Skólamálaráð

Um skólamálaráð er fjallað í 30. grein laga KÍ. Þar segir:

Skólamálanefndir aðildarfélaga mynda skólamálaráð ásamt formanni / varaformanni KÍ sem jafnframt er formaður skólamálaráðs. Skólamálaráð heldur a.m.k. einn fund á ári. Formenn skólamálanefnda aðildarfélaga og formaður skólamálaráðs mynda framkvæmdastjórn.

Hlutverk skólamálaráðs er:

  1. Að fjalla um uppeldis- og skólamál á hverjum tíma og álykta um þau til stjórnar KÍ,
  2. að vera stjórn til ráðuneytis um stefnumörkun á hverjum tíma,
  3. að fara með mál sem tengjast faglegri menntun félagsmanna,
  4. að annast tengsl við fagfélög og halda fundi með þeim eftir þörfum,
  5. að undirbúa í samráði við stjórn KÍ ráðstefnur, fræðslufundi og námskeið um skóla- og menntamál eftir því sem við á hverjum tíma,
  6. að fjalla um og túlka skólastefnu KÍ og gera tillögur um framkvæmd stefnunnar og markmið.

Allur kostnaður vegna skólamálaráðs KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli