19. jún. 2013
Í dag, 19. júní, er kvenréttindadagurinn og 98 ár síðan konur, 40 ára og eldri, fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis.
Lesa frétt
19. jún. 2013
Á fundi stjórnar Orlofssjóðs KÍ sem haldinn var föstudaginn 3. maí sl. var samþykkt að vinnutími starfsmanna við orlofshús standi til kl. 22:00 mánudaga til föstudaga og til kl. 18:00 laugardaga og sunnudaga. Ef leigutaki telur þörf á því að kalla út starfsmann við orlofshús utan þess tíma er innheimt 20.000 kr. útkallsgjald fyrir hvert útkall.
Lesa frétt
18. jún. 2013
Eitthvað er af lausum eignum til leigu hjá Orlofssjóði, fylgist með á bókunarvefnum og munið að prenta leigusamninginn út og taka með í bústaðinn.
Lesa frétt
14. jún. 2013
Aðalbjörn Sigurðsson fréttamaður hefur verið ráðinn útgáfu- og kynningarstjóri Kennarasambands Íslands. Hann tekur við starfinu 1. ágúst nk. af Kristínu Elfu Guðnadóttur sem lét af störfum í vor.
Lesa frétt14. jún. 2013
Reykjavíkurborg var dæmd ábyrg fyrir fjárhagslegu tjóni kennara og skaðabótaskyld með dómi uppkveðnum 14. desember 2012. Ótímabærra starfslok kennarans voru afleiðing af veikindum í öndunarfærum. Kennarinn hafði fengist við kennslu um langt árabil og kenndi meðal annars smíðar, við skóla í Reykjavík, frá síðari hluta 9. áratugar síðustu aldar. Árið 2005 varð hann að segja starfi sínu lausu af heilsufarsástæðum, en heilsu hans hafði hrakað mjög í starfi fyrir Reykjavíkurborg.
Lesa frétt
13. jún. 2013
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Námsbraut um nám fullorðinna við HÍ og Norræna tengslanetið um nám fullorðinna stendur fyrir ráðstefnu um tæknistutt nám og kennslu föstudaginn 13. september nk.. Sérfræðingar frá öllum Norðurlöndunum miðla reynslu sinni og þekkingu á tæknistuddu og sveigjanlegu námi.
Lesa frétt
12. jún. 2013
Baldur Þórhallsson kom fram í Síðdegisútvarpinu á RÚV í gær og sagði frá tölvulausum kennslustundum í stjórnmálafræði þar sem einu námsgögnin eru blýantur og blað. Hann hefur kurteislega farið þess á leit við nemendur sína að þeir leggi tölvurnar frá sér. Sjálfur er Baldur búinn að henda glærupökkunum. Baldur segir að uppbyggilegar samræður og vangaveltur um gagnrýnar spurningar séu það sem nemendur læri mest á og kallar það Sókratesaraðferðina.
Lesa frétt
12. jún. 2013
Á síðasta ári lét mennta- og menningarmálaráðuneytið gera könnun á fyrirkomulagi og umfangi íþróttakennslu í grunnskólum. Ein af niðurstöðum hennar var að svo virtist sem nemendur nokkurra skóla fengju færri sundtíma en kveðið er á um í aðalnámskrá, að dæmi væru um að fleiri en 15 nemendur væru á ábyrgð hvers kennara í sundtímum og/eða að nemendur fengju innan við 120 mínútur í íþróttum á viku.
Lesa frétt
12. jún. 2013
Þriðjudaginn 11. júní skrifuðu heildarsamtök launafólks og vinnuveitenda ásamt stjórnvöldum undir samkomulag um að setja á stofn „Samstarfsnefnd um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga.“ Nefndin er sett á fót með það að markmiði að bæta þekkingu og vinnubrögð við undirbúning kjarasamninga og auka skilvirkni við gerð þeirra.
Lesa frétt
12. jún. 2013
Nú eru samræmd próf sem nemendur í 4. 7. og 10. bekk munu þreyta í september 2013 farin í prentsmiðju, segir á vef Námsmatsstofnunar. Þar segir líka að verkefnagerð fyrir prófin 2014 sé langt á veg komin og eftir áramótin næstu verði 15 - 20 skólar á höfuðborgarsvæðinu beðnir um að forprófa það efni.
Lesa frétt
12. jún. 2013
Morgunblaðið í dag birtir fréttaskýringu um að vel hafi gengið að ráða menntaða kennara til grunnskóla næsta vetur. Þar vitnar blaðamaður í Höllu Margréti Tryggvadóttur, starfsmannastjóra hjá Akureyrarbæ, Valgerði Janusdóttur, mannauðsstjóra á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar og Margréti Halldórsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs á Ísafirði
Lesa frétt
10. jún. 2013
Kennarasambands Íslands hefur gert athugasemdir við tillögur verkefnisstjórnar samráðsvettvangs um aukna velsæld, þ.e. þann hluta sem fjallar um „Skilvirkara menntakerfi“. Tekið skal fram að athugasemdunum er beint að texta og upplýsingum hverrar glæru fyrir sig. KÍ bendir á að margt í tillögunum þurfi að skoða betur og nauðsynlegt sé að rýna í þær tölulegu upplýsingar sem vísað er í á glærunum.
Lesa frétt
7. jún. 2013
Ferðin til framtíðar var yfirskrift Stóra leikskóladagsins 2013 sem haldinn var hátíðlegur í Ráðhúsi Reykjavíkur og Tjarnarbíói í dag 7. júní. Fjöldi gesta sótti viðburðinn. Kynning á leikskólastarfi fór fram í Ráðhúsinu og þar var margt að sjá og skoða. En þar sýndu leikskólakennarar víðsvegar að í borginni afrakstur starfs síns og nemenda sinna. Þar voru brúðuleikhús, sögur nemenda, margs konar listaverk og fjölmörg dæmi um hversu menntandi og þroskandi dvöl í leikskóla getur verið. Fyrirlestrar voru haldnir í Tjarnarbíói. Leikskólar í Reykjanesbæ voru að þessi sinni gestir Reykjavíkur á Stóra leikskóladeginum
Lesa frétt
7. jún. 2013
Fundur stjórnar Félags grunnskólakennara og formanna svæðafélaga, haldinn 6. júní 2013, fagnar þeim mikla samráðsanda sem ríkir um skólamál í nýgerðum stjórnarsáttmála. Það er mjög jákvætt að ríkisstjórnin hafi einsett sér að hafa samráð við hagsmunaaðila þegar ákvarðanir eru teknar á vettvangi ríkisins um skipulag náms og kennslu.
Lesa frétt
7. jún. 2013
Ferðin til framtíðar er yfirskrift stóra leikskóladagsins 2013 sem er í dag föstudaginn 7. júní kl. 08:30 – 15:00. Hátíðin fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og Tjarnarbíói. Kynning á leikskólastarfi fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og fyrirlestrar í Tjarnarbíói. Leikskólar í Reykjanesbæ eru að þessi sinni gestir Reykjavíkur á Stóra leikskóladeginum.
Lesa frétt
5. jún. 2013
Loftið á Menntavísindasviði HÍ við Stakkahlíð var þrungið eldmóði og áhuga þegar hundruð náttúrufræðikennara á öllum skólastigum komu saman til að fræðast um nýjungar, hlýða á fyrirlestra, kynningar og smiðjur á málþingi um nám og kennslu í náttúrufræðigreinum á 21. öldinni. Helst var kvartað undan því að ekki væri hægt að vera á fleiri en einum stað í einu þar svo margt áhugavert var í gangi á sama tíma.
Lesa frétt5. jún. 2013
Rannsóknarstofa um þróun skólastarfs og Námsmatsstofnun boða til málstofu um stöðu ís-lenska skólakerfisins í alþjóðlegu samhengi miðvikudaginn 12. júní nk. í Bratta, húsnæði Menntavísindasviðs HÍ v/Háteigsveg, kl. 14:00-16:00.
Lesa frétt
4. jún. 2013
Kennari maímánaðar á vef Félags framhaldsskólakennara heitir Þorbjörn Sigurbjörnsson. Hann kennir viðskiptagreinar við Verzlunarskóla Íslands. Hann segir frá viðhorfum sínum til náms og kennslu. Þetta er fjórða myndbandið sem FF hefur látið gera í vetur um kennara og störf þeirra. Kennari mánaðarins er hluti af kynningarátaki FF sem hefur þann tilgang að vekja athygli á störfum kennara og viðhorfum þeirra til starfs síns og starfsaðstæðna. Vikupóstarnir, sem eru stuttar greinar, hafa vakið mikla athygli og sýna svo ekki verður um villst að kennurum liggur mikið á hjarta.
Lesa frétt4. jún. 2013
Hagnýt jafnréttisfræði-diplómanám, er kennd við Stjórnmálafræðideild HÍ og er spennandi valkostur fyrir fólk sem vill starfa að jafnréttismálum. Diplómanámið er opið öllum þeim sem hafa lokið BA, BS eða BEd prófi, óháð námsleið. Umsóknarfrestur er 5. júní.
Lesa frétt
4. jún. 2013
Í tilefni af 10 ára afmæli Hugarafls mun hinn heimsfrægi hugsjónamaður og mannvinur Patch Adams koma til landsins. Patch Adams er þekktur heimilislæknir sem hefur farið mjög óhefðbundar leiðir í starfi sínu. Árið 1998 var gerð kvikmynd sem byggð er á ævi hans og fór Robin Williams þar á kostum í hlutverki Patch Adams. Myndin fór sigurför um heiminn og var meðal annars tilnefnd til Óskarsverðlauna. Í umfjöllun um fyrirlestur (sem fylgir) má sjá meira um hans störf.
Lesa frétt
31. maí 2013
Samráðshópur karla á leikskólastiginu komu saman til fundar í Kennarahúsinu í dag. Tilefni fundarins var að ræða leiðir til að fjölga karlmönnum í stöðum leikskólakennara. Margar góðar hugmyndir komu fram og ákváðu fundarmenn að nota sumarið til að melta þær. Fyrirhugað er að hópurinn komi aftur saman í sumarlok og ræði málin frekar.
Lesa frétt
31. maí 2013
Danska ríkisstjórnin greip sem kunnugt er inn í verkbann sveitarfélaga (KL) á grunnskólakennara (DLF) í apríl sl. með lagasetningu. Sá gerningur felur í meginatriðum í sér skerðingu á undirbúningstíma kennara og fjölgun kennslustunda til að ná niður kostnaði við breytingar á lögum um grunnskóla, „sólarlag“ er sett á 60 ára afslátt, vinnutímakafla kjarasamninga er kippt út og tímaskráningakerfi (stimpilklukkukerfi) tekið upp í skólum.
Lesa frétt
31. maí 2013
Mennta- og menningarmálaráðuneytið efnir til málþings um námsmat í nýrri menntastefnu í samstarfi við Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga í Flensborgarskóla 30. ágúst nk. Námsmat í nýrri menntastefnu grundvallast á hæfni nemenda og er kynnt í nýjum aðalnámskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
Lesa frétt
31. maí 2013
Nemendur úr 4. og 7. bekk Giljaskóla á Akureyri sýndu samstarfsverkefni um nýjan norrænan stjörnuhimin í húsnæði Populus tremula í Listagilinu á Akureyri núna í lok maí. Á sýningunni var vinnuferli verkefnisins rakið í máli og myndum ásamt því að nýr norrænn stjörnuhiminn var til sýnis.Verkefnið hafa nemendur unnið með kennurum, listamönnum og fræðimönnum á Íslandi, í nánu samstarfi við stofnanir í Umeå í Svíþjóð og í Viborg í Danmörku.
Lesa frétt
30. maí 2013
Aðstandendur 5. bekkinga í Háteigsskóla komu í heimsókn til að upplifa menningarmót með börnum sínum 29. maí sl. Á menningarmótum kynnir hver þátttakandi áhugamál sín og eigin menningu á skapandi hátt. Ekki er endilega átt við þjóðarmenningu heldur það sem skiptir mestu máli fyrir hvern og einn. Allir eru þátttakendur og áhorfendur um leið.
Lesa frétt
29. maí 2013
Í tilefni af 30 ára starfsafmæli Garðaborgar var gefin út ljóðabók. Bókin inniheldur ljóð eftir börn í leikskólanum Garðaborg samin á tímabilinu janúar 2012 til mars 2013. Ljóðin eru margvísleg og umfjöllunarefnin af ýmsum toga. Öll eiga ljóðin það þó sameiginlegt að vera einlæg, falleg og skemmtileg.
Lesa frétt
29. maí 2013
Stóri leikskóladagurinn í Reykjavík verður í Ráðhúsi Reykjavíkur og Tjarnarbíói föstudaginn 7. júní 2013, kl. 08:30 - 15:00. Kynning á leikskólastarfi fer fram í Ráðhúsinu og fyrirlestrar í Tjarnarbíói. Leikskólar í Reykjanesbæ eru að þessi sinni gestir Reykjavíkur á Stóra leikskóladeginum. Allir sem áhuga hafa eru velkomnir.
Lesa frétt29. maí 2013
Upphæðir annar- og orlofsuppbótar er hægt að nálgast á heimasíðunni.
Lesa frétt
29. maí 2013
Forystufólk Kennarasambands Íslands þáði heimboð í Sjálandsskóla í Garðabæ í 28. maí sl. Helgi Grímsson skólastjóri tók á móti hópnum og sýndi húsnæði skólans um leið og hann útskýrði hvernig kennslu í skólanum er háttað en hann starfar, sem kunnugt er, samkvæmt þeirri hugmyndafræði sem kallast „opinn skóli“. Skipulag skólans er í samræmi við grunnskólalög og aðalnámskrá.
Lesa frétt
28. maí 2013
Baldur Garðarsson, framhaldsskólakennari og formaður félagsdeildarinnar við Menntaskólann að Laugarvatni, skrifar Vikupóstinn á vef Félags framhaldsskólakennara að þessu sinni. Kennslufræðileg efni eru honum hugleikin og í þessum athyglisverða pistli mátar hann hugmyndafræði náttúrutúlkunar við breytta kennsluhætti og veltir því fyrir sér hvort efla megi nám nemenda með þessum aðferðum.
