Eftir mánuðum

29. ágú. 2008

Fleiri konur en karlar við kennslu í framhaldsskólum

Konur eru nú fleiri en karlar meðal starfsmanna í framhaldsskólum, hvort heldur eru taldir allir starfsmenn eða einungis starfsmenn við kennslu. Skólaárið 2007-2008 voru konur 57,7% allra starfsmanna í framhaldsskólum og 52,0% starfsmanna við kennslu.
Lesa meira

22. ágú. 2008

ÁFRAM ÍSLAND!

Skrifstofur Kennarasambands Íslands eru lokaðar milli 12 og 14 í dag, föstudaginn 22. ágúst, vegna landsleiks í handbolta á ólympíuleikum.
Lesa meira

21. ágú. 2008

Veðurspá á ki.is

Glöggir lesendur ki.is síðunnar hafa efalaust tekið eftir Íslandskortinu vinstra megin neðarlega á síðunni.
Lesa meira

21. ágú. 2008

Horft til framtíðar!

Málstofa um fjarkennslu/fjarnám og framtíð.
Lesa meira

21. ágú. 2008

Menningarnótt í Miðbæjarskólanum

Það er leikur að læra - Opið hús og skemmtidagskrá í Miðbæjarskólanum á Menningarnótt.
Lesa meira

20. ágú. 2008

Samspil verðbólgu og launa

Verðbólga er nú meiri hér á landi en hún hefur verið um langt árabil. Þrátt fyrir að samið hafi verið um nokkrar launahækkanir í kjarasamningum kennara í grunn- og framhaldsskólum í vor er ljóst að launin gera ekki betur en að halda í við verðbólguna á samningstímanum.
Lesa meira

20. ágú. 2008

Tengslaráðstefna í Gdansk 1. - 4. október 2008

Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins auglýsir eftir þátttakendum á tengslaráðstefnu í Gdansk í Póllandi dagana 1. – 4. október 2008. Ráðstefnan, sem ber yfirskriftina Byggjum brýr – samstarf milli Íslands, Noregs og Póllands, hefur það markmið að fólk sem starfar innan menntageirans í löndunum þremur leiði saman hesta sína og þrói með sér hugmyndir að verkefnum sem gætu hlotið styrk úr Þróunarsjóði EFTA.
Lesa meira

20. ágú. 2008

Framsæknar leiðir í menntun og fræðslu

Dagana 16.-19. september og 21.-24. október verður haldið samnorrænt tilraunanámskeið, annars vegar í Finnlandi og hins vegnar í Danmörku.
Lesa meira

20. ágú. 2008

ADHD ráðstefna 25. og 26. september

ADHD samtökin eru til stuðnings börnum og fullorðnum með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir, sem og fjölskyldum þeirra. Í tilefni af 20 ára afmæli samtakanna á Íslandi verður haldin ráðstefna um ADHD 25. og 26. september 2008 í samstarfi við fjölda aðila.
Lesa meira

15. ágú. 2008

Kennsla í fjölskyldumeðferð/ráðgjöf

Fyrirhugað er að hefja kennslu í fjölskyldumeðferð/ráðgjöf í haust og er námið ætlað fólki með starfsmenntun á háskólastigi á mennta-, félags- og heilbrigðissviði. Kennarar frá "The Kempler Institute of Scandinavia" munu annast kennslu.
Lesa meira

15. ágú. 2008

Hæstiréttur staðfestir líflátsdóm yfir kennara

Farzad Kamangar, 33 ára íranskur kennari, hefur verið dæmdur dauða, ásakaður um hryðjuverk. Hann er sagður tengjast PKK, verkamannaflokki Kúrdistan. Lögfræðingur Farzads fékk ekki að verja hann þegar dómurinn var staðfestur fyrir hæstarétti, sjálfur fékk Farzad ekki að taka til máls meðan á réttarhöldum stóð og dómari tók sér fimm mínútur til að fella dóminn. Alþjóðasamband kennara, Education International, hefur barist fyrir því að fá dóminum hnekkt og að Farzad, ásamt öðrum meðlimum stéttarfélaga sem sitja í fangelsi fyrir aðgerðastefnu sína, séu tryggð sanngjörn réttarhöld.
Lesa meira

15. ágú. 2008

Tilkynning frá Félagi leikskólakennara og RannUng

Ráðstefna 1. desember í húsnæði Menntavísindasviðs í Stakkahlíð.
Lesa meira

12. ágú. 2008

Lenging kennaramenntunar vekur athygli í Danmörku

Ítarleg og áhugaverð frétt um nýju kennaramenntunarlögin var birt á forsíðu Folkeskolen í gær. Blaðamaðurinn Louise Knuth Pedersen ræðir þar meðal annars við Ingibjörgu Kristleifsdóttur varaformann FL og Jóhannes Þór Skúlason stjórnarmann í FG um þýðingu þess að færa menntun á leik-, grunn- og framhaldsskólakennara á meistarastig.
Lesa meira

12. ágú. 2008

Umræður á málþingi um kennaramenntun

Málþing um kennaramenntun á tímamótum var haldið í Kennaraháskóla Íslands þann 29. maí sl. Á málþinginu var rætt um þróun kennarastarfsins í ljósi samfélagsbreytinga og menntun kennara til framtíðar. Meginmarkmiðið var að fá fram sjónarmið hagsmunaaðila leik-, grunn- og framhaldsskóla um áherslur í kennaranámi út frá þörfum hvers skólastigs. Málþingsgestir unnu í sex starfshópum þar sem fjallað var um kennaramenntun út frá jafnmörgum sjónarhornum.
Lesa meira

8. ágú. 2008

Kennarar ganga um landið

Gunnlaugur B. Ólafsson segir á bloggsíðu sinni, gbo.blog.is, frá skemmtilegum gönguferðum með kennurum um Stafafell í Lóni, en Gunnlaugur hefur séð um að skipuleggja þessar ferðir sem farnar eru í samvinnu við Kennarasambandið.
Lesa meira

5. ágú. 2008

Skrifstofa Kennarasambandsins opnar eftir sumarlokun

Skrifstofa KÍ opnaði á ný í morgun klukkan átta að aflokinni þriggja vikna sumarlokun. Þjónustutími KÍ er frá kl. 8-16 alla virka daga.
Lesa meira




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli