Eftir mánuðum

28. jan. 2009

Kennarinn og kreppan - fundir í þessari viku

Í fundaröð Kennarasambandsins „Kennarinn og kreppan – hlutverk stéttarfélaga á niðurskurðartímum verða fundir í Hafnarfirði og Reykjanesbæ í dag en á morgun, 29. janúar, verður fundur á Sauðárkróki. Fundirnir eru fyrir félagsmenn í öllum aðildarfélögum KÍ og eru mjög gagnlegir.
Lesa meira

23. jan. 2009

Ríkisstjórnin hefur aldrei komið að borðinu og forsendur eru brostnar

Að mati Kennarasambandsins eru forsendur samstöðu um kjaramál brostnar vegna þess að ríkisstjórn hefur ekki komið að samráði samtaka launamanna og vinnuveitenda. Hins vegar leggur KÍ áherslu á að samstaða launamanna haldi áfram – sjá nánar í ályktun hér að neðan sem samþykkt var af stjórn KÍ og kjararáði sambandsins í gær:
Lesa meira

22. jan. 2009

Netútsending frá fundinum í dag, slóðin er mms://straumur.khi.is/sjonvarp

Félagsmenn! Mætið á fundina í fundaröðinni „Kennarinn og kreppan“ sem nú stendur yfir. Næsti fundur er í Skriðu, húsi KHÍ við Stakkahlíð í Reykjavík í dag kl. 17:15. Vakin er sérstök athygli á að hægt verður að fylgjast með fundinum í Skriðu fimmtudaginn 22. janúar kl. 17:15 í gegnum netið á slóðinni mms://straumur.khi.is/sjonvarp.
Lesa meira

22. jan. 2009

GLÆRUR frá fundaröð KÍ „Kennarinn og kreppan“

Frummælendur á janúarfundum Kennarasambandsins hafa tekið saman talsvert efni á glærum.
Lesa meira

22. jan. 2009

Fyrirlestrarröð Rannsóknastofu í vinnuvernd

Rannsóknastofa í vinnuvernd stendur fyrir fyrirlestrum á tveggja vikna fresti á haust- og vormisseri. Fyrirlestrar vorannar verða í Háskóla Íslands, Odda, stofu 201, kl. 12.00 - 13.00. Fyrsti fyrirlesturinn er 23. janúar nk. en þá fjallar Karl Sigurðsson forstöðumaður vinnumálasviðs hjá Vinnumálastofnun um stöðu og horfur á vinnumarkaðnum.
Lesa meira

21. jan. 2009

Kennarinn og kreppan - fundur á Egilsstöðum í dag og í Reykjavík og á Selfossi á morgun

Fundurinn í Reykjavík verður í Skriðu í KHÍ en hann verður einnig sendur út í gegnum netið.
Lesa meira

19. jan. 2009

Kennarinn og kreppan - fundir í þessari viku

Félagsmenn KÍ! Í þessari viku verða fundir á Egilsstöðum, í Reykjavík og á Selfossi í fundaröð Kennarasambandsins „Kennarinn og kreppan – hlutverk stéttarfélaga á niðurskurðartímum. Fundirnir eru fyrir félagsmenn í öllum aðildarfélögum KÍ og eru mjög gagnlegir.
Lesa meira

16. jan. 2009

Námskeið um gerð umsókna um yfirfærsluverkefni innan Leonardó starfsmenntaáætlunar ESB

Mánudaginn 19. janúar nk. verður haldið námskeið um gerð umsókna um yfirfærsluverkefni innan Leonardó starfsmenntaáætlunar ESB. Umsóknarfrestur vegna yfirfærsluverkefna er til 27. febrúar 2009.
Lesa meira

15. jan. 2009

Kennarinn og kreppan

HLUTVERK STÉTTARFÉLAGA Á NIÐURSKURÐARTÍMUM - FUNDARÖÐ KÍ Í JANÚAR 2009. Félagsmenn KÍ! Mætið á fundina, fáið gagnlegar upplýsingar og takið þátt í mótunarstarfi í ykkar stéttarfélagi.
Lesa meira

