Eftir mánuðum

31. ágú. 2009

Svæðisþing tónlistarskóla standa yfir

Svæðisþing tónlistarskóla standa nú yfir en þau eru haldin á sex stöðum út um land að þessu sinni. Tvö þing eru yfirstaðin þ.e. fyrir tónlistarskóla á Austurlandi og á Vestfjörðum og voru skipuleggjendur mjög ánægðir með hvernig til tókst.
Lesa meira

25. ágú. 2009

Málörvun og lestur

Ráðstefna á Hótel Sögu 10. september kl. 13:00 til 17:00 þar sem fjallað verður um gagnlegar og skemmtilegar aðferðir sem hjálpa leik- og grunnskólabörnum.
Lesa meira

21. ágú. 2009

Skapandi skólastarf - Opnar leiðir í námi og kennslu

Árleg ráðstefna 3f félags um upplýsingatækni og menntun verður haldin í samstarfi við Rannum 2. október 2009. Fyrirlesarar verða bæði erlendir og innlendir aðilar með mikla þekkingu og reynslu á sviði upplýsingatækni og skapandi skólastarfs. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er Dr. Sugata Mitra en hann er prófessor við Newcasle háskóla.
Lesa meira

13. ágú. 2009

Skóli – Nám – Samfélag

Ráðstefna til heiðurs dr. Wolfgang Edelstein áttræðum verður haldin föstudaginn 21. ágúst, kl. 13.00-17.00 í SKRIÐU, Menntavísindasviði Háskóla Íslands.
Lesa meira

12. ágú. 2009

Framhaldsskólanemendur eiga rétt á kennslu í íslensku sem öðru tungumáli samkvæmt nýrri reglugerð

Þann 2. júlí sl. kom út ný reglugerð sem fjallar um rétt nemenda í framhaldsskólum til kennslu í íslensku sem öðru tungumáli. Um er að ræða nemendur sem hafa annað móðurmál en íslensku, eða hafa dvalist langdvölum erlendis og hafa litla kunnáttu í málinu.
Lesa meira

12. ágú. 2009

PISA ráðstefna um árangur í raungreinum 17. og 18. ágúst

Ráðstefnan Northern lights III um niðurstöður PISA 2006 verður haldin á Grand hóteli í Reykjavík dagana 17. og 18. ágúst nk. Að þessu sinni er sjónum beint að árangri nemenda í raungreinum við lok skyldunáms.
Lesa meira

4. ágú. 2009

Kennarahúsið opnar eftir sumarleyfi

Skrifstofur Kennarasambandsins opnuðu í dag eftir sumarlokun. Hlökkum til að sjá ykkur kæru félagsmenn og vonum að allir hafi notið sumarsins!
Lesa meira




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli