Tímarit, veftímarit

Börnin í borginni

Aðilar Reykjavíkurborgar sem sérstaklega vinna með börnum og unglingum hafa tekið höndum saman undir yfirskriftinni „Börnin í borginni“. Hlutverk og markmið teymisins Börnin í borginni er að:

  • Fylgjast með líðan barna og starfsfólks í leikskólum, grunnskólum og í frístundastarfi á vegum Reykjavíkurborgar.
  • Leita leiða til að minnka og hafa áhrif á vanlíðan vegna álags og streitu.
  • Fylgjast með tölulegum upplýsingum sem gefa vísbendingar um breytta fjárhagsstöðu heimilanna.
  • Stuðla að samvinnu þeirra aðila sem koma að málefnum barna og unglinga í borginni. Í teyminu sitja aðilar frá Menntasviði, Leikskólasviði, Velferðarsviði, Íþrótta- og tómstundasviði, Mannréttindaskrifstofu og Menningar- og ferðamálasviði. Auk þeirra eru fulltrúar skólastjóra, kennara og foreldra í teyminu.

Fréttarit KOS

Kjararannsóknarnefnd opinberra starfsmanna gefur út fréttarit, þar sem myndrænar og tölulegar upplýsingar birtast um laun opinberra starfsmanna. Ætlunin er að nýjasta fréttaritið verði ávallt hér til skoðunar á heimasíðu KOS ásamt eldri fréttaritum.

Heil og sæl í vinnunni

Heil og sæl í vinnunni“ er heilsueflingarverkefni á vegum Vinnueftirlitsins og Lýðheilsustöðvar og kom fyrsta fréttabréfið í tengslum við þetta verkefni út 29. janúar 2008.

Netla

Netla“ veftímarit um uppeldi og menntun er gefið út af Kennaraháskóla Íslands og spratt af starfi áhugahóps um slíka útgáfu við skólann við upphaf nýrrar aldar. Útgáfa ritsins hófst 9. janúar 2002. Kennarasamband Íslands og Þroskaþjálfafélag Íslands styðja útgáfuna með þátttöku í ritstjórn. Áskrift að Netlu er ókeypis og eru kennarar eindregið hvattir til að gerast áskrifendur með því að skrá sig á póstlista á forsíðu ritsins.

Skóla - akur

Skóla - akur“ er vefrit um skólamál sem gefið er út af skóladeild Akureyrarbæjar. Á forsíðu blaðisins kemur markmið þess fram en það er: "Að miðla upplýsingum til starfsfólks í leik– grunn– og tónlistaskóla Akureyrar, foreldra og annarra í skólasamfélaginu." Fyrsta tölublaðið kom út í ágúst 2007.

Starfsmennt fræðslusetur - fréttabréf

Í veffréttabréfi Starfsmenntar fræðsluseturs er fjallað um væntanleg námskeið á vegum Starfsmenntar. Þar er einnig hægt að nálgast eldri fréttabréf.

Stjórnmál og stjórnsýsla

Stjórnmál og stjórnsýsla“ er ritrýnt veftímarit sem Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, við Háskóla Íslands, gefur út. Þar eru einnig birtar almennar greinar sem ekki eru ritrýndar. Efni má senda ritsjórum á netfang veftímaritsins sem er stogst hjá hi.is.

Tímarit.is

Á „Timarit.is“ er hægt að lesa og fletta í yfir 230 blöðum og tímaritum frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi, meðal annars nær öllum sem gefin voru út fyrir 1920. Hundruð þúsund síðna úr þessum tímaritum eru aðgengilegar á vefnum og stöðugt bætast fleiri síður við. Verkefnið VESTNORD markaði upphafið að þessum vef.

Vefrit menntamálaráðuneytisins

Vefrit menntamálaráðuneytisins“ kemur út flesta fimmtudaga og er aðgengilegt hér en er einnig sent til stofnana, sveitarfélaga, félagasamtaka og fleiri aðila sem hafa skráð netföng í gagnagrunni ráðuneytisins.

Vefrit Sálfræðingafélags Íslands

Vefrit sálfræðingafélags Íslands“ var stofnað í janúar 2009. Markmið vefritsins er að birta umræðu um málefni líðandi stundar, eða einfaldlega lífið og tilveruna, frá sjónarhorni sálfræðinnar. Pistlahöfundar eru allir menntaðir í sálfræði. Netfang vefritsins er vefrit hjá sal.is. Skrif pistlahöfunda endurspegla ekki endilega skoðanir Sálfræðingafélags Íslands né annarra pistlahöfunda og hér ber hver og einn ábyrgð á sínum skrifum.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli