Vissir þú að ...

... að röddin er atvinnutæki kennara? Hún er tæki þeirra til að miðla fræðslu til nemenda og halda aga.

Góð og heilbrigð rödd er áheyrileg og kemur töluðu máli vel til skila. En það er ýmislegt sem getur haft neikvæð áhrif á rödd kennarans:

  • Krafa um að tala lengi.
  • Fjarlægð milli kennara og nemenda.
  • Mikill hávaði í umhverfinu.
  • Slæm loftgæði í kennslustofu.
  • Streita.
  • Skortur á raddþjálfun.

Samkvæmt könnunum er talið að talsverður hluti kennara þjáist af ýmsum álagseinkennum á röddina, svo sem þurrki, ertingu, sviða, hæsi án kvefs, ræskingaþörf, raddbresti og raddþreytu. Þeir eru líka líklegastir til að leita til læknis vegna raddvandamála og óþæginda þeim tengdum.

Það er því mikilvægt fyrir kennara að kynna sér hvernig röddin virkar og hvað hefur áhrif á hana, hvernig sé best að beita henni til að það sem sagt er skili sér til nemendanna án þess að það bitni á raddheilsu kennarans.

Meðal úrbóta hefur verið bent á:

  • að nota magnarakerfi,
  • að draga úr hávaða - t.d. setja einangrun á snertifleti húsgagna og einangrun í loft og á veggi,
  • að bæta inniloft – t.d. hafa opna glugga eins og hægt er og hafa eftirlit með loftræstikerfum,
  • að fá kennslu í raddbeitingu.

Frekari upplýsingar

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

3. maí 2010

Vissir þú að ...

... röddin er atvinnutæki kennara?
Lesa meira

24. mar. 2010

Vissir þú að ...

... hávaðamælingar í skólum, leikskólum, íþróttahúsum og sundhöllum hér á landi sýna m.a. að meðaltal hljóðstigs þar er oft yfir hættumörkum ( 80-85 dB )?
Lesa meira

15. feb. 2010

Vissir þú að...

... slæmt inniloft getur valdið þreytu, einbeitingarskorti og almennri vanlíðan?
Lesa meira

14. jan. 2010

Vissir þú að ...

... góð birta á vinnustað er eitt af grundvallaratriðum fyrir vellíðan fólks?
Lesa meira

7. des. 2009

Vissir þú að ...

... því hefur verið haldið fram að allt að þriðjungur kennara þjáist af mikilli streitu og/eða kulnun?
Lesa meira

6. nóv. 2009

Vissir þú að ...

... meira en helmingur fullorðinna Íslendinga hreyfir sig ekki í samræmi við ráðleggingar og tímaskortur og þreyta eru algengustu skýringarnar fyrir lítilli hreyfingu?
Lesa meira

6. okt. 2009

Vissir þú að ...

... mjúk fita hækkar ekki kólesteról í blóði? Dæmi um mjúka (ómettaða) fitu eru fljótandi matarolíur, þykkfljótandi eða mjúkt smjörlíki, lýsi og óhert fiskifita auk fitu úr fræjum og hnetum.
Lesa meira

7. sep. 2009

Vissir þú að ...

... heilsuefling á vinnustað getur bætt heilsu og líðan starfsfólks, aukið starfsánægju og nýsköpun?
Lesa meira

27. apr. 2009

Vissir þú að ...

... ágreiningur getur bæði haft neikvæðar og jákvæðar afleiðingar?
Lesa meira

26. mar. 2009

Vissir þú að ...

... í siðareglum kennara segir að kennarar skulu leitast við að skapa góðan starfsanda á vinnustaðnum?
Lesa meira

1. feb. 2009

Vissir þú að ...

... handleiðsla er fyrir alla sem vilja þroskast í starfi og bæta starfímynd sína?
Lesa meira




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli