30. jún. 2008
Nýir skólastjórar hafa verið ráðnir við leikskólana Klambra, Ösp, Heiðarborg og Holtaborg.
Lesa meira
30. jún. 2008
Þann 26. júní sl. var opnað nýtt orlofshús í Heiðarbyggð við Flúðir. Húsið er 99m² og er teiknað af Albínu Thordarson arkitekt. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, tvö með hjónarúmi auk barnarúms og tvö herbergi með fjórum kojum. Stofa er vel búin húsmunum með heimabíói og flatskjá með RÚV, Stöð 2 og SÝN. Húsin í Heiðarbyggð eru með þráðlausu netsambandi.
Lesa meira
26. jún. 2008
Guðmundur Guðlaugsson er formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum og áfangastjóri í Borgarholtsskóla. Hann kom við í Kennarahúsinu í morgun til að sinna ýmsum erindum og við fengum að smella af honum mynd á mótorfáknum sínum, Kawasaki Vulcan, sem hann keypti í gegnum eBay.
Lesa meira
26. jún. 2008
Kennarar sitja ekki auðum höndum yfir sumartímann og Lilja Magnúsdóttir íslenskukennari við Menntaskólann í Kópavogi gerði sér lítið fyrir og hreppti Gaddakylfuna í gær fyrir glæpasögu sína „Svikarinn“. Gaddakylfuna hlýtur sigurvegarinn í árlegri glæpasögusamkeppni Mannlífs og Hins íslenska glæpafélags. Í öðru sæti voru Valur Grettisson og Hanna Ruth Ólafsdóttir með söguna „Dýragarðurinn“ og í því þriðja Hilmar Örn Óskarsson og saga hans „Eldur“. Í nýjasta tölublaði Mannlífs er viðtal við Lilju og gefin hefur verið út bók með verðlaunasögunum og ellefu öðrum sögum sem þóttu bera af í keppninni. Í dómnefnd sátu Eiríkur Brynjólfsson kennari og foringi Hins íslenska glæpafélags, Helga Vala Helgadóttir og Ragnheiður Gyða Jónsdóttir.
Lesa meira
25. jún. 2008
Á vefnum edweek.org er spjallað reglulega um kennslu og skólamál. Í dag verður rætt um það hvort börn og ungt fólk þurfi meiri stuðning en áður fyrr til þess að marka sér stefnu í lífinu. Vafra ungmenni á milli skóla og vinnustaða svipað og þau væru á Netinu, stefnulaust og með hálfum hug? Fer vonleysi og tilfinning fyrir tilgangsleysi vaxandi? Hvað geta kennarar gert?
Lesa meira
24. jún. 2008
Alþjóðleg ráðstefna í Reykjavík 11.-13. ágúst 2008.
Lesa meira
24. jún. 2008
Alþjóðasamtök kennara (EI), Alþjóðasamband starfsfólks í almannaþjónustu (PSI) og hjálparsamtökin Oxfam ákölluðu í gær leiðtoga heimsins um að fjármagna menntun og heilsugæslu fyrir alla. Fjármununum á að verja til að mennta, þjálfa og ráða til starfa tugi milljóna kennara og starfsfólks í heilsugæslu. Þennan fjölda vantar til að íbúar heimsins njóti þeirra grundvallarmannréttinda að hafa aðgang að menntun og heilsugæslu.
Lesa meira
24. jún. 2008
Á sama tíma og framhaldsskólakennarar funda um nýundirritaða kjarasamninga sækja nemendur um skólavist í framhaldskólum landsins. Innritun er nú lokið og að þessu sinni sóttu um 4.426 nemendur úr 10. bekk grunnskóla um skólavist á haustönn 2008.
Lesa meira
23. jún. 2008
Kynningarfundir um nýtt samkomulag KÍ/framhaldsskóla og SNR f.h. fjármálaráðherra um breytingar og framlengingu á kjarasamningi KÍ fyrir framhaldsskóla verða haldnir 24.,25. og 26. júní.
Lesa meira
18. jún. 2008
Að kvöldi 16. júní 2008 var undirritað samkomulag milli Kennarasambands Íslands og samninganefndar ríkisins f.h. fjármálaráðherra um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðila með fyrirvara um samþykki félagsmanna KÍ í ríkisreknum framhaldsskólum.
Lesa meira
14. jún. 2008
Skólinn sameinast HÍ 1. júlí næst komandi og til verður nýtt fjögurra deilda menntavísindasvið. Áfram kennt í húsnæði KHÍ við Stakkahlíð fyrstu árin.
Lesa meira
11. jún. 2008
Bréf frá menntamálaráðherra.
Lesa meira
10. jún. 2008
Í kvöldfréttum RÚV þann 9. júní 2008 var fjallað um launagreiðslur til fyrrverandi formanns og varaformanns Orlofssjóðs KÍ. Nauðsynlegt er að leiðrétta rangfærslur sem fram komu í fréttaflutningnum og hafa formaður og varaformaður KÍ tekið saman greinargerð af því tilefni.
Lesa meira9. jún. 2008
Félag framhaldsskólakennara hélt fund með formönnum félagsdeilda og trúnaðarmönnum í öllum framhaldsskólum landsins 2. júní s.l. Fundarefnið var alvarleg staða í samningamálum.
Lesa meira5. jún. 2008
Kennaraháskólinn heldur á þessu ári upp á 100 ára afmæli sitt. Málþingið og ráðstefnan sem hér kynnt eru þættir í röð viðburða í tilefni af afmælisárinu.
Lesa meira4. jún. 2008
Haldið verður upp á aldarafmæli Kennaraháskólans í Borgarleikhúsinu nk. laugardag. Hátíðin hefst klukkan tvö síðdegis. Allir félagsmenn KÍ eru boðnir velkomnir á hátíðina meðan húsrúm leyfir.
Lesa meira3. jún. 2008
Markmið sjóðsins er að styrkja rannsóknir á sviði sérkennslu, blöndunar fatlaðra og ófatlaðra barna og boðskipta. Umsóknir þurfa að berast stjórn sjóðsins fyrir 1. júlí.
Lesa meira3. jún. 2008
Formenn félagsdeilda FF og trúnaðarmenn í framhaldsskólum ályktuðu um stöðuna í samningaviðræðum á fundi sínum í gær. Formennirnir og trúnaðarmennirnir átöldu stjórnvöld harðlega og í ályktuninni sem samþykkt var á fundinum er lagt fast að ráðherrum menntamála og fjármála að taka höndum saman um að finna ásættanlega niðurstöðu um nýjan kjarasamning framhaldsskóla hið allra fyrsta.
Lesa meira