Eftir mánuðum

30. apr. 2009

1. maí Reykjavík - ÁFRAM KENNARAR!

Mætum öll í kröfugönguna 1. maí! Safnast verður saman á Hlemmi kl. 13 en gangan leggur af stað kl. 13:30.
Lesa meira

30. apr. 2009

Áfram kennarar!

Félagsmenn KÍ hafa fengið sent bréf frá Kennarasambandinu í tilefni af baráttudeginum 1. maí. Um leið og hvatt er til samstöðu með öðru launafólki krefst Kennarasambandið jafnframt rösklegrar framgöngu stjórnvalda og bestu mögulegu ákvarðana launa og réttinda miðað við erfðiðar aðstæður. Á þenslu- og uppgangsárunum á Íslandi var furðu litlu fé varið til þess að efla menntun og skólastarf. Þetta hefnir sín þegar kreppir að í rekstri hins opinbera. Kennarasambandið þarf bæði að hjálpa til við að finna leiðir út úr vandanum og standa gegn óskynsamlegum niðurskurði fjármuna til skólastarfs og menntunar sem leiðir til vanlíðunar nemenda og stöðnunar í menntun og þekkingu.
Lesa meira

28. apr. 2009

Nám í áfallameðferð

Félagsmenn hafa beðið okkur um að segja frá nýrri námsleið í Færeyjum. Námið veitir þjálfun í n.k. heildrænni, líkamsmiðaðri djúpsálarmeðferð og markmið eru meðal annars að útskrifa fagfólk í áfallahjálp. Leiðtogi námsins er Rigmor Hansen og hér er útdráttur úr námslýsingu hennar (á dönsku). Allar nánari upplýsingar eru á www.difkp.dk.
Lesa meira

28. apr. 2009

Aðalfundur Félags enskukennara 2. maí og sumarnámskeið 10.-12. júní

Aðalfundur félags enskukennara verður haldinn laugardaginn 2. maí nk. á veitingastaðnum GLÓ (Listhúsinu) við Engjateig. Húsið opnar kl. 10 en fundur hefst kl 10:30. Þá verður sumarnámskeiðið “Developing Critical Thinking through Culture” haldið dagana 10.-12. júní nk.
Lesa meira

27. apr. 2009

Gul vinnuumhverfisbóla - Vissir þú að ...

Vinnuumhverfisbóla maímánaðar er gul og fjallar um ágreining á vinnustað.
Lesa meira

27. apr. 2009

Ráðstefna 8. og 9. maí um íslenska þjóðfélagsfræði

Háskólinn á Akureyri stendur fyrir ráðstefnu 8. og 9. maí nk. Á ráðstefnunni verða kynntar fjölbreytilegar rannsóknir á íslensku þjóðfélagi frá sjónarhóli félagsfræði, mannfræði, stjórnmálafræði og skyldra greina. Ráðstefnunni er ætlað að skapa umræðuvettvang þjóðfélagsfræðinga sem starfa í háskólum, framhaldsskólum og við rannsóknir á öðrum vettvangi. Jafnframt mun ráðstefnan gefa nemendum á háskóla- og framhaldsskólastigi kost á því að kynnast og taka þátt í fræðastarfi þjóðfélagsfræðinnar.
Lesa meira

20. apr. 2009

Ný lög um náms- og starfsráðgjafa

Ný lög um náms- og starfsráðgjafa voru samþykkt á Alþingi 30. mars sl.
Lesa meira

20. apr. 2009

Að virða friðarskyldu á gildistíma kjarasamninga

Á sameiginlegum fundi stjórnar og kjararáðs KÍ þann 17. apríl sl. voru til umræðu tilraunir vinnuveitenda til að lækka laun starfsfólks skólanna. Fundarmenn lýstu yfir áhyggjum sínum af því að fólki væri í einhverjum tilfellum stillt upp við vegg og þvingað til að samþykkja lækkun dagvinnulauna. Í þessu sambandi er mikilvægt að hafa í huga að frjálsir samningar um launaskerðingu gegn samsvarandi minnkun vinnuskyldu eru í samræmi við lög og venjur og eru því á ábyrgð hvers launamanns og vinnuveitenda hans. Allar þvingandi aðgerðir af hendi vinnuveitenda sem fela í sér skerðingu á taxtalaunum með því að minnka stöðuhlutfall eða með því að þvinga fólk í launalaust leyfi eru að mati KÍ brot á friðarskyldu og því um lögbrot að ræða.
Lesa meira

15. apr. 2009

Sálfræðiráðgjöf

Kennarasamband Íslands minnir félagsmenn sína á áður auglýsta símaráðgjöf sálfræðinga. Ráðgjöfin verður í boði út maí.
Lesa meira

14. apr. 2009

Kennarahúsið lokað frá kl. 12 í dag 14. apríl

Kennarahúsið verður lokað frá kl. 12 í dag vegna jarðarfarar. Skrifstofan opnar aftur klukkan 9 í fyrramálið.
Lesa meira

14. apr. 2009

LSR og fjármálakreppan - Sjóðfélagafundur

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins boðar til fundar með sjóðfélögum, miðvikudaginn 15. apríl. Fundurinn verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica hóteli, Suðurlandsbraut 2 og hefst hann kl. 16.30.
Lesa meira

2. apr. 2009

Sigurlína er látin

Elskuleg vinkona okkar og samstarfsfélagi, Sigurlína Kristjánsdóttir, eða Sigurlína á símanum, eins og svo margir félagsmenn þekktu hana, lést aðfararnótt fimmtudagsins 2. apríl. Blessuð sé minning hennar.
Lesa meira

1. apr. 2009

Styrkur eldra fólks á erfiðum tímum

Ráðstefna í Salnum í Kópavogi 3. apríl nk., kl. 13.
Lesa meira




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli