Siðaráð

Þingsamþykkt frá 4. þingi KÍ um stofnun Siðaráðs

Siðaráð og kynning á siðareglum

Fjórða þing KÍ samþykkir að stofna Siðaráð um siðareglur kennara. Stjórn KÍ er falið að móta tillögur um hvernig skipað er í ráðið og hve margir sitji í því og hversu lengi. Hlutverk siðaráðsins er að:

          a.  Auka þekkingu um siðfræði og félagsleg álitamál.
          b.  Koma á og viðhalda umræðum um siðareglur.
          c.  Móta sameiginlegan skilning á siðareglum.
          d.  Vinna með stjórn og ráðum að því að kynna viðhorf stéttarinnar til faglegra álitamála.
          e.  Vinna að endurskoðun og útfærslum á siðareglum kennara.
          f.  Vera stjórn KÍ til ráðuneytis um álitamál sem varða siðareglur sambandsins.

Útfærsla stjórnar KÍ á samþykkt 4. þings KÍ 2008 um Siðaráð

  • Siðaráð er skipað þremur einstaklingum.
  • Lögfræðingur KÍ starfar með Siðaráði.
  • Stjórn KÍ skipar Siðaráð.
  • Siðaráð skiptir með sér verkum.
  • Kjörtímabil Siðaráðs er milli reglulegra fulltrúaþinga.

Í Siðaráði eru:


Atli Vilhelm Harðarson
formaður Siðaráðs
FF


Erna Guðmundsdóttir
 
Lögfræðingur KÍ og BHM 


Jóhannes Þór Skúlason
 
FG


Linda Ósk Sigurðardóttir
ritari Siðaráðs
FL

Einnig starfar varaformaður Kennarasambands Íslands, Elna Katrín Jónsdóttir, með Siðaráðinu.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli