29. sep. 2008
Frá og með 110. fundi verða fundargerðir stjórnar Kennarasambands Íslands birtar á heimasíðu sambandsins.
Lesa meira29. sep. 2008
Verkefna- og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands auglýsir eftir umsóknum félagsmanna í grunnskólum um námslaun vegna framhaldsnáms á skólaárinu 2009-2010. UMSÓKNIR ÞURFA AÐ BERAST FYRIR 1. OKTÓBER!
Lesa meira
29. sep. 2008
Í tilefni af aldarafmæli skólahalds í Borgarnesi haustið 2008 og 50 ára afmælis skólahalds að Varmalandi 2005 verður gefin út saga barna- og unglingafræðslu í Mýrasýslu, 1880-2007.
Lesa meira
24. sep. 2008
Í tilefni af evrópska tungumáladeginum 26. september efna Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og STÍL, samtök tungumálakennara á Íslandi, til hátíðarhalda. Hátíðin verður sett kl. 14:30 og haldin í stofu 101 á Háskólatorgi.
Lesa meira22. sep. 2008
Þann 9. september sl. gaf Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) út ritið Education at a glance 2008: OECD Indicators. Í ritinu er meðal annars fjallað um útgjöld til menntunar og stjórnvöld þeirra ríkja þar sem um útgjaldaaukningu er að ræða halda henni að sjálfsögðu á lofti. Minna er talað um ýmislegt annað sem fram kemur í ritinu og er ekki til að hrósa sér af svo sem laun kennara.
Lesa meira18. sep. 2008
Geta eldri starfsmenn verið lykillinn að velgengni fyrirtækja? Málþingið verður haldið í Ketilshúsi á Akureyri fimmtudaginn 25. september 2008, kl. 13:00-16:00.
Lesa meira18. sep. 2008
Skólastjórum og trúnaðarmönnum í leikskólum var nýlega sendur spurningalisti þar sem þeir eru beðnir um að svara í sameiningu spurningum er varða framkvæmdir bókana skv. kjarasamningi. Til að niðurstöður verði marktækar er mikilvægt að svörun verði sem best og eru allir hvattir til að svara spurningalistanum. Spurningalistar um TV einingar verða einnig sendir til sveitarfélaganna. Miðlun ehf sér um framkvæmd könnunarinnar.
Lesa meira17. sep. 2008
Föstudaginn 19. september halda FG og FL málþing um nám barna á mörkum leik- og grunnskóla. Málþingið verður haldið í húsnæði Kennaraháskólans, kl. 13:00 – 16:00. Svo fleiri geti notið málþingsins heldur en verða á staðnum verður það sent út í vefsjónvarpi.
Lesa meira15. sep. 2008
Félag grunnskólakennara og Félag leikskólakennara halda málþing um nám barna á mörkum leik- og grunnskóla í Kennaraháskóla Íslands föstudaginn 19. september, kl. 13:00 – 16:00. Aðalfyrirlesari verður dr. Gerður G. Óskarsdóttir, fyrirverandi fræðslustjóri.
Lesa meira
12. sep. 2008
Boardmaker forritið er myndrænn gagnagrunnur sem hægt er að nota til að búa til margvíslegar skipulags- og samskiptatöflur og verkefni. Á Power Point námskeiðinu verður farið yfir hvernig hægt er að nota forritið á nýja vegu sem verkfæri í þjálfun og kennslu barna og einstaklinga sem þurfa á sérstuðningi að halda.
Lesa meira
11. sep. 2008
Um er að ræða eins árs þverfaglegt, hagnýtt nám fyrir háskólamenntað starfsfólk menntakerfisins. ENN ERU NOKKUR PLÁSS LAUS!
Lesa meira
9. sep. 2008
Dagana 10. til 11. október 2008 verða námstefna og aðalfundur Skólastjórafélags Íslands haldin í Brekkuskóla á Akureyri.
Lesa meira9. sep. 2008
Á þinginu munu innlendir og erlendir sérfræðingar fjalla um stefnu í menntamálum og framkvæmd hennar. Í fjölbreyttum málstofum verður m.a. fjallað um menntun kennara, framhaldsskóla framtíðarinnar og tengsl milli skólastiga.
Lesa meira4. sep. 2008
Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 2,6% hærri á öðrum ársfjórðungi 2008 en á fyrsta fjórðungi ársins á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 3,1% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna aðeins um 1,6%.
Lesa meira4. sep. 2008
Ráðstefnan er haldin 18. september í húsakynnum Háskólans í Reykjavík, Ofanleiti 2 í tengslum við Evrópuverkefnin „Heil og sæl í vinnunni“ og Healthy Together. Vinnueftirlitið, Lýðheilsustöð og Háskólinn í Reykjavík standa að henni. Ráðstefnan mun fara fram á ensku fyrir hádegi en íslensku eftir hádegi.
Lesa meira4. sep. 2008
Áströlsku gestirnir Dr. Robyn Ewing og Dr. David Smith flytja erindið Effective university - school partnerships and the role of the academic partner í Skriðu, fyrirlestrarsal í húsnæði menntavísindasviðs við Stakkahlíð, 16. september nk. kl. 15.00-16.00.
Lesa meira4. sep. 2008
Þann 26.–27. september n.k. verður haldin ráðstefna á Akureyri á vegum allra skólastiga. Tilgangur ráðstefnunnar er að stuðla að samræðu kennara og stjórnenda af öllum skólastigum um nýja lagasetningu og tækifæri henni tengdri.
Lesa meira