15. jan. 2009

Fundur á Akureyri í dag og á Egilsstöðum, Reykjavík og Selfossi í næstu viku

Upplýsinga- og umræðufundum KÍ er fram haldið síðdegis í dag en þá er fundað á Akureyri. Kennarar, námsráðgjafar og stjórnendur í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og tónlistarskólum á Norðurlandi, sem og aðrir félagsmenn KÍ, eru eindregið hvattir til að mæta í Brekkuskóla kl. 17:15. Þetta eru innihaldsríkir fundir um málefni sem koma öllum félagsmönnum Kennarasambandsins við.
Lesa meira

14. jan. 2009

Fundur á Ísafirði í dag og annar á Akureyri á morgun

Kennarar, námsráðgjafar og stjórnendur í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og tónlistarskólum, sem og aðrir félagsmenn KÍ, eru hvattir til að mæta á janúarfundi Kennarasambandsins um hlutverk KÍ í kreppuástandi, um kreppuna sjálfa og tilurð hennar og um hugsanlegar afleiðingar fyrir félagsmenn. Þetta eru innihaldsríkir uppýsinga- og umræðufundir um málefni sem koma öllum félagsmönnum við. Í dag er fundað í Grunnskóla Ísafjarðar kl. 17:15 og á morgun í Brekkuskóla á Akureyri kl. 17:15.
Lesa meira

14. jan. 2009

Fyrstu fundir í janúarfundaröð Kennarasambandsins voru í gær í Reykjavík og Borgarnesi

„Launataxtar kennara og skólastjórnenda eru mikilvæg réttindi eins og kemur berlega í ljós í núverandi ástandi. Félagsmenn í stéttarfélögum þar sem taxtar voru mjög lágir og áhersla lögð á einstaklingssamninga líða fyrir það í kreppunni. Auðvelt er að lækka laun hjá einstaklingi sem er til dæmis með taxtalaun upp á 200 þúsund en hefur samið einstaklingslega um 400 þúsund krónur. Þetta er ekki hægt hjá félagsmönnum Kennarasambandsins.“ Þetta kom meðal annars fram í máli Eiríks Jónssonar formanns KÍ á fyrsta fundinum í fundaröð Kennarasambandsins „Kennarinn og kreppan – hlutverk stéttarfélaga á niðurskurðartímum“ sem haldinn var í Skriðu v/Stakkahlíð í Reykjavík í gær.
Lesa meira

13. jan. 2009

Fyrstu tveir fundirnir eru í dag - mætum öll!

Fyrstu fundirnir í fundaröð KÍ, Kennarinn og kreppan - hlutverk stéttarfélaga á niðurskurðartímum, verða haldnir í dag. Kl. 17:15 hefst fundur í Skriðu v/Stakkahlíð í Reykjavík og kl. 20:00 hefst fundur í Menntaskóla Borgarfjarðar að Borgarbraut 54, Borgarnesi. Mætum öll!
Lesa meira

12. jan. 2009

Jafnréttisþing 16. janúar 2009

Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð boða til jafnréttisþings 16. janúar nk. að Hótel Nordica. Meðal annars verður fjallað um jafnréttisstarf í skólum á þinginu. Boðun þingsins er í samræmi við nýsamþykkt lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
Lesa meira

7. jan. 2009

„Skóli“ látinn víkja í Yorkshire

Splunkunýr skóli í Sheffield í Yorkshire, þar sem skólastarf hófst í fyrradag, verður ekki titlaður skóli heldur staður til að læra (a place for learning). Þingmaður Mið-Sheffield, Richard Caborn, gagnrýnir breytt orðalag og spyr hver ástæðan sé fyrir því að aðstandendur Watercliffe Meadow skólans velji að undanskilja skólahugtakið. Hann segir jafnframt að málið hafi ekki verið rætt sem skyldi. Að sögn Lindu Kingdon skólastjóra er orðið skóli neikvætt í huga margra foreldra og nemenda. Hinn nýi lærdómsstaður á að vera „staður fyrir fjölskylduna til að læra, þangað sem allir geta komið“, segir Linda.
Lesa meira




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli