eru bundnir trúnaði um málefni nemenda. Þessi trúnaður ver börn og foreldra þeirra á þann hátt að enginn hefur aðgang að upplýsingum um fjölskylduna hvað varðar hagi, aðbúnað, námsárangur nemenda eða vandamál. Það er mikilvægt að þessi trúnaður sé til staðar. Þegar mál eins og eineltismál koma upp geta skólar ekki greint frá þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til. Trúnaðurinn kemur í veg fyrir að svar þeirra verði annað en að unnið sé með viðkomandi mál miðað við eineltisáætlun skólans sem nær þá bæði til þolenda og gerenda. Stundum gengur þessi vinna vel, stundum tekur hún langan tíma en stundum er leiðin vandfundin. Skólasamfélagið lítur svo á að betra sé að vinna með málefni einstakra nemenda innan skóla eða sveitafélaga fremur en í fjölmiðlum.
Lesa meira
2. nóv. 2011
Félagsmenn athugið! Kennarahúsið verður lokað fimmtudaginn 3. nóvember vegna starfsdags.
Lesa meira
2. nóv. 2011
Símenntun, rannsóknir og ráðgjöf á Menntavísindasviði er fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytisins umboðsaðili fyrir Pestalozzi námskeið Menntamálaskrifstofa Evrópuráðsins. Pestalozzi býður kennurum fjölmörg námskeið og ráðstefnur um fagleg efni sem haldin eru í 50 löndum ráðsins. Námskeiðin spanna öll svið kennslu og skólastarfs en flest fjalla þau um samfélagsgreinar, mannréttindi og tungumál. Þátttaka er takmörkuð en í flestum tilfellum greiðir Evrópuráðið ferðastyrk og gestgjafinn uppihald.
Lesa meira
1. nóv. 2011
Samráðsþing FSL verða nú haldin í fyrsta sinn og verða þau haldin á fjórum stöðum á landinu.
Lesa meira1. nóv. 2011
„Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2012 er boðaður tæplega 370 milljóna króna niðurskurður til framhaldsskólanna eða um 2% að meðaltali á hvern skóla. Þessi niðurskurður samsvarar fjárframlagi til að kosta framhaldsskólanám um 500 nemenda á næsta ári.“ Þetta kemur fram í ályktun stjórnar Félags framhaldsskólakennara um fjárlagafrumvarp 2012 og niðurskurð á fjárveitingum til framhaldsskóla.
Lesa meira