Lesa frétt
28. maí 2013
Unnur Henrýsdóttir skrifar grein í Fréttablaðið í dag og segir: Ég ákvað að setjast niður eina kvöldstund og setja á blað ástæðuna fyrir því að ég er leikskólakennari en ekki eitthvað annað. Staðan í dag er þannig að sárlega vantar leikskólakennara og sem innlegg í alla þá neikvæðu umræðu sem á sér stað um kennaranám langar mig aðeins að benda á jákvæðu hliðar námsins.
Lesa frétt
28. maí 2013
Ég var frekar áttavilltur unglingur. Hvað mig langaði að verða þegar ég yrði stór var ekki mikið sem ég spáði í. Sérstaklega eftir að það varð ljóst að ég yrði seint atvinnumaður í knattspyrnu.
Lesa frétt
27. maí 2013
Pawel Bartoszek stærðfræðingur skrifaði grein um kennaranám í Fréttablaðið sl. föstudag. Í sjálfu sér er jákvætt að hinir og þessir hafi áhuga og tjái sig um kennara, kennaramenntun og skólastarf, en maður veltir stundum fyrir sér hvað býr að baki skrifunum. Eðli málsins samkvæmt er skólinn og skólastarf flestum nærtækt málefni. Allir hafa gengið í skóla og allir þekkja börn og ungmenni sem sækja skóla. Á tyllidögum er sagt að góð menntun sé fjöreggið okkar og um hana beri að standa vörð ásamt góðu heilbrigðiskerfi, en þetta tvennt snertir alla einstaklinga einhvern tíma á lífsleiðinni.
Lesa frétt
27. maí 2013
Það útskrifast fleiri en stúdentar þessa dagana. Útskriftarferð elstu barnanna á leikskólanum Sæborg var farin föstudaginn 17. maí sl. Farið var með ferju út í Viðey þar sem var grillað og farið í leiki.Útskriftin sjálf var haldin hátíðleg föstudaginn 24. maí og fengu börnin afhent útskriftarskjal með ljóði og mynd hjá deildarstjóra. Börnin stóðu sig einstaklega vel og eiga hrós skilið fyrir það.
Lesa frétt
27. maí 2013
Framhaldsskólar landsins eru með dreifstýrða kjarasamninga eins og aðrar ríkisstofnanir. Að undanförnu hefur Félag framhaldsskólakennara unnið að því að meta áhrif þeirra á kjör kennara. Félagið birti nýverið tvær úttektir í þessu skyni, annars vegar á grunnröðun kennarastarfsins í stofnanasamningum skólanna og hins vegar á ákvæðum samninganna um viðbótarstörf og hópastærðir.
Lesa frétt27. maí 2013
Miðvikudaginn 5. júní nk verður haldið málþing um nám og kennslu í náttúrufræðigreinum á 21. öldinni. Málþingið verður haldið í aðalbyggingu Menntavísindasviðs við Stakkahlíð kl. 9:00 - 17:00 og er ætlað kennurum á öllum skólastigum. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá, fyrirlestra, kynningar og smiðjur. Aðalfyrirlesari málþingsins verður Michael Reiss prófessor við University of London.
Lesa frétt
27. maí 2013
Hundruð nemenda útskrifast um þessar mundir frá framhaldsskólum landsins og víða mátti sjá hvíta og mislita kolla gleðjast yfir tímamótunum um nýliðna helgi. Einn þeirra skóla sem brautskráði nemendur var Fjölbrautaskóli Norðurlands sem var slitið í 34. sinn sl. laugardag við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Fjölmenni var viðstatt enda útskriftarhópurinn aldrei í verið stærri eða 121 nemandi.
Lesa frétt
27. maí 2013
Nám í undirstöðuatriðum hugrænnar atferlismeðferðar er í boði í haust hjá Endurmenntun HÍ. Námið er haldið í samvinnu við Félag um hugræna atferlismeðferð. Megináhersla er á hagnýta þekkingu á undirstöðuatriðum aðferðarinnar. Markmiðið er að veita fræðilega yfirsýn yfir grunnatriði kenninga um hugræna atferlismeðferð, líkön, hugtakanotkun og aðferðir ásamt því að öðlast skilning á tengslum kenninga og meðferðar, einkum við þunglyndi, kvíða og álagi í daglegu lífi.
Lesa frétt
27. maí 2013
Nordisk Arbeidsmiljø Nettverk (NAN) fundar í Kennarahúsinu við Laufásveg í dag 27. maí. NAN er óformlegur samstarfshópur norrænna kennarafélaga sem leiðir saman hesta sína einu sinni á ári til að ræða starfsumhverfismál kennara. Valdís I. Jónsdóttir talfræðingur flytur, t.d. erindi á fundinum um hávaða í skólum og áhrif hans á rödd, heyrn og líðan kennara og Anders Eklund fulltrúi Läraförbundet í Svíþjóð flytur erindið „Third Party Violence”.
Lesa frétt
24. maí 2013
Þriðjudaginn 28. maí og miðvikudaginn 29. maí heldur LSR kynningarfundi fyrir sjóðfélaga sem vilja fræðast um lífeyrismál, um uppbyggingu réttindakerfisins, iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslur. Sjóðfélagar geta valið um hvora dagsetninguna sem hentar betur. Fundirnir eru haldnir í húsnæði LSR að Engjateigi 11.
Lesa frétt
24. maí 2013
„Það hlýtur að vera betra að hlúa að því sem gefist hefur vel og byggja á sterkum undirstöðum sem til eru heldur en að mikla fyrir sér vandamál sem voru áhyggjuefni fyrir tuttugu árum og staglast á tölum sem virðast okkur í óhag í villandi og röngum samanburði við önnur lönd,“ segir Atli Harðarson skólameistari í Fjölbrautaskóla Vesturlands í grein á mbl.is í dag.
Lesa frétt
23. maí 2013
Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2013-2014. Alls bárust 115 umsóknir til sjóðsins og fengu 40 verkefni styrk að upphæð rúmlega 45. millj. kr. Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og er hlutverk sjóðsins að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.
Lesa frétt
23. maí 2013
Íþróttakennarafélag Íslands í samvinnu við stjórnendur íþrótta- og heilsubrautar Háskóla Íslands á Laugarvatni bjóða til afmælis- og skemmtidagskrár sunnudaginn 26. maí nk. í íþróttahúsinu á Laugarvatni. Dagskráin stendur yfir frá kl. 14:00 til 16:00.
Lesa frétt23. maí 2013
Ríkisstjórnin leggur ríka áherslu á að efla menntakerfið með hagsmuni nemenda og þjóðarinnar allrar að leiðarljósi. Fjölbreytileiki í skólastarfi er lykill að kraftmiklu og skapandi samfélagi. Áhersla verður lögð á samráð við hagsmunaaðila þegar ákvarðanir eru teknar á vettvangi ríkisins um skipulag náms og kennslu.
Lesa frétt
23. maí 2013
„Menntamálin í raun stærsta efnahagsmál þessarar þjóðar,“ sagði Illugi Gunnarsson, verðandi menntamálaráðherra í vefsjónvarpi mbl.is eftir að tilkynnt var að hann yrði ráðherra í næstu ríkisstjórn. Illugi sagði mikið verkefni framundan og sagðist hlakka mjög til. Verkefnið fælist í hvernig ná mætti meiri og betri árangri í menntamálum. „Framtíð okkar byggist á að nýta sem best mannauðinn.“
Lesa frétt
23. maí 2013
Illugi Gunnarsson Sjálfstæðisflokki er nýr mennta- og menningarmálaráðherra og tekur við embættinu í dag af Katrínu Jakobsdóttur Vinstri grænum. Um leið og Kennarasamband Íslands þakkar Katrínu Jakobsdóttur samstarfið á liðnu kjörtímabili er Illuga óskað til hamingju með starfið. Kennarasamband Íslands væntir góðs samstarfs við nýjan mennta- og menningarmálaráðherra.
Lesa frétt
23. maí 2013
Nemendur úr 8. og 9. bekkjum Stöðvarfjarðar, Breiðdalsvíkur, Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar fengu sérstaka fræðslu og leiðsögn um happafleyin Húna II og Knörrinn sem voru á ferð í Fjarðabyggð fyrr í mánuðinum. Hluti nemendanna fékk að fara í siglingu með Knerrinum og fengu um leið fræðslu um það merka fley.
Lesa frétt
23. maí 2013
Samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík SAMFOK fögnuðu 30 ára afmæli á dögunum. En samtökin voru stofnuð árið 1983. Í tilefni afmælisins var gefið út veglegt afmælisrit.
Lesa frétt
22. maí 2013
Stytting námtíma er ekki forgangsmál í íslenskum framhaldsskólum. Við þurfum hins vegar að auka fjölbreytni námsframboðs, sagði Ólafur H. Sigurjónsson aðstoðarskólameistari í FÁ m.a. í viðtali í Speglinum í gær.
Lesa frétt
22. maí 2013
„Gætum kannski náð „hæsta menntunarstigi“ í heimi með því einu að læra minna en við gerum,“ segir Atli Harðarson skólameistari í Framhaldsskóla Vesturlands í færslu á Facebook þar sem hann rýnir í tölur úr Education at a Glance og útskýrir hvað stendur að baki þegar talað er um „ljúka“ framhaldsskólanámi. Sérstaða Íslands er töluverð.
Lesa frétt
21. maí 2013
Halldóra Björt Ewen, íslenskukennari í Menntaskólanum við Hamrahlíð og stjórnarmaður í Félagi framhaldsskólakennara, ritar Vikupóstinn 21. maí. Halldóru eru kjarmálin hugleikin og segir hún, m.a. „Einu sinni voru laun kennara í menntaskólum og alþingismanna svipuð. Núna, þegar krafist er 5 ára háskólamenntunar af kennurum, en engrar af alþingismönnum, munar 262 677 krónum á laununum mínum og alþingismanna.“
Lesa frétt
21. maí 2013
Auglýst er eftir grunn- og framhaldsskólum til að taka þátt í tilraunakennslu í fjármálalæsi næsta skólaár. Gerð verður könnun í upphafi og lok tilraunakennslunnar á fjármálalæsi nemenda. Verkefnið hefur farið vel af stað og mikill áhugi er innan þáttökuskólanna bæði hjá kennurum og nemendum og því eru bundnar miklar vonir við að skólar almennt muni taka upp kennslu í fjármálalæsi í náinni framtíð.
Lesa frétt
21. maí 2013
„Reiði ríkir meðal félagsmanna í framhaldsskólunum sem þykir störfum sínum lítill sómi sýndur og svíður fálæti ráðamanna um hag og kjör nemenda og starfsmanna. Við þeim blasir launamunur upp á að meðaltali rúmlega þrjá launaflokka miðað við samanburðarhópa, eða rúmlega 16% á dagvinnulaunum og rúmlega 8% á heildarlaunum,“ segir Elna K. Jónsdóttir í grein í Skólavörðunni.
Lesa frétt
17. maí 2013
Kennarasamband Íslands fagnar þeirri umræðu um menntamál sem orðið hefur eftir að verkefnisstjórn samráðsvettvangs um aukna velsæld á Íslandi setti fram tillögur sínar. KÍ óskaði eftir að fá fulltrúa í samráðsvettvanginn en fékk ekki. KÍ er fag- og stéttarfélag, og heildarsamtök allra kennara, náms- og starfráðgjafa og stjórnenda í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum, alls 10.300 félagsmanna sem starfa í skólum upp að háskólastigi.
Lesa frétt
17. maí 2013
Kennarahúsið er lokað í dag, föstudaginn 17. maí, frá kl. 12:00 vegna starfsmannafundar. Þeir sem eiga brýnt erindi við Orlofssjóð geta hringt í síma 595 1121.
Lesa frétt
17. maí 2013
Dr. Jóhanna Einarsdóttir prófessor í menntunarfræði við Háskóla Íslands var ráðinn forseti Menntavísindasviðs skólans í gær, 16. maí. Jóhanna lauk doktorsprófi í menntunarfræðum ungra barna árið 2000 frá Háskólanum í Illinois í Bandaríkjunum.
Lesa frétt
16. maí 2013
Félag framhaldsskólakennara sendir frá sér samþykkt þar sem brugðist er við tillögum verkefnisstjórnar samráðsvettvangs um aukna hagsæld á Íslandi. Í samþykktinni er, m.a. fjallað um tillögur verkefnisstjórnarinnar um styttingu námstíma og til að sporna gegn brottfalli nemenda úr framhaldsskólum.
Lesa frétt
16. maí 2013
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og menntamálaráðuneytið veita Evrópumerkið sem viðurkenningu fyrir nýbreytni í tungumálanámi og tungumálakennslu. Evrópumerkið er veitt annað hvert ár og er ráðgert að viðurkenning verði veitt á Uppskeruhátíð Evrópuáætlana í nóvember 2013. Umsóknarfrestur um Evrópumerkið er til 15. ágúst nk.
Lesa frétt
16. maí 2013
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar 2013, verður haldinn miðvikudaginn 22. maí kl. 16:00 í húsakynnum BSRB að Grettisgötu 89, Reykjavík.
Lesa frétt
16. maí 2013
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga verður haldinn þriðjudaginn 21. maí kl. 16:30, í sal Bandalags háskólamanna að Borgartúni 6, 3. hæð, Reykjavík.
Lesa frétt
15. maí 2013
Fulltrúar af samráðsvettvangi um aukna hagsæld komu til fundar við forystufólk KÍ í Kennarahúsinu í morgun. Tilefni fundarins var að ræða fram komnar tillögur verkefnisstjórnar samráðsvettvangsins um menntamál og framsetningu þeirra. Athygli hefur vakið að Kennarasambandið átti ekki fulltrúa í samstarfsvettvanginum þrátt fyrir að þar séu lagðar fram mikilvægar tillögur um skóla- og menntamála en KÍ hafði óskað eftir að taka þátt.
Lesa frétt
15. maí 2013
Í framhaldi af aðalfundi Kennarafélags Menntaskólans í Kópavogi 18. apríl sl. ályktar fráfarandi og núverandi stjórn félagsins eftirfarandi:
Kennarar Menntaskólans í Kópavogi eru orðnir þreyttir á langvarandi niðurskurði síðustu 5 ára og á andvaraleysi stjórnvalda gagnvart menntun, sem bitnar bæði á nemendum og kennurum.
Lesa frétt
15. maí 2013
Þrjár stúlkur og sex piltar úr Varmárskóla hafa sótt valnámskeið í Borgarholtsskóla Í vetur. Þau hafa mætt einu sinni í viku þrjár kennslustundir í senn. Nemendurnir hafa smíðað ýmsa hluti eins og litla verkfærakistu úr áli, sett saman rafrás, logsoðið, smíðað og lóðað saman bát, smíðað kertastjaka með því að nota tölfustýrða fræsivél og skorið ýmsa hluti út með því að nota tölfustýrða plasmaskurðarvél. Þau hafa fengið kynningu á iðnnámi og eiga þannig auðveldara með að velja nám við hæfi eftir að grunnskóla lýkur.
Lesa frétt
15. maí 2013
Rannsóknarstofur um skóla án aðgreiningar og um þróun skólastarfs við Menntavísindasvið Háskóla Íslands standa fyrir málþinginu
Skóli margbreytileikans - möguleikar og mótsagnir. Málþingið verður haldið í Skriðu, húsnæði sviðsins við Stakkahlíð, fimmtudaginn 30. maí kl. 13:10 til 16:40.
Lesa frétt14. maí 2013
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga verður haldinn fimmtudaginn 23. maí í húsnæði sjóðanna, Engjateigi 11 í Reykjavík og hefst hann kl. 15:00. Launagreiðendur sem greiða iðgjald fyrir starfsmenn sína til LSR eða LH eiga rétt á að senda einn eða fleiri fulltrúa á ársfundinn. Jafnframt eiga allir sjóðfélagar rétt til setu á fundinum.
Lesa frétt
14. maí 2013
Bragi Guðmundsson, prófessor á Akureyri, gagnrýnir kennara og Kennarasamband Íslands fyrir að draga upp neikvæða ímynd af kennarastarfinu. Hann tekur sem dæmi veggspjöld sem Kennarasambandið lét prenta og sendi í alla skóla landsins í vetur. Ákveðins misskilnings gætir í orðum Braga um tilgang veggspjaldanna. Veggspjöldin eru dæmi um virka þátttöku KÍ í alþjóðlegu samstarfi kennara og eru skilaboðin, sem þau flytja, varnaðarorð til stjórnvalda um allan heim um að láta ekki menntun gjalda kreppunnar. Þau eru ekki dæmi um ímyndarsköpun sem fer fram á Laufásveginum og alls ekki gagnrýni á hið góða starf sem fram fer í íslenskum skólum.
Lesa frétt
14. maí 2013
Gagnaöflun vegna rannsóknar TALIS á starfsaðstæðum íslenskra grunnskólakennara á unglingastigi stendur nú yfir. Leitað er svara við spurningum um starfsaðstæður kennara, starfsþróunarmöguleika og viðhorf. Námsmatsstofnun sér um framkvæmd rannsóknarinnar hér á landi. Þátttaka þarf að vera 75% til þess að íslensku gögnin verði tekin með í alþjóðlegu könnuninni þar sem ríflega 30 lönd taka þátt. Þátttakan er nú í um 55%. Það vantar því nokkuð uppá!
Lesa frétt
14. maí 2013
Aðalheiður Steingrímsdóttir formaður Félags framhaldsskólakennara sendir félagsmönnum sínum bréf þar sem hún hvetur þá til að taka þátt í TALIS-könnun í framhaldsskólunum sem nú stendur yfir. Safnað er gögnum um starfsaðstæður, starfsþróunarmöguleika og viðhorf kennara. Þrjátíu lönd taka þátt og sér Námsmatsstofnun um framkvæmdina á Íslandi.
Lesa frétt
13. maí 2013
Námskeið um matstækið Skólafærni athugun (SFA) verður haldið 10. júní nk., kl. 09:00 - 16:00 í Menningarstöðinni Gerðubergi.
Lesa frétt13. maí 2013
Vakin er athygli á umsóknarfrestum vegna sumarnámskeiða styrktum af Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara (SEF). Umsóknarfrestir eru mismunandi eftir námskeiðum en næstu frestir eru 15. maí.
Lesa frétt
13. maí 2013
Skólamálanefnd FF skoðaði netsiðareglur sem erlend kennarasamtök settu sér. Niðurstaða þeirrar vinnu var að beina því til siðaráðs KÍ að sambandið setti sér hliðstæðar reglur fyrir félagsmenn sína. Anna María Gunnarsdóttir framhaldsskólakennari ritar grein í nýjasta tölublað Skólavörðunnar um tillögurnar.
Lesa frétt
13. maí 2013
Mennta- og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um skólavist við Alþjóðlegan menntaskóla Rauða krossins (Red Cross Nordic United World College) í Flekke, Noregi. Skólinn er rekinn sameiginlega af Norðurlöndunum í tengslum við Rauða krossinn. Nám við skólann tekur tvö ár og lýkur því með viðurkenndu alþjóðlegu stúdentsprófi, International Baccalaureat Diploma (IB). Kennsla fer fram á ensku.
Lesa frétt
10. maí 2013
Félagsfundur Skólastjórafélags Vestfjarða var haldinn í Kennarahúsinu 10. maí í tengslum við námskeiðið Rétt málsmeðferð – öruggt skólastarf sem ætlað er skólastjórum. Námskeiðið var haldið 29. apríl í Egilstaðaskóla fyrir skólastjóra á Austurlandi og 10. maí á Hótel Natura í Reykjavík fyrir skólastjóra á Vestfjörðum. Þeim sem ekki hafði reynst kleift að sækja námskeiðið í vetur var gefinn kostur á að gera það núna. Myndin var tekin á félagsfundi SV.
Lesa frétt
10. maí 2013
Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki til að efla starfsmenntun samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar um átakið Nám er vinnandi vegur. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2013. Styrkjunum er ætlað að efla starfstengt nám á framhalds- og háskólastigi og í framhaldsfræðslu. Til úthlutunar eru allt að 200 milljónir kr.
Lesa frétt
10. maí 2013
Vefir Kennarasambands Íslands og aðildarfélaga lá niðri allan miðvikudaginn síðastliðinn vegna bilunar. Strax var brugðist við en viðgerð tók allan daginn. Einhver brögð eru að því að efni hafi ekki skilað sér inn á vefinn aftur þegar vefurinn komst í lag. Beðist er velvirðingar á því. Ábendingar um efni sem vantar á vefinn eru vel þegnar og sendist til Guðlaugar Guðmundsdóttur,
gudlaug hjá ki.is.
Lesa frétt
6. maí 2013
Kennarasamband Íslands hefur látið gera átta fræðslumyndbönd fyrir félagsmenn sína um fagleg málefni, starfsumhverfið og líðan í starfi. Myndböndin voru birt á vef KÍ í fyrsta maí kaffi Kennarasambands Íslands á Grand hóteli. Efni myndbandanna er fjölbreytt og hvort tveggja í senn hagnýtt í starfi og gagnlegt hverjum og einum í persónulegu lífi.
Lesa frétt
6. maí 2013
Kennarasamband Íslands hefur komið sér upp Facebook-síðu. Það er von forystumanna KÍ og útgáfusviðs að síðan efli fag- og stéttarvitund kennara og auki enn frekar upplýsingaflæðið. Félagsmenn í öllum aðildarfélögum eru hvattir til að gerast vinir KÍ á Facebook og deila fréttum og upplýsingum þaðan og þangað.
Lesa frétt
6. maí 2013
Ný launakönnun Hafnarfjarðarbæjar leiðir í ljós að þegar litið er til starfsgreinar, aldurs, starfsaldurs og fjölda yfirvinnustunda mælast heildarlaun kvenna hjá Hafnarfjarðarbæ 6,1 % lægri en heildarlaun karla og er það svipaður munur og mældist árið 2007. Ef kennarar eru teknir út úr greiningunni eru heildarlaun kvenna 9 % lægri en heildarlaun karla en voru 8,6% lægri árið 2007. Minnstur kynbundinn launamunur á bæði heildarlaunum og dagvinnulaunum er á meðal grunnskólakennara.
Lesa frétt
2. maí 2013
Kennarar úr öllum aðildarfélögum Kennarasambands Íslands fjölmenntu í kröfugöngur um land allt í gær, fyrsta maí þrátt fyrir að veðrið væri napurt um allt land. Í Reykjavík var safnast saman á Hlemmi og gengið niður Laugarveginn á útifund á Ingólfstorgi undir taktföstum undirleik lúðrasveita. Glæsileg fánaborg stéttarfélaga var mynduð á torginu þar sem göngumenn hlýddu á ræðuhöld og tónlistaratriði.
Lesa frétt
1. maí 2013
Hátíðarhöld í tilefni 1. maí hefjast með kröfugöngu frá Hlemmi kl. 13:30. Útifundur á Ingólfstorgi hefst kl. 14:10. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila í göngunni og á Ingólfstorgi. Þórarinn Eyfjörð verður fundarstjóri. Ræðumenn verða Ólafía Björk Rafnsdóttir formaður VR og Snorri Magnússon formaður Landssambands lögreglumanna. Vakin er athygli á að 1. maí kaffi Kennarasambands Íslands verður á Grand hóteli kl. 15:00.
Lesa frétt30. apr. 2013
Mennta- og menningarmálaráðuneytið skipaði hinn 4. október 2012 starfshóp til þess að gera tillögur um með hvaða hætti skuli staðið að samskiptum skóla og trúfélaga á öllum skólastigum. Starfshópurinn var skipaður hagsmunaaðilum sem tilnefndir voru af Biskupsstofu, Heimili og skóla, Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Siðmennt auk fulltrúa ráðuneytisins. Hópurinn varð sammála um tillögur og á grunni þeirra hefur ráðherra gefið út meginviðmið.
Lesa frétt
29. apr. 2013
Norræn ráðstefna sérkennara verður haldin í Åbo í Finnlandi 20. - 21. september nk. Í boði er vönduð og fjölbreytt dagskrá. Félag íslenskra sérkennara er aðili að samtökum á Norðurlöndunum NFSP en samtökin halda ráðstefnu á þriggja ára fresti.
Lesa frétt
29. apr. 2013
Á heimasíðu mennta- og menningarmálaráðuneytisins segir frá áætlun um innleiðingu á breytingum í skólastarfi samkvæmt nýjum námskrám. Gerð er grein fyrir helstu verkefnum, fyrir leik-, grunn- og framhaldsskólastig til vorannar 2015 en þá er miðað við að námskrárnar taki að fullu gildi. Þessi áætlun tekur einungis til sérverkefna, sem skipulögð er á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins og varða beint innleiðinguna. Hafa ber því í huga að til viðbótar eru ýmis önnur verkefni bæði á vegum ráðuneytisins og annarra sem vinna að og styðja við innleiðinguna, þar á meðal að vinna að nýrri vinnutímaskilgreiningu kennara.
Lesa frétt
29. apr. 2013
Sumarnámskeið Samstarfsnefndar um endurmenntun framhaldsskólakennara í samstarfi við faggreinafélög hafa nú verið auglýst á heimasíðu Rannís. Framhaldsskólakennarar eru hvattir til að láta þessi námskeið ekki fram hjá sér fara.
Lesa frétt
29. apr. 2013
Talfræðingurinn, ársrit félags talkennara og talmeinafræðinga er kominn út. Blaðinu verður dreift í alla skóla landsins með Skólavörðunni nú í vikunni. Talfræðingurinn er sneisafullur af fróðlegu efni. Að þessu sinni er m.a. fjallað um þann skaða sem hávaði í umhverfi barna getur valdið á heyrn þeirra, líðan og þroska.
Lesa frétt
28. apr. 2013
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra verða afhent miðvikudaginn 15. maí 2013, kl. 14:00, við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. Tilnefningar sendist á rafrænan hátt með því að fylla út eyðublað á
heimiliogskoli.is. Síðasti skiladagur tilnefninga er 1. maí 2013.
Lesa frétt
26. apr. 2013
Skólavarðan er komin út, stútfull af áhugaverðu efni fyrir kennara og aðra starfsmenn skóla. Sagt er frá fræðslufundum forystumanna KÍ sem haldnir voru á átta stöðum um land allt. Skólavarðan tók viðtal við Sigurbjörgu Magnúsdóttur leikskólakennara. Anna María Gunnarsdóttir skrifar um netsiðareglur, Ólafur Páll Jónsson heimspekingur fjallar um skólann sem þekkingarsamfélag, Jakobína Jónsdóttir skrifar um viðhorf framhaldsskólanema til femínisma, formenn aðildarfélaga KÍ gera grein fyrir stöðu mála í kjarasamningum og Ingibjörg Úlfarsdóttir ráðleggur fólki sem hyggst fara á eftirlaun svo dæmi séu tekin.
Lesa frétt
26. apr. 2013
Félag grunnskólakennara á Íslandi harmar þær aðgerðir sem danska ríkisstjórnin greip til þegar hún stöðvaði verkbann þarlendra grunnskólakennara með lagasetningu. Að sögn Anders Bondo Christensen formanns Dansk lærerforening er grunnskólinn í einkennilegri stöðu eftir lagasetninguna. Að hans mati hefur ríkisstjórnin tekið sér stöðu við hlið sveitarfélaganna en engar raunverulegar viðræður hafi farið fram til lausnar deilunni. Forsendur fyrir komandi umbótastarfi í skólum er nú á allt öðrum stað, að mati Christensens en hann leggur áherslu á að kennarar muni áfram byggja alla sína vinnu á rannsóknum og þekkingu.
Lesa frétt
26. apr. 2013
Gylfi Þorkelsson kennari við Fjölbrautaskólann á Suðurlandi ritar grein á Smuguna um menntamál. Gylfi dregur upp ófagra mynd af ástandi mála og þeim starfsaðstæðum og launakjörum sem kennurum í grunn- og framhaldsskólum er boðið upp á. Hann gagnrýnir harðlega þann mikla niðurskurð rekstrarfjár sem skólar hafa mátt þola undan farin ár, bæði fyrir og eftir hrun. Hann hvetur ráðamenn til að snúa þessari óheillaþróun og það strax.
Lesa frétt
24. apr. 2013
Kennarahúsið lokar kl. 14:30 í dag, miðvikudaginn 24. apríl, vegna starfsmannafundar.
Lesa frétt
24. apr. 2013
Nú þegar einungis er einn dagur til Alþingiskosninga ber lítið á umræðum um skóla- og menntamál í fjölmiðum. Mörgframboðanna setja fram metnaðarfulla stefnu í menntamálum en gera lítið til að halda henni á lofti. - Velkist nokkur í vafa um menntamál varði allt fólk í landinu og beri að setja á oddinn?
Lesa frétt
24. apr. 2013
Dönsk hjón sem búa í Ribe, fallegum litlum bæ á suður Jótlandi óskar eftir að skipta á húsi og bíl í sumar. Hjónin, Anne Marie og Peter Paulsen, bjuggu á Íslandi fyrir 20 árum og langar nú að heimsækja landið á ný. Hún starfaði sem kennari við Hvassaleitisskóla og hann hjá Gigtarfélagi Íslands. Í dag er Anne Marie kennari í Ribe og Peter starfar sem sjúkraþjálfari. Peter hefur einnig ferðast með Danska landsliðinu í handbolta sem sjúkraþjálfari.
Lesa frétt
24. apr. 2013
Vinnusmiðjan: Að virkja röddina í spuna og leiklist verður haldin mánudaginn 29. apríl nk. kl. 20:00-22:00 Í Háteigsskóla við Háteigsveg. Þórey Sigþórsdóttir, leikari og kennari, er leiðbeinandi. Verð: Kr. 3.000. Í vinnusmiðjunni fer Þórey í grunnatriði raddbeitingar og leiðir raddæfingar sem geta nýst í spuna og leik.
Lesa frétt
24. apr. 2013
Verkbann kennara í Danmörku hefur nú staðið í hart nær heilan mánuð. Á heimasíðu Folkeskolen segir frá viðbrögðum kennara sjálfra sem standa saman og stappa stálinu hver í aðra með ýmsum hætti. Á síðunni eru dæmi um að kennarar grípa til stílvopnsins og lýsa líðan sinni og aðgerðum sem þeir grípa til við þessar erfiðu aðstæður.
Lesa frétt
23. apr. 2013
„Við viljum búa til aðstæður þar sem bæði kennarar og sveitarfélögin geta hagnast. Kennsluskylda hvers kennara myndi aukast, en á móti fengi hann meiri laun,“ er haft eftir Halldóri Halldórssyni formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga í fréttaskýringu í Fréttablaðinu í dag. Hann bætir við að bati sveitarfélaganna fælist í því að kennurum mundi fækka nokkuð og skólarnir þyrftu að greiða færri yfirvinnutíma.
Lesa frétt
23. apr. 2013
Erla Elín Hansdóttir, dönskukennari í Kvennaskólanum, ritar nýjan Vikupóst á vef Félags framhaldsskólakennara. Þar gerir hún grein fyrir kjaradeilu danskra grunnskólakennara við sveitarfélögin þar í landi.
Lesa frétt
22. apr. 2013
Ársfundur KÍ 2013 var haldinn á Grand Hótel föstudaginn 19. apríl sl. Ársfundir eru haldnir þau ár sem þing er ekki haldið. Á ársfundinum voru lagðir fram reikningar Kennarasambandsins árið 2012, skýrsla yfir starfsemi Kennarasambandsins og þingkjörinna nefnda og gengið var frá starfsáætlun fyrir komandi ár.
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra ávarpaði fundinn og ræddi m.a. um þau brýnu framfaramál sem bíða starfsmanna ráðuneytisins á næsta kjörtímabili.
Lesa frétt
22. apr. 2013
Kennarasamband Íslands sendi öllum framboðum sem bjóða fram til Alþingiskosninga 2013 spurningar um skólamál og kjaramál kennara. KÍ er þeirrar skoðunar að menntamálin njóti ekki þeirrar athygli og virðingar sem þeim ber í kosningabaráttunni. Ekkert framboðanna hefur sett menntamálin á oddinn þótt sum hver hafi mótað metnaðarfulla stefnu í málaflokknum. Svör framboðanna verða birt hér á heimasíðu KÍ jafnóðum og þau berast og í þeirri röð sem þau berast.
Lesa frétt
19. apr. 2013
Þessi auglýsing birtist í Fréttablaðinu sl. föstudag og í Morgunblaðinu á laugardaginn, prentið hana endilega út og hengið upp!
Lesa frétt
19. apr. 2013
Efni frá Fræðslufundi skólamálaráðs KÍ, sem haldinn var þann 22. mars sl., er komið á vefinn. Þar er einnig að finna hljóðupptöku frá fundinum. Endilega kynnið ykkur fróðlegt og skemmtilegt efni.
Lesa frétt19. apr. 2013
Rannsóknarstofa um náttúrufræðimenntun efnir til málþings um nám og kennslu í náttúrufræðigreinum á 21. öldinni, miðvikudaginn 5. júní 2013 kl. 10:00 - 16:30. Málþingið verður haldið í aðalbyggingu Menntavísindasviðs við Stakkahlíð og er ætlað kennurum á öllum skólastigum. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá, fyrirlestra, kynningar og smiðjur. Aðalfyrirlesari málþingsins verður Michael Reiss prófessor við University of London.
Lesa frétt
19. apr. 2013
Leikskólinn Aðalþing stendur fyrir árlegri sumardagsráðstefnu sumardaginn fyrsta, þann 25. apríl, í Hannesarholti við Grundarstíg í Reykjavík undir heitinu
Lýðræði í leik og starfi. Skráning fer fram á
barnadagurinn.is.
Lesa frétt
19. apr. 2013
Í mars 2013 lét Kennarasamband Íslands gera könnun á starfsaðstæðum trúnaðarmanna KÍ skv. ályktun frá 5. þingi KÍ 2011. Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar á ársfundi KÍ í dag, 19. apríl.
Lesa frétt
19. apr. 2013
Stjórn Kennarasamband Íslands boðaði formenn þeirra stjórnmálaflokka, sem líklegastir eru til að ná sæti á Alþingi að kosningum loknum, til fundar með formönnum aðildarfélaga KÍ í Kennarahúsinu við Laufásveg nú í vikunni. Forysta KÍ álítur að skóla- og menntamál hafi verið stórlega vanrækt í aðdraganda kosninga. Fundurinn var liður í því að vekja athygli frambjóðenda á því og hvetja þá til að bæta um betur og setja þennan mikilvæga málaflokk á oddinn.
Lesa frétt
19. apr. 2013
Kennara í Vestmannaeyjum senda kollegum í Danmörku óvenjulega en skemmtilega hvatningarkveðju í kjarabaráttu sinni. Helga Tryggvadóttir
formaður Kennarafélags Vestmannaeyja sendi útgáfusviði KÍ sýnishorn og hægt er að skoða kveðjuna í heild sinni hér á vef KÍ.
Lesa frétt17. apr. 2013
Á visi.is í dag, 17. apríl, eru þrjár greinar um menntamál og skólastarf og einnig er ein grein í Morgunblaðinu. Á visi.is skrifar Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra greinina
Vinstri - græn setja framtíð skólastarfs á oddinn, Björn Leví Gunnarsson frá Pírötunum skrifar greinina
Menntun í síbreytilegu samfélagi, Fanný Gunnarsdóttir skrifar greinina
Menntastefna Framsóknar og svo í Morgunblaðið skrifar Sædís Ósk Harðardóttir frá Regnboganum greinina
Menntun fyrir alla á hvers og eins forsendum.
Lesa frétt
16. apr. 2013
Tónlistarskólar landsins fögnuðu uppskeru vetrarstarfsins á lokahátíð Nótunnar 2013 í Hörpu síðast liðinn sunnudag. Tónlist ómaði í Eldborgarsal Hörpu sem og í opnu rými Hörpu frá kl. 11-18 og sannkölluð hátíðarstemmning var ríkjandi allan daginn.
Tónlistarnemendum út um allt land er óskað til hamingju með daginn - þetta var þeirra dagur! Allir nemendur sem stigu á svið Eldborgar fengu viðurkenningarskjal fyrir þátttöku í lokahátíð Nótunnar 2013.
Eftirfarandi atriði hlaut farandgrip Nótunnar sem besta atriði hátíðarinnar 2013:
Tónlistarskólinn í Reykjavík (framhaldsnám - einleikur): Edda Lárusdóttir, þverflauta.
Hér má sjá þau atriði sem hlutu sérstakar viðurkenningar og verðlaunagripi á Nótunni 2013.
Lesa frétt16. apr. 2013
Félag forstöðumanna ríkisstofnana og verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti bjóða til morgunverðarfundar undir heitinu Einelti á vinnustöðum - Birtingarmyndir, afleiðingar og ábyrgð stjórnenda, miðvikudaginn 17. apríl nk. kl. 8:15-11:00 á Hilton Reykjavík Nordica.
Lesa frétt
16. apr. 2013
Miðvikudaginn 17. apríl klukkan 17 verður haldinn kynningarfundur um handleiðslufræði hjá Endurmenntun að Dunhaga 7.
Lesa frétt
16. apr. 2013
Í dag, 16. apríl, er alþjóðlegur baráttudagur raddarinnar. Röddin er atvinnutæki kennara. Kennslustarfið felur í sér að röddin er mikið notuð til að miðla námsefni til nemenda, leiðbeina og jafnvel til að halda aga. Góð og heilbrigð rödd er áheyrileg og kemur töluðu máli vel til skila við góð skilyrði. Forsendur góðrar raddheilsu er að talfærin séu frísk, fái að hreyfast eðlilega og að röddin sé notuð á réttan hátt. Gerum nokkrar léttar raddæfingar í tilefni dagsins!
Lesa frétt
15. apr. 2013
Tugir þúsunda danskra kennara mótmæltu verkbanni fyrir framan Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn og á fleiri stöðum í Danmörku þann 11. apríl síðastliðinn. Framhaldsskólakennarar í norrænu samstarfi NLS héldu þann dag árlegan fund sinn og tóku þátt í mótmælunum. Anna María Gunnarsdóttir, fulltrúi Íslands í því samstarfi, tók meðfylgjandi myndir af mótmælunum. Hún sagði að stemmingin hefði verið ótrúleg og greinilegt að kennarar ætla ekki að taka þátt í að rýra gæði skólastarfs í Danmörku.
Lesa frétt
15. apr. 2013
Regnbogabörn bjóða kennurum að taka þátt í samkomu í Háskólabíói 22., 23. og 24. apríl nk. Sérfræðingar úr fræði- og leikmannasamfélaginu halda röð fyrirlestra um málefni sem snerta okkur öll í daglegu lífi. Samkoman verður tekinn upp til útsendingar. Óskað er eftir að áhorfendur í sal verði viðstaddir upptökurnar og njóti fyrirlestranna um leið.
Lesa frétt
12. apr. 2013
Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur gefið út kynningarblað um nýju aðalnámskrárnar og er því dreift um allt land. Blaðinu er ætlað að kynna nemendum, foreldrum og öðrum hagsmunaaðilum nýjar áherslur í menntun leikskólabarna, grunn- og framhaldsskólanemenda. Þá hefur einnig verið opnaðu nýr vefur Nám til framtíðar, þar sem veittar eru upplýsingar um námsskrárnar, áherslur í menntamálum og fleira.
Lesa frétt
12. apr. 2013
Ársfundur Félags grunnskólakennara er haldinn 11.-12. apríl í Borgarnesi. Fundurinn samþykkti samhljóða að senda dönskum grunnskólakennurum baráttukveðjur í tilefni harðar baráttu félaga í DLF við sveitarfélögin sem hafa leitt af sér verkbann á kennara.
Lesa frétt11. apr. 2013
Félag heimspekikennara stendur í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands fyrir sumarnámskeiði um gagnrýna hugsun og grunnþætti menntunar dagana 31. maí, 1. júní og 3. júní. Farið verður yfir ólíkar leiðir til að beita gagnrýninni hugsun sem kennsluaðferð í að miðla grunnþáttum menntunar til nemenda á framhaldsskólastigi. Fjallað verður sérstaklega um gagnrýna hugsun og tengsl hennar við grunnþættina, en jafnframt skoðað hvaða forsendur búi að baki því að segja að kennsla, nám eða hugsun séu gagnrýnin.
Lesa frétt
11. apr. 2013
Talsmenn nokkurra framboða til Alþingis hafa brugðist við frétt á vef KÍ þar sem segir að ekkert þeirra setji menntamálin á oddinn. Árni Þór Sigurðsson (VG) segir í facebook-færslu að sinn flokkur hafi „sett fram metnaðarfulla áætlun um stórsókn í menntamálum velferðarmálum og heilbrigðismálum“ og skorar á forystu KÍ að leiðrétta fréttina. Björg Bjarnadóttir, varaformaður KÍ, svaraði Árna Þór og tók undir að áætlun VG væri metnaðarfull en eitt væri að setja áætlun og annað að setja mál á oddinn. Síðan bætti Björg við: „Það hefur farið fram hjá mér og okkur sem erum í forystu KÍ að skóla- og menntamál séu sett á oddinn í umræðum vegna kosninganna, en það eru vissulega nokkrir dagar til stefnu ennþá.“
Lesa frétt
11. apr. 2013
Norrænu kennarafélögin, í nafni NLS, hafa sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að þau styðji kennara í Danmörku í deilu þeirra við vinnuveitendur. Nordiska Lärarorganisationers samråd (NLS) er formlegur samráðsvettvangur norrænu kennarafélaganna. Kennarasamband Íslands er aðili að NLS. Undir yfirlýsinguna ritar Anders Rusk framkvæmdastjóri.
Lesa frétt
9. apr. 2013
Í aðdraganda Alþingiskosninga er brýnt að minna á mikilvægi menntunar í landinu. Komið er í ljós að skólastarf geldur kreppunnar og við það er ekki unað. Kennarasamband Íslands minnir félagsmenn á veggspjöldin „Látum ekki menntun gjalda kreppunnar“. Félagsmenn í öllum aðildarfélögunum eru hvattir til að koma við í Kennarahúsinu og sækja sér veggspjöld til að hengja upp sem víðast á áberandi stöðum. Hægt er að fá þau send í pósti. Full ástæða er til að vekja áhuga frambjóðenda og almennings á skólamálum. Ekkert framboðanna setur þau á oddinn.
Lesa frétt9. apr. 2013
Um 400 manns stunda nú meistara- eða diplómanám á fimm mismunandi námsleiðum við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Deildin er leiðandi hér á landi á öllum þessum sviðum bæði í kennslu og rannsóknum og hefur á að skipa framúrskarandi kennurum. Inntökuskilyrði á allar línur eru BA, BS eða BEd próf í einhverri grein. Allar upplýsingar eru í ítarlegum kynningarbæklingum deildarinnar.
Lesa frétt
8. apr. 2013
Félagsfundur Kennarafélags ME haldinn 18. mars 2013 fordæmir það ósamræmi sem er á milli framlaga ríkisins til launa framhaldsskólakennara og raunverulegra meðallauna þeirra.
Lesa frétt8. apr. 2013
Ráðstefna um málefni háskólanna á vegum Félags prófessora við ríkisháskóla (FPR) og Fræðagarðs, félags háskólamanna verður haldin í Hátíðarsal HÍ, 10. apríl nk. kl. 13:00 - 17:00. Sérstaklega er vakin athygli framhaldsskólakennara á ráðstefnunni.
Lesa frétt
8. apr. 2013
Rannsóknarstofa um skóla án aðgreiningar við Háskóla Íslands og Þjóðminjasafn Íslands standa fyrir erindinu Aðgengismál: Útsýnið handan þröskuldarins í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands, fimmtudaginn 11. apríl kl. 16:10-17:10. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Lesa frétt8. apr. 2013
Félag heimspekikennara stendur fyrir málþingi kl. 13:00, 13. apríl nk., í Réttarholtsskóla. Yfirskrift þess er:
Innleiðing grunnþáttanna: lýðræði, mannréttindi og jafnrétti í þverfaglegu skólastarfi. Málþingið er ætlað kennurum og öðru áhugafólki um uppeldi og menntun. Aðgangur er ókeypis og verða kaffiveitingar í boði Félags heimspekikennara.
Lesa frétt
4. apr. 2013
Sálfræðiþingið 2013 fer fram dagana 11. og 12. apríl nk. Föstudagurinn 12. apríl er ráðstefnudagur þingsins og í aðalfyrirlestri ráðstefnunnar fjallar Dr. Hermundur Sigmundsson, prófessor við sálfræðideild háskólans í Þrándheimi um Ný sjónarhorn á nám og færniþróun og þýðingu þeirra fyrir skólann. Í erindi sínu mun Hermundur koma inn á samspilið milli gena, taugakerfis, atferlis og umhverfis í þroska og námi. - ATH! Dagskráin er komin.
Lesa frétt3. apr. 2013
Fyrirhuguð er morgunverðarfundaröð, í framhaldi af HringÞingi um menntun innflytjenda, í samstarfi mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Fjölmenningarseturs og Reykjavíkurborgar. Fyrsti morgunverðarfundurinn verður haldinn föstudaginn 5. apríl kl. 8-10 á Grand hótel Reykjavík.
Lesa frétt
3. apr. 2013
Eins og margir félagsmenn hafa væntanlega tekið eftir þá voru Mínar síður ekki virkar fyrr í morgun en eiga að vera komnar í lag núna.
Lesa frétt2. apr. 2013
Opnað hefur verið fyrir skráningu á árlega ráðstefnu 3f um upplýsingatækni og skólastarf. Meðal viðfangsefna í ár eru spjaldtölvur í námi og kennslu, vendikennsla, Menntamiðja, skýið, Mooc fyrirbærið og gagnaukinn veruleiki. Ráðstefnan verður haldin þann 5. apríl nk. í Háskólanum í Reykjavík og hefst dagskrá kl. 13:00. Aðgangur er ókeypis.
Lesa frétt
2. apr. 2013
Þar sem úthlutanir á orlofshúsum hefjast í dag þykir rétt að benda á nokkur atriði varðandi bókanir.
Lesa frétt
27. mar. 2013
Úthlutun sumarhúsa og annarrar útleigu á vegum Orlofssjóðs KÍ hefur verið frestað lítillega af óviðráðanlegum orsökum. Félagsmenn fá
Ferðablaðið í hendur strax eftir helgina 16. - 17. mars en vonast er til að það verði komið á vef KÍ föstudaginn 15. mars. Úthlutun hefst 2. apríl fyrir þá sem eiga 300 punkta eða fleiri.
Lesa frétt
27. mar. 2013
Í allt sumar geta félagsmenn KÍ nýtt sér frábært tilboð til að fara í jöklaferðir upp á topp Langjökuls. Farið er í átta hjóla jöklatrukk sem er sérhannaður til jöklaferða og tekur 40 farþega. Tilboðið hljóðar upp á tveir fyrir einn frá 1. júní til 31. ágúst, hálft gjald fyrir 12 til 15 ára og ókeypis fyrir börn 0-11 ára.
Lesa frétt
27. mar. 2013
Launamiðar hafa verið sendir rafrænt til skattstjóra og allar upphæðir eru forskráðar á framtöl þeirra sem fengið hafa greiðslur úr sjóðum Kennarasamband Íslands, þar sem að KÍ sendir ekki afrit launamiða á pappír heim til félagsmanna.
Lesa frétt27. mar. 2013
Fyrirhuguð er morgunverðarfundaröð um menntun innflytjenda í samstarfi mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Fjölmenningarseturs og Reykjavíkurborgar. Fyrsti morgunverðarfundurinn verður haldinn föstudaginn 5. apríl kl. 8:00 - 10:00
á Grand hóteli í Reykjavík.
Lesa frétt21. mar. 2013
Föstudaginn 12. apríl boðar vinnuhópur um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs til opins fundar í nafni
Velferðarráðuneytisins, Jafnréttisráðs og Jafnréttisstofu. Fundurinn verður haldinn á Hótel KEA á Akureyri og stendur frá klukkan 13:00 - 16:00. Á fundinum verður meðal annars fjallað um það hvernig fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög geta unnið með samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs og stuðlað að fjölskylduvænni vinnustað og eða samfélagi.
Lesa frétt
20. mar. 2013
Evrópuverðlaun eTwinning voru veitt fyrir bestu eTwinning-verkefni ársins í nokkrum flokkum á árlegri hátíð í Lissabon 14.-16. mars sl. Þrír íslenskir kennarar: Anna Magnea Harðardóttir, Soffía Vagnsdóttir og Kolbrún Svala Hjaltadóttir komu við sögu hver í sínu verkefni.
Lesa frétt
19. mar. 2013
Dr. James Sampson, einn fremsti sérfræðingur Bandaríkjanna í notkun upplýsinga- og samskiptatækni í náms- og starfsráðgjöf heldur opinn fyrirlestur í Hátíðarsal Háskóla Íslands, fimmtudaginn 4. apríl n.k., kl. 15-16.
Lesa frétt
19. mar. 2013
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur skipað fulltrúa í fagráð um símenntun og starfsþróun kennara. Aðalmenn Kennarasambands Íslands í fagráðinu eru: Anna María Gunnarsdóttir (FF), Guðbjörg Ragnarsdóttir (FG), Björg Bjarnadóttir (FL), Ólafur H. Sigurjónsson (FS), Ingibjörg Kristleifsdóttir (FSL) Sigrún Grendal (FT) og Svanhildur María Ólafsdóttir (SÍ).
Lesa frétt
19. mar. 2013
Kennarafélag Flensborgarskólans skorar á mennta- og menningarmálaráðherra að beita sér fyrir auknum fjárframlögum til handa framhaldsskólum landsins og endurskoðun á forsendum reiknilíkans þess sem notað er við ákvörðun á fjárframlögum til framhaldsskólanna. Ljóst er að skólarnir sitja ekki við sama borð að þessu leyti og mikilvægt að leiðrétta þann ójöfnuð sem núverandi kerfi veldur.
Lesa frétt
18. mar. 2013
Ferðablað Orlofssjóðs KÍ er komið út. Það verður sent heim til félagsmanna í pósti að þessu sinni og ætti að berast næstu daga. Blaðið er aðgengilegt á vef KÍ í pdf-formi.
Lesa frétt
15. mar. 2013
Kennarasamband Íslands lét prenta fjögur veggspjöld í vetur og sendi í alla leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskóla landsins. Tilgangurinn með veggspjöldunum er að fá samfélagið til að hafna niðurskurði fjárframlaga til menntamála. Þau eru verkfæri fyrir kennara og annað skólafólk til að vekja athygli á þeim alvarlegu afleiðingum sem niðurskurðurinn hefur til langs tíma. Þeim er sérstaklega beint að stjórnmálamönnum og öðrum áhrifamönnum í samfélaginu.
Lesa frétt15. mar. 2013
Í stað þess að halda sumarnámskeið hefur stjórn Félags lífsleiknikennara ákveðið að halda námskeið 5.-6. apríl næstkomandi. Við hvetjum alla kennara til að skrá sig á námskeiðið: Hvernig kennum við jafnrétti kynjanna?
Lesa frétt14. mar. 2013
Kennarar í MA lýsa vanþóknun sinni á ítrekuðum lækkunum á launastiku reiknilíkans framhaldsskólanna í meðfylgjandi ályktun frá aðalfundi þeirra þann 12. mars síðastliðinn.
Lesa frétt

14. mar. 2013
Danska kennarasambandið, Danmarks Lærerforening (DLF) sem eru samtök danskra grunnskólakennara, halda fjögur námskeið í júní og júlí nk. ætluð kennurum á eftirlaunum.
Tveimur félögum úr Félagi kennara á eftirlaunum (FKE) er boðið að taka þátt í námskeiði að eigin vali segir í bréfi sem barst til KÍ undirrituðu af formanni DLF Anders Bondo Christiansen.
Lesa frétt
13. mar. 2013
Kynning á framhaldsnámi við Menntavísindasvið verður í Fjöru í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð þriðjudaginn 19. mars kl. 16:00-18:00. Kennarar og nemendur taka á móti gestum og kynna fjölbreytt framhaldsnám í þremur deildum Menntavísindasviðs: Kennaradeild, Uppeldis- og menntunarfræðideild og Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild.
Lesa frétt
13. mar. 2013
Formaður og varaformaður KÍ komu til fræðslufundar við félagsmenn á höfuðborgarsvæðinu í Hafnarfirði þann 5. mars sl. í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Jóhann Ingi Gunnarsson var með í för og var vel mætt á fundinn. Bilun í tækjabúnaði olli því að ekki var hægt að standa við að senda fundinn út í beinni útsendingu. Fundurinn var þó tekinn upp og er nú loksins aðgengilegur á vef KÍ.
Lesa frétt
12. mar. 2013
Næsti fræðslufundur Félags heimspekikennara verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 13. mars, kl. 20.00 í Verzlunarskóla Íslands. Þá heimsækir Ármann Halldórsson, heimspekikennari við Verzló, félagið og fjallar um heimspeki og spunaspil. Ármann hefur undanfarin misseri þróað leiðir til að kenna heimspeki í gegnum spunaspil og mun hann segja frá þessu starfi. Allir eru velkomnir á fræðslufundina og aðgangur er ókeypis. Kaffiveitingar í boði félagsins.
Lesa frétt11. mar. 2013
Stjórnir kennarafélaganna: KR, KFR og KMSK boð til kynningarfundar um lífeyrismál. Haukur Hafsteinsson framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) mun kynna sjóðinn og svara spurningum félagsmanna.
Lesa frétt
11. mar. 2013
Fræðslufundur KÍ fyrir kennara á Akureyri og í nágrenni verður haldinn í kvöld, 11. mars, kl. 17:00-19:00 í Verkmenntaskólanum, Hringteigi 2. Sjá auglýsingu
hér.
Lesa frétt
8. mar. 2013
Svæðadeildir Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla á höfuðborgarsvæðinu bjóða félagsmönnum í FL og FSL að sjá dönsku myndina Jagten þriðjudaginn 12. mars kl. 17:00. Sýningin verður í Bíó Paradís við Hverfisgötu. Frítt er fyrir félagsmenn FL og FSL meðan húsrúm leyfir.
Lesa frétt
7. mar. 2013
Í tilefni alþjóðabaráttudags kvenna er haldinn fundur á Grand Hótel Reykjavík, Gullteigi B föstudaginn 8. mars nk. kl. 11:45-13:00. Í upphafi fundar er framreidd létt máltíð og kaffi á kr. 2.500. Yfirskrift fundarins er: Kynhlutverk og kynskiptur vinnumarkaður - ný kynslóð, nýjar hugmyndir?
Lesa frétt
7. mar. 2013
Þann 8. mars nk. verður haldinn baráttufundur í Iðnó í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna. Fundarstjóri verður Lilja Nótt Þórarinsdóttir. Meðal sem fram koma eru Hildur Lilliendahl, Elsa B. Friðfinnsdóttir, Nurashima A. Rashid, Kristín Á. Guðmundsdóttir, Maríanna Traustadóttir, Steinunn Rögnvaldsdóttir og Birna Þórðardóttir.
Lesa frétt
6. mar. 2013
Málþing
Sjónarhóls:
Hvað höfum við lært? Hvert stefnum við? verður haldið 21. mars nk. Málþingið er haldið á Hótel Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 og hefst það kl. 12:30.
Lesa frétt
6. mar. 2013
Formaður og varaformaður KÍ komu til fundar í Hafnarfirði í gær, 5. mars í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Jóhann Ingi Gunnarsson var með í för og var vel mætt á fundinn. Bilun í tækjabúnaði olli því að ekki var hægt að standa við senda fundinn út í beinni útsendingu. Fundurinn var þó tekinn upp og verður aðgengilegur á vef KÍ strax og færi gefst.
Lesa frétt5. mar. 2013
Því miður virkar bein útsending ekki á netsamfélaginu (netsamfelag.is) frá fræðslufundi KÍ sem fram fer núna, 5. mars, í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Fundurinn verður þó tekinn upp og verður aðgengilegur á sama vef á morgun.
Lesa frétt
5. mar. 2013
Fræðslufundur fyrir kennara á höfuðborgarsvæðinu verður haldinn í Flensborgarskóla í Hafnarfirði í dag þriðjudaginn 5. mars. Fundurinn verður tekinn upp og sendur út í beint.
Lesa frétt
5. mar. 2013
Guðbjörg R. Þórisdóttir ritar athylisverða grein í Morgunblaðið í dag. „Ingibjörg er umsjónarkennari á yngsta stigi í dæmigerðum skóla og í dæmigerðum 20 barna bekk. Eins og lög gera ráð fyrir er skólinn rekinn skv. stefnunni »Skóli án aðgreiningar« og er það hlutverk Ingibjargar að sjá til þess að allir nemendur fái kennslu í samræmi við stöðu og þarfir, kennslu sem stuðlar að alhliða þroska, velferð og menntun allra nemenda sem hún hefur umsjón með.“
Lesa frétt
4. mar. 2013
Nýjar tölur Hagstofunnar sem sýna að kennurum, leiðbeinendum og öðru starfsfólki grunnskóla fer fækkandi koma Ólafi Loftssyni, formanni Félags grunnskólakennara ekki á óvart.
Lesa frétt
4. mar. 2013
Sem stendur stefnir allt í að grunn- og leikskólakennarar í Danmörku lendi í verkbanni af hálfu bæjar- og sveitarfélaga landsins í byrjun apríl. Um 50.000 kennara er að ræða en samningaviðræður milli stéttarfélags þeirra og bæjar- og sveitarstjórnanna eru sigldar í strand. Ekki er deilt um laun heldur vinnutíma.
Lesa frétt
4. mar. 2013
Fræðslufundi formanna KÍ sem halda átti á Akureyri í dag er frestað vegna óveðurs. Fyrirhugað er að fundurinn verði haldinn 11. mars kl. 17:00-19:00 í Verkmenntaskólanum, Hringteigi 2.
Lesa frétt
27. feb. 2013
Formaður og varaformaður KÍ standa fyrir fræðslufundum með félagsmönnum Kennarasambandsins víðs vegar um landið. Þegar hafa kennarar á Egilsstöðum, Borgarnesi, Selfossi, Ísafirði og Sauðárkróki verið sóttir heim.
Lesa frétt
27. feb. 2013
Dagana 11. og 12. mars nk. verður boðið upp á leiðbeinendanámskeið fyrir kennara, námsráðgjafa, skólasálfræðinga, skólahjúkrunarfræðinga og annað fagfólk skóla og félagsmiðstöðva til að kenna líkamsmyndarnámskeiðið Body Project.
Lesa frétt27. feb. 2013
Laugardaginn 2. mars nk. stendur Félag lýðheilsufræðinga fyrir vísindaráðstefnu undir heitinu
Lýðheilsa 2013 - Gagnrýnin hugsun og heilsa. Ráðstefnan stendur frá kl. 10:00 til 17:00.
Lesa frétt
25. feb. 2013
Formaður og varaformaður KÍ standa fyrir fræðslufundum með félagsmönnum Kennarasambandsins víðs vegar um landið. Þegar hafa kennarar á Egilsstöðum, Borgarnesi, Selfossi og Ísafirði verið sóttir heim. Næstu fundur verður á Sauðárkróki 27. febrúar.
Lesa frétt
25. feb. 2013
Magnús Þorkelsson, aðstoðarskólameistari við Flensborgarskóla og doktorsnemi á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, heldur erindið Enn ein skýrslan - sömu tillögurnar? 27. febrúar nk. í Háskóla Íslands við Stakkahlíð.
Lesa frétt
25. feb. 2013
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra afhenti fyrir hönd Sunnusjóðs Fjölbrautarskólanum í Ármúla skynörvunarbúnað handa fjölfötluðum nemendum. Búnaður þess er ætlaður til kenna þeim að þeir geti haft áhrif á umhverfi sitt.
Lesa frétt22. feb. 2013
Þeir sem hafa hug á að sækja um styrk til rannsókna- og þróunarverkefna skulu athuga að umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar nk. Sótt er um rafrænt á Mínum síðum sjá tengil á forsíðu KÍ.
Lesa frétt22. feb. 2013
Mennta- og menningarmálaráðuneytið stendur fyrir heilsdags málþingi undir heitinu
Skóli margbreytileikans og stoðkerfi skóla á Grand Hótel Reykjavík, þriðjudaginn 5. mars nk. Sjónum verður beint að skólagöngu nemenda með sérþarfir og umræðu um stefnu um skóla án aðgreiningar sem fylgt hefur verið hér á landi mörg undanfarin ár.
Lesa frétt
21. feb. 2013
Formaður og varaformaður KÍ leggja nú land undir fót standa nú fyrir fræðslufundum með félagsmönnum víðs vegar um landið. Þegar hafa kennarar á Egilsstöðum og í Borgarnesi verið sóttir heim. Fundirnir eru byggðir upp þannig að formennirnir halda stutt framsöguerindi og síðan heldur Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur hvatningarræðu.
Lesa frétt
21. feb. 2013
Dagana 14. og 15. mars verður haldið námskeið fyrir grunnskólakennara í auglýsingalæsi og markaðslæsi. Námskeiðið fjallar m.a. um efnishyggju, áhrif hennar og siðfræði auglýsinga. Athygli verður beint að lífstíl, vörumerkjatryggð og ástæðum hennar. Áhersla er lögð á áhugaverð námsgögn og forvitnilega nálgun sem nýta má í kennslu barna og ungmenna.
Lesa frétt
20. feb. 2013
Miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna standa fyrir málþingi þann 28. febrúar að Grand Hótel í Reykjavík. Fjallað verður um hvernig kynin birtast okkur í samfélaginu. Jafnrétti kynjanna er ofarlega í opinberri umræðu og undanfarið hefur verið rætt um birtingarmyndir kynjanna í samfélaginu, t.d. í félagslífi framhaldsskólanna.
Lesa frétt
19. feb. 2013
Kennarasamband Ísland hefur látið prenta fjórar útgáfur veggspjalda, annars vegar í stærðinni A3 og hins vegar A4. Veggspjöldin eru hönnuð í Belgíu á vegum Alþjóðasambands kennara (EI) og þar var íslenskur texti settur á þau. Ákveðið hefur verið að senda í pósti fjögur veggspjöld af stærri gerðinni, eitt af hverri útgáfu í alla skóla landsins.
Lesa frétt
19. feb. 2013
Undanfarin ár höfum við í FB rekið framhaldsskólabraut þar sem við vinnum með nemendum sem ekki náðu tilskildum árangri í grunnskóla til að hefja nám á öðrum brautum skólans. Þá reynir á okkur kennara að hugsa námsefni og kennslu á annan hátt, að leita nýrra leiða og læra af öðrum sem náð hafa árangri.
Lesa frétt
19. feb. 2013
Formaður og varaformaður KÍ ferðast um landið og boða félagsmenn á fræðslufund um Kennarasambandið. Næsti fundur er á Selfossi, miðvikudaginn 20. febrúar, kl. 17:00-19:00.
Lesa frétt
19. feb. 2013
Laun félagsmann í Félagi grunnskólakennara verða hækkuð þann 1. mars nk. um 4%. Laun flestallra stéttarfélaga hækka um 3,25% um þessar mundir en þar sem samningar grunnskólakennara voru lausir var ekki tryggt að þeir nytu þessara kjarabóta.
Lesa frétt
18. feb. 2013
Miðvikudaginn 20. febrúar verður þriðja erindið í málstofuröðinni um framhaldsskólarannsóknir haldið. Þá mun Gestur Guðmundsson halda erindið
Staða starfsmenntunar og horfur á næstu árum.Lesa frétt
18. feb. 2013
Þann 1. mars næstkomandi hækka launatöflur eftirtalinna aðildarfélaga í Kennarasambandi Íslands sem hér segir: Félag leikskólakennara 3,97%,Félag grunnskólakennara 4,0%, Félag stjórnenda leikskóla, Félag framhaldsskólakennara, Félag stjórnenda í framhaldsskólum og Skólastjórafélag Íslands 3,25%, Félag tónlistarskólakennara: kennarar 3,66% en stjórnendur um 3,25%.
Lesa frétt
18. feb. 2013
Málþing um starfsánægju og líðan leikskólakennara, 28. febrúar 2013, haldið í Bratta, húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Lesa frétt
15. feb. 2013
Stjórn Kennarasambands Íslands blæs til sóknar og heldur fræðslufundi með félagsmönnum á átta stöðum, víðs vegar um land núna í febrúar og mars. Yfirskrift fundanna er: „Að standa með kennurum“. Með fundunum er samþykkt 5. þings KÍ frá 2011 framfylgt, en þar er því beint til stjórnar KÍ að „... að halda áfram að skipuleggja almenna fræðslufundi fyrir félagsmenn um helstu réttinda- og hagsmunamál.“
Lesa frétt
15. feb. 2013
KÍ/framhaldsskóli og Samninganefnd ríkisins gengu í dag, 15. febrúar, frá samkomulagi um breytingar á kjarasamningum aðila vegna breytinga á kjarasamningum á almennum markaði. Í samkomulaginu felst að samningstíminn er styttur um tvo mánuði og rennur út þann 31. janúar 2014. Jafnframt er eingreiðslu, kr. 38.000, sem vera átti þann 1. mars 2014 flýtt fram til 1. janúar 2014. Eingreiðslan breytist í hlutfalli við starfshlutfall í nóvember 2013. Við næstu samninga verður sú útfærsla 0,1% hækkunar iðgjalds til mennta- og fræðslusjóða metin og þá ákveðið hvernig sambærileg niðurstaða verði útfærð gagnvart félagsmönnum KÍ í framhaldsskólum.
Lesa frétt

14. feb. 2013
Forsendunefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi aðildarfélaga ASÍ, BHM, BSRB og KÍ vegna kjarasamninga aðila frá 2011 hafa komist að niðurstöðu um viðbrögð við breytingu á kjarasamningum á almennum markaði. Í kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og stéttar- og verkalýðsfélaga innan ASÍ, BHM, BSRB og ASÍ, sem gerðir voru á árinu 2011, eru ákvæði um forsendunefndir aðila og skipan þeirra. Þau aðildarfélög KÍ sem niðurstaðan varðar eru: KÍ, FSL, FT og FL.
Lesa frétt
14. feb. 2013
Ólafur Loftsson formaður FG ritar grein í Fréttablaðið og visir.is í dag. Ólafur segir m.a.: Grunnvandamálið er vilja- og/eða áhugaleysi sveitarfélaganna til að reka grunnskólann. Sveitarfélögin hafa ekki forgangsraðað í þágu menntunar. Það kostar að halda úti öflugu skólastarfi. Það er búið að skera niður í skólakerfinu ár eftir ár m.a. með fyrrgreindum afleiðingum. Nú er svo komið að skólastjórnendur eru búnir að fá nóg og nýlega hættu tveir þeirra störfum, þar sem þeir treysta sér ekki til að halda úti lögbundinni kennslu miðað við það fjármagn sem þeir hafa úr að spila.
Lesa frétt
14. feb. 2013
Stjórnvöld í Lettlandi bjóða fram styrk handa íslenskum námsmönnum eða kennurum til háskólanáms eða rannsókna í Lettlandi námsárið 2013-2014. Einnig eru í boði styrkir til að sækja sumarnámskeið.
Lesa frétt
11. feb. 2013
Á fundi stjórnar Félags leikskólakennara var meðfylgjandi ályktun samþykkt.
Lesa frétt
11. feb. 2013
Kennarafélag Fjölbrautaskólans í Garðabæ hélt félagsfund föstudaginn 8. febrúar sl. og var þá meðfylgjandi ályktun samþykkt.
Lesa frétt
11. feb. 2013
ADHD samtökin standa fyrir námskeiði um skólagöngu barna með athyglisbrest og ofvirkni fimmtudaginn 28. febrúar og föstudaginn 1. mars nk. Námskeiðið er ætlað kennurum og öðru starfsfólki grunnskóla.
Lesa frétt
11. feb. 2013
Þá er komið að annarri málstofunni sem Námsbraut um kennslu í framhaldskólum og Rannsóknarstofa um þróun skólastarfs boða til um rannsóknir á framhaldsskólastarfi. Þann 13. febrúar mun Árný Helga Reynisdóttir, framhaldsskólakennari og meistaranemi í Kennaradeild halda erindið: Er komið að þáttaskilum í framhaldsskólum? Málstofan er haldin í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð í stofu K206 kl. 16:20-17:05.
Lesa frétt
8. feb. 2013
Nokkuð hefur borið á fyrirspurnum frá félagsmönnum varðandi hvar þeir finna upplýsingar um punktaeign sína.
Lesa frétt
8. feb. 2013
Anna Margrét Ólafsdóttir leikskólastjóri í Nóaborg fékk á dögunum verðlaun fyrir besta barnaefnið á netinu, námsleikjavefinn Paxel 123. Hún deildi verðlaununum með Selmu Hrönn Maríudóttur sem fékk verðlaunin fyrir grallarasögur á síðunni Grallarar.is. SAFT á Íslandi efndi til samkeppni um besta vefinn í tilefni af Alþjóða netöryggisdeginum.
Lesa frétt
7. feb. 2013
Skóla- og frístundaráð afgreiddi á fundi sínum í dag almenna styrki og þróunarstyrki til skóla- og frístundastarfs. Yfir sjötíu umsóknir bárust og fengu fjörutíu verkefni styrki fyrir alls um 30 milljónir króna.
Lesa frétt
7. feb. 2013
Nokkuð hefur verið rætt og ritað um leikskólastigið undanfarin misseri. Leikskólakennarar eru vanir því að berjast fyrir tilverurétti sínum. Það er ekkert nýtt. Leikskólakennarar hafa líka alltaf barist með jákvæðni og bjartsýni að leiðarljósi. Það ætlum við að halda áfram að gera, því það er það sem heldur okkur saman og gerir okkur að stoltum sérfræðingum á framsæknu skólastigi.
Lesa frétt
7. feb. 2013
Málþing Lions verður haldið í Norræna húsinu þriðjudaginn 12. febrúar 2013 kl. 16:30-18:30. Á málþinginu fjallar fagfólk um þennan mikla vanda og leitar lausna. Markmiðið er að vekja athygli og kveikja áhuga, meðal Lionsfélaga, fagfólks og almennings, svo við getum í sameiningu bætt læsi Íslendinga, jafnt barna sem fullorðinna. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.
Lesa frétt
6. feb. 2013
Orðsporið 2013 hlutu þrír aðilar. Kristín Dýrfjörð, dósent við Háskólann á Akureyri, og Margrét Pála Ólafsdóttir skólastjóri fyrir umfjöllun um leikskólastarf hvor á sínum vettvangi frá ólíkum sjónarhornum. Báðum hefur tekist að skapa og finna sinn vettvang til þess. Súðavíkurhreppur hlýtur Orðsporið 2013 fyrir að bjóða upp á sex klukkustunda gjaldfrjálsan tíma á dag fyrir öll börn á leikskólaaldri og skapa þannig tækifæri fyrir öll börn til að sækja leikskóla.
Lesa frétt6. feb. 2013
KR, KFR og KMSK boða til kynningarfundar á Vonarsjóði FG. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 26. febrúar kl. 17:00 í Rimaskóla í Grafarvogi. Stjórn sjóðsins mun kynna sjóðinn og svara fyrirspurnum félagsmanna. Félagsmenn er hvattir til að fjölmenna á fundinn, kynna sér málefni sjóðsins og koma á framfæri ábendingum og tillögum.
Lesa frétt6. feb. 2013
Námsmatsstofnun kynnir flokk námskeiða um próf sem hún gefur úr.
Lesa frétt
5. feb. 2013
Nám ehf. býður upp á þrjú stutt tækniverkstæði fyrir kennara þar sem þeir fá tækifæri til að ná betra valdi á afmörkuðum þáttum sem tengjast því að nota vefinn við starf sitt.
Lesa frétt
5. feb. 2013
Á síðastliðnu ári, 2012, voru tekin viðtöl við leikskólabörn í tengslum við Dag leikskólans 6. febrúar. Skemmtilegt er að rifja upp sniðug tilsvörin frá fulltrúum framtíðarinnar.
Lesa frétt
5. feb. 2013
Öskudagsráðstefnan 2013, ætluð grunnskólakennurum í Reykjavík, verður í Gullhömrum við Þjóðhildarstíg 2, 13. febrúar nk. kl. 13:00-16:45. Tveir erlendir gestir Geoff Hannan, breskur skólamaður og ráðgjafi á sviði skólamála og Josef Huber frá menntastofnun Evrópuráðsins, verða með erindi á ráðstefnunni.
Lesa frétt
4. feb. 2013
Í tilefni dags leikskólans 6. febrúar verður þann dag í fyrsta skipti veitt viðurkenningin Orðsporið. Tilnefningar til Orðsporsins er hægt að sjá
hér.
Lesa frétt
4. feb. 2013
Röð funda hefst þann 6. febrúar 2013 þegar Guðrún Ragnarsdóttir, framhaldsskólakennari og doktorsnemi í rannsóknarstöðu á Menntavísindasviði við Háskóla Íslands heldur fyrirlesturinn: „Rannsóknir og umbótastarf á framhaldsskólastigi í upphafi 21. aldarinnar“. Fundurinn verður á Menntavísindasvið kl. 16:20-17:05 í stofu K-206 Stakkahlíð.
Lesa frétt
1. feb. 2013
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í tíunda sinn þann 5. febrúar næstkomandi. Þemað í ár er „Réttindi og ábyrgð á netinu“. Sjötíu þjóðir um allan heim standa fyrir skipulagðri dagskrá þennan dag.
Lesa frétt
1. feb. 2013
Föstudagurinn 1. febrúar er dagur stærðfræðinnar 2013. Viðfangsefnið að þessu sinni er stærðfræði og lýðheilsa. Á vef Flatar, Félags stærðfræðikennara eru nokkur verkefni og þrautir sem ættu að vekja hugmyndir kennara, t.d. Blöðruleikur og Fótboltaþraut.
Lesa frétt
1. feb. 2013
Aðalheiður Steingrímsdóttir ritar grein í Fréttablaðið: Starfshópur forsætisráðuneytis sendi frá sér skýrslu nýlega um samþættingu mennta- og atvinnustefnu. Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingar, leiddi starfið með fulltrúum ráðuneyta, háskóla, atvinnulífs og ASÍ.
Lesa frétt
30. jan. 2013
Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Þróunarsjóði námsgagna. Umsóknarfrestur er til 11. febrúar 2013. Hlutverk þróunarsjóðs námsgagna er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Markmiðið er að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla.
Lesa frétt
30. jan. 2013
Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur 6. febrúar ár hvert en hann er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Í tilefni dagsins nú verður í fyrsta skipti veitt viðurkenningin Orðsporið. Hún er veitt þeim sem þótt hafa skarað fram úr og unnið ötullega í þágu leikskóla og/eða leikskólabarna.
Lesa frétt
30. jan. 2013
Markmið námskeiðsins er að kennarar á leikskólastigi og yngsta stigi grunnskóla fái þjálfun í jafnréttisáherslum í starfi sínu. Þátttakendur kynnast kennslufræðilegum aðferðum og hugmyndum að jafnréttisstoðum í skólastarfinu. Bæði form og innihald verður skoðað. Námskeiðið er ætlað leik- og grunnskólakennurum og öðru starfsfólki leik- og grunnskóla.
Lesa frétt
30. jan. 2013
Markmið námskeiðsins er að kennarar á mið- og efsta stigi grunnskóla öðlist hugrekki og hæfni til að jafnréttisfræða nemendur. Þátttakendur kynnast kennslufræðilegum aðferðum sem hafa gagnast í kynja- og jafnfréttisfræðslu. Farið er yfir helstu þætti sem þarf að taka fyrir í slíkri kennslu, farið stuttlega í hvern þátt og notuð dæmi um árangursríka kennsluhætti. Bæði form og innihald verður skoðað.
Lesa frétt
30. jan. 2013
Á vorönn 2013 hrindir Félag heimspekikennara af stað fræðslufundaröð. Á hverjum fundi er gestafyrirlesari fenginn til að ræða tiltekið málefni eða spurningu. Fyrsti fundurinn verður haldinn í Verzlunarskóla Íslands í kvöld, 30. janúar, kl. 20, en þá hittir Páll Skúlason félagsmenn til að ræða spurninguna „Hvað er heimspekikennsla?“
Lesa frétt28. jan. 2013
Jógasetrið stendur fyrir helgarnámskeiði í krakkajóga fyrir foreldra, kennara og aðra, dagana 5.-7. apríl.
Lesa frétt
28. jan. 2013
Samþykkt hefur verið að breyta fyrirkomulagi á niðurgreiðslu á gönguferðum næsta sumar. Núna geta félagsmenn keypt gjafabréf í gönguferð/ir annað hvort hjá Ferðafélagi Íslands eða Útivist og síðan valið úr ferðum hjá hvoru ferðafélagi um sig. Hver félagsmaður getur keypt tvö gjafabréf/miða.
Lesa frétt
28. jan. 2013
Nú er endurbótum á sjö orlofshúsum í Ásabyggð lokið.
Lesa frétt
28. jan. 2013
Rannsóknarstofa um skóla án aðgreiningar og Kristín Axelsdóttir M.Ed. kynna rannsóknina „Aðeins orð á blaði?“ 31. janúar, 2013 kl. 16:15 -17:15 í Þjóðminjasafninu.
Lesa frétt
25. jan. 2013
Kennarasamband Íslands skorar á stjórnvöld að ganga nú þegar frá endurskoðun stofnanasamninga hjúkrunarfræðinga á Landspítala Háskólasjúkrahúsi. Hjúkrunarfræðingar eru lykilstarfsmenn í heilbrigðiskerfinu. Þeir sinna afar mikilvægum störfum sem eru vanmetin til launa, eins og mörg önnur störf þar sem konur eru í miklum meirihluta.
Lesa frétt
24. jan. 2013
Kennarasamband Íslands fagnar samþykkt ríkisstjórnar um aðgerðir gegn kynbundnum launamun. Á formannafundi KÍ, 24. janúar 2013, var samþykkt ríkisstjórnarinnar um aðgerðir gegn kynbundnum launamun fagnað. Kynjahlutfall félaga í Kennarasambandi Íslands er 80% konur og 20% karlar og því blasir við að samþykkt ríkistjórnarinnar sé jákvætt innlegg í kjaraviðræður kennara og auki þeim bjartsýni.
Lesa frétt
24. jan. 2013
Umræður um kynjabundinn launamun hjá hinu opinbera fóru fram á Alþingi í morgun. Málshefjandi Unnur Brá Konráðsdóttir (Sjálfst.fl.) krafði stjórnvöld um aðgerðir í stað orða í baráttunni við launamun kynjanna þar sem mjög hallar á konur einkum þær sem starfa hjá hinu opinbera. Vitnaði hún m.a.í könnun á vegum SFR máli sínu til stuðnings. Hópur þingmanna steig í fundarstól og voru á einu máli um mikilvægi málsins.
Lesa frétt
24. jan. 2013
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og Svana Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins undirrituðu í dag samning um aðgerðaáætlun til að efla grunnmenntun í raunvísindum og tækni.
Lesa frétt
24. jan. 2013
Margir grunnskólakennarar vinna yfir 50 klukkustundir á viku, en vinnuvika kennara í fullu starfi eru 42,86 stundir. Mörg dæmi eru um að þeir fái ekki greitt aukalega fyrir þessa auknu vinnu, kennarar eru orðnir langþreyttir á skilningsleysi sveitarfélaganna og vilja nú skilgreina hvaða störfum þeim beri að sinna. Vinnuálagið hefur aukist mikið undanfarin ár.
Lesa frétt
23. jan. 2013
Félagsmenn í FF og aðrir sem áhuga hafa geta nú skoðað upptökuna af almennum félagsfundi FF sem haldinn var í Flensborgarskóla fimmtudaginn 17. janúar sl.
Lesa frétt
23. jan. 2013
Fjöldi áhugaverðra sumarnámskeiða verður haldinn á vegum Símenntunarstofnunar Cambridge-háskóla í júlí og ágúst næsta sumar. Námskeiðin eru ætluð m.a. kennurum. Kennt er á ensku. Námskeiðin taka allt frá einni viku upp í fjórar. Dæmi um viðfangsefni eru: Ancient Empires, History, Shakespeare, Medieval Studies, Literature og Science.
Lesa frétt
23. jan. 2013
Félag framhaldsskólakennara hefur gefið út nýtt Rautt epli, rafrænt fréttabréf. Þetta er 2. tbl. 2013 og er helgað almennum félagsfundi sem haldinn var í Flensborgarskóla 17. janúar síðastliðinn. Fundurinn bar yfirskriftina: Staðan í samningamálum og önnur mál sem lúta að starfsemi Félags framhaldsskólakennara.
Lesa frétt
23. jan. 2013
Haldið var upp á afmæli Unnar Stefánsdóttur í Heilsuleikskólanum Urðarhóli í Kópavogi 18. Janúar sl. Unnur var upphafsmaður Heilsustefnunnar sem 21 leikskóli á Íslandi starfar nú eftir. Í tilefni dagsins var opnuð ný vefsíða Heilsustefnunnar og frumsýnt kynningarmyndband sem Unnur lét gera nokkrum mánuðum áður en hún lést þann 8. ágúst 2011.
Lesa frétt
23. jan. 2013
Verkefna- og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands auglýsir styrki til félagsmanna sinna sem vinna að rannsóknum, þróunarverkefnum og nýbreytni í kennsluháttum í grunnskólum skólaárið 2013-2014.
Lesa frétt
23. jan. 2013
Barnavinafélagið Sumargjöf auglýsir styrki til rannsókna, lista- og þróunarverkefna sem geta nýst börnum á leik- og grunnskólaaldri. Umsókn ásamt greinargerð um verkefnið skal senda fyrir 17. febrúar 2013. Stjórn Barnavinafélagsins Sumargjafar áskilur sér rétt til að óska eftir nánari upplýsingum um verkefnið og fjármögnun þess og leita umsagnar fagaðila.
Lesa frétt
22. jan. 2013
Í fréttatíma ríkissjónvarpsins í gærkvöldi var sagt frá stöðu kjaramála. Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa náð saman og framlengdu kjarasamning sinn en kjaradeila Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga er í hörðum hnút.
Lesa frétt
18. jan. 2013
Á fundinum sem haldinn var í Flensborgarskóla í Hafnarfirði fimmtudaginn 17. janúar var eftirfarandi ályktun samþykkt:
Lesa frétt
18. jan. 2013
Bjarki Karlsson ritstjóri veftímaritsins Skímu, sem er málgagn Samtaka móðurmálskennara, ritar grein um íslenska málstefnu og bendir á að misræmis gæti í íslenskri málstefnu frá 2009 og nýju námskránni frá 2011.
Lesa frétt
18. jan. 2013
Ætlaður félagsmönnum KÍ á stór Reykjavíkursvæðinu og Reykjanesi. KR, KFR og KMSK boða til kynningarfundar um Orlofssjóð KÍ. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 22. janúar kl.16:30 í Snælandsskóla í Kópavogi. Elís Þór Sigurðsson formaður orlofssjóðs kynnir sjóðinn og svara fyrirspurnum.
Lesa frétt
17. jan. 2013
Kennarasamband Íslands er aðili að Alþjóðasambandi kennara EI. Eitt helsta baráttumál allra kennarasambanda í heiminum er að bjarga menntun frá efnahagskreppunni. Til að vekja athygli á því hefur EI látið hanna veggspjöld á fjölda tungumála. Íslenska útgáfan er nú aðgengileg á heimasíðu KÍ og geta félagsmenn prentað hana út til að hengja upp í skólum sínum.
Lesa frétt
17. jan. 2013
Magnús Pétursson ríkissáttasemjari telur að tvennt megi betur fara við gerð kjarasamninga. Annars vegar þurfi að endurskoða tilgang viðræðuáætlana og að mikilvægt sé að samningsaðilar þekki vel efnahagsforsendur.
Lesa frétt
14. jan. 2013
Upp á síðkastið hafa komið upp mál þar sem danskir háskólar hafa neitað íslenskum námsmönnum um aðgang að námsbrautum sínum með tilvísun til þess að þeir hafi ekki nógu góðar forsendur í dönsku. Mest ber á þessu hjá Verslunarháskóla Kaupmannahafnar, CBS. Þar nefna menn kröfu um 12 framhaldsskólaeiningar í dönsku til stúdentsprófs.
Lesa frétt
14. jan. 2013
Hlutverk Þróunarsjóðs námsgagna er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Markmiðið er að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna
í samræmi við þarfir nemenda og skóla.
Lesa frétt
14. jan. 2013
Í tilefni af opnun nýrrar yogastöðvar í Kópavogi, Yogavin Auðbrekku 2, býður stöðin kennurum frítt í yoga vikuna 21.-26. janúar.
Lesa frétt
14. jan. 2013
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Höskuldur Ólafsson formaður Samtaka fjármálafyrirtækja undirrituðu samning um átak og aðgerðir til að efla fjármálalæsi í grunn- og framhaldsskólum í Hagaskóla eftir hádegið í dag.
Lesa frétt14. jan. 2013
Á árinu 2012 veitti mennta- og menningarmálaráðuneyti styrki til að efla starfsmenntun til 86 verkefna, samtals að fjárhæð 171 millj. kr. samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar um átakið Nám er vinnandi vegur. Styrkjunum er ætlað að efla starfstengt nám á framhalds- og háskólastigi og í framhaldsfræðslu. 45 aðilar sóttu um styrki til 117 verkefna, samtals um 246 millj. kr. Farið var yfir umsóknirnar í ráðuneytinu og tillaga um úthlutun lögð fyrir stýrihóp verkefnisins, sem ákvað að leggja til við ráðherra að úthlutað yrði styrkjum fyrir samtals 171.022.000 kr. til 86 verkefna.
Lesa frétt14. jan. 2013
Hlutverk Endurmenntunarsjóðs grunnskóla er að veita fé til endurmenntunar kennara og stjórnenda grunnskóla. Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir kennara og stjórnendur grunnskóla geta sótt um framlög úr sjóðnum, þar á meðal grunnskólar, skólaskrifstofur, sveitarfélög, símenntunarstofnanir, félög, fyrirtæki og aðrir. Frestur til að sækja um styrk til verkefna vegna skólaársins 2013-2014 er til og með 18. febrúar 2013.
Lesa frétt
11. jan. 2013
Alls 152 félagar í Félagi grunnskólakennara og Skólastjórafélagi Íslands sóttu um námsleyfi úr Verkefna- og námsstyrkjasjóði FG og SÍ (Vonarsjóði) 2013-2014. Tíu hlutu leyfi.
Lesa frétt11. jan. 2013
Leikskólastjórar, skólastjórar eða skólameistarar fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara geta sent inn umsókn í Sprotasjóð. Aðrir aðilar en skólar geta sótt um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim tilfellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn.
Lesa frétt
11. jan. 2013
Kynningarnefnd FL og FSL veitir viðurkenninguna Orðsporið 2013 í tilefni af degi leikskólans 6. nk. Orðsporið hljóta þeir sem hafa unnið ötullega í þágu leikskóla og/eða leikskólabarna.
Lesa frétt
10. jan. 2013
Ferða-, námskeiðs og uppihaldsstyrkir eru veittir til kennara og starfsfólks skóla á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi til að sækja fjölþjóðleg endurmenntunarnámskeið frá einum degi í allt að 6 vikur. Einnig er möguleiki á að sækja um að fara og fylgjast með starfi í skóla í Evrópu og sækja evrópskar ráðstefnur. Upplýsingar um endurmenntunarnámskeið fyrir kennara og skólafólk í þátttökulöndum er að finna í námskeiðsgagnagrunni Comenius.
Lesa frétt
10. jan. 2013
Vefurinn Leikur að læra er fyrir kennara tveggja til níu ára barna. Hér geta kennara fundið leiki og æfingar þar sem samþætting hreyfingar við stærðfræði-, bókstafa og hljóða-, lita- og formakennslu er höfð að leiðarljósi.
Lesa frétt
9. jan. 2013
Námskeið í gerð Comenius samstarfsumsókna verður haldið í Námu, sal Endurmenntunar HÍ við Dunhaga, 15. janúar nk. Námskeiðið er ætlað leik-, grunn- og framhaldsskólakennurum og þeim sem kenna við fullorðinsfræðslustofnanir.
Lesa frétt9. jan. 2013
KR, KFR og KMSK boða til kynningarfundar um Orlofssjóð KÍ. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 22. janúar kl. 16:30 í Snælandsskóla í Kópavogi.
Lesa frétt
8. jan. 2013
Modern Storytelling for Teachers í Nykøbing á Sjálandi býður upp á námskeið í frásagnarlist í júní 2013. Námskeiðið er m.a. ætlað kennurum innan Evrópusambandsins og EES sem hafa áhuga á að nota frásagnarlist í kennslu.
Lesa frétt
8. jan. 2013
Infocus Training býður upp á námskeið í upplýsingatækni A Fun and Interactive Learning Experience with Digital Creative Tools á Írlandi í 7.-13. júlí og 14.-20. júlí 2013. Námskeiðin eru ætluð leik-, grunn- og framhaldsskólakennurum innan Evrópusambandsins og EES, sérkennurum og þeim sem kenna fullorðnum.
Lesa frétt
7. jan. 2013
Gaman saman með nótum og táknum er spil fyrir börn og fullorðna, nemendur og kennara, sem byggist á því að læra helstu undirstöðutákn og nótur í tónlist. Lært er gegnum leik um ýmis tónlistartákn og nótur t.d. hvar nóturnar eru á G- og F- lykli á fjóra mismunandi vegu.
Lesa frétt
4. jan. 2013
Fréttabréf Félags stjórnenda leikskóla birtist nú í fyrsta sinn með nýju sniði. Sum aðildarfélög KÍ hafa valið að gefa út sín eigin fréttabréf undir heitinu Epli og hafa sama útlit en mismunandi liti. Þessi sérstöku Epli færa fréttir af málum sem varða hvert aðildarfélag sérstaklega. Stjórnir félaganna sjá um ritstjórn og útgáfu sinna fréttabréfa en njóta stuðnings útgáfustjórnar KÍ. Hið hefðbundna Epli KÍ kemur áfram út með sama hætti og hingað til og færir fréttir af sameiginlegum vettvangi allra aðildarfélaga KÍ.
Lesa frétt
4. jan. 2013
Hafin er vinna við verklag sem ætlað er að efla samstarf barnaverndar og skóla til að undirbúa skólagöngu fósturbarna og eftirfylgni. Verklagið byggist á Reglugerð um skólagöngu fósturbarna í grunnskólum
Lesa frétt
4. jan. 2013
Verkefnið Leikskólalæsi hefur verið birt á vef Dalvíkurbyggðar. Verkefnið felst í áætlunum um hvernig leikskólakennarar og kennarar yngstu barna í grunnskólum geta unnið með læsi. Verkefnið byggist á markmiðum nýrrar aðalnámskrár.
Lesa frétt
3. jan. 2013
Jórunn Tómasdóttir framhaldsskólakennari í Fjölbrautaskóla Suðurnesja ritar grein í Fréttablaðið þann 28. desember sl. Þar fjallar hún um hlutverk framhaldsskólans í nútíma samfélagi.
Lesa frétt
8. okt. 2012
Auður Ingibjörg Konráðsdóttir heilsukokkur heldur annað námskeið fimmtudaginn 1. nóvember nk. þar sem hún heldur áfram að gefa hugmyndir að einföldum, fljótlegum og ofurhollum réttum og drykkjum sem gæla við bragðlaukana og næra, styrkja og efla líkama og sál. Um að gera að skrá sig sem fyrst þar sem námskeiðin fyllast fljótt!
Lesa frétt26. sep. 2012
Hagstofa Íslands tók saman áhugaverðar niðurstöður um skólamál. Fram kemur að sveitafélög hafi gripið til ýmissa aðgerða til að spara útgjöld t.d. fækkun grunnskóla, fjölgun nemenda í bekk o.fl. Á sama tíma hefur sérkennslustundum fjölgað síðustu tvö ár. Þar kemur einnig fram að karlmönnum fækkar mjög í faginu.
Lesa frétt
21. maí 2012
Í kjarasamningi grunnskólakennara (FG) er bókun um framtíðarsýn í skólamálum. Þar er kveðið á um að samningsaðilar eigi að ræða hlutverk kennara, innihald starfs þeirra og breytingar á störfum, auk þróunar skólastarfs almennt. Þessi vinna er samvinnuverkefni Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitafélaga. Til þess að tryggja að raddir starfandi kennara heyrðust fengum við í stjórn FG svæðaformenn félagsins með okkur í lið við að finna aðila úr röðum kennara sem gætu hjálpað okkur. Haft var samband við hundrað kennara og þeir fengnir til að halda dagbók um vinnu sína í hálfan mánuð.
Lesa frétt
30. maí 2011
... milli Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lesa frétt25. mar. 2011
Kennarar sem ráðnir eru í fullt starf með 26 tíma kennsluskyldu eiga rétt á því að velja að kenna 27 eða 28 tíma. Kennari skal árlega tilkynna ákvörðun sína fyrir 1. apríl.
Lesa frétt18. mar. 2011
Tilkynning frá Uppstillinganefnd Félags grunnskólakennara
Framboðsfrestur framlengdur til 31. mars 2011
Þar sem ekki hafa borist nægilega mörg framboð til trúnaðarstarfa hjá FG, er framboðsfrestur framlengdur til 31. mars 2011.
Samkvæmt lögum félagsins er auglýst eftir framboðum og eða tilnefningum til trúnaðarstarfa hjá Félagi grunnskólakennara sem tilgreind eru hér að neðan.
Lesa frétt
21. feb. 2011
Undanfarnar vikur hefur formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Halldór Halldórsson komið fram í fjölmiðlum og tjáð sig efnislega um ýmis atriði er lúta að kjarasamningi Félags grunnskólakennara (FG) og samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga (SNS), áður Launanefnd.
Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga og samninganefnd Félags grunnskólakennara hafa á undanförnum vikum átt í kjaraviðræðum og hafa verið haldnir nokkrir fundir auk vinnufunda undirnefnda.
Lesa frétt11. feb. 2011
Samkvæmt lögum félagsins er auglýst eftir framboðum og eða tilnefningum til trúnaðarstarfa hjá Félagi grunnskólakennara. Framboðum þarf að skila inn í síðasta lagi fimmtudaginn 17. mars 2011.
Lesa frétt
8. feb. 2011
Á fundi starfsfólks Grunnskóla Grindavíkur var eftirfarandi ályktun samþykkt: „Fundur starfsmanna Grunnskóla Grindavíkur mótmælir harðlega niðurskurði bæjarstjórnar til fræðslumála í Grindavík fyrir næsta skólaár. Með þessum aðgerðum er vegið að grunnstoðum samfélagsins og þjónustu við börn og unglinga. Á tímum sem þessum geta slíkar aðgerðir verið afdrifaríkar og óbætanlegt tjón hlotist af...“
Lesa frétt19. jan. 2011
Samkvæmt lögum félagsins er auglýst eftir framboðum og eða tilnefningum til embættis formanns Félags grunnskólakennara.
Framboðum þarf að skila inn í síðasta lagi fimmtudaginn 3. febrúar n.k.
Rafræn kosning mun fara fram 31. mars 2011 ef frambjóðendur eru fleiri en einn.
Umsækjendur skulu skila inn ferilskrá á rafrænu formi sem nálgast má á síðu félagsins, www.fg.ki.is.
Lesa frétt1. okt. 2010
Hagstofan birtir nú í fyrsta sinn tölur um vikulegar kennslustundir sem varið er til sérkennslu og stuðnings í grunnskólum landsins og ná tölurnar til síðustu sex skólaára.
Lesa frétt
29. sep. 2010
Höfum gaman ehf kynnir námsefni fyrir 3-8 ára nemendur í leikskóla, grunnskóla og forskólanema í tónlistarskóla. Um er að ræða Gaman saman með Pétri og úlfinum, Gaman saman með Karnivali dýranna og Við spilum og leikum við litlu börnin.
Lesa frétt8. sep. 2010
Námstefna Flatar verður haldin samkvæmt venju á Selfossi dagana 1. og 2. október næstkomandi.
Stjórnin gerði könnun í fyrra um hugsanlegar bretyingar á fyrirkomulagi námstefnunnar og staðsetningu. Niðurstaðan varð sú að hafa ráðstefnuna áfram á Selfossi
Lesa frétt8. sep. 2010
Menntun er fjárhagslega hagkvæm, bæði fyrir einstaklinga og samfélagið. Opinber framlög til menntunar skila sér til baka í hærri skatttekjum. Þar við bætast jákvæð áhrif menntunar á þjóðfélagið sem ekki mælast í auknum skatttekjum. Þetta kemur fram í ritinu „Education at a Glance 2010, OECD Indicators“, sem Efnahags- og framfarastofnunin OECD hefur gefið út.
Lesa frétt27. ágú. 2010
Stjórn Námsleyfasjóðs hefur opnað fyrir umsóknir um námsleyfi grunnskólakennara og stjórnenda grunnskóla skólaárið 2011–2012. Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi fyrir 1. október 2010.
Lesa frétt
27. ágú. 2010
Á Skólaþingi Alþingis gefst nemendum kostur á að kynnast starfsháttum Alþingis af eigin raun með því að bregða sér í hlutverk þingmanna og taka fyrir mál á þingflokks-, nefndar- og þingfundum.
Lesa frétt
19. mar. 2009
Ársþing Samtaka fámennra skóla 2009 verður haldið í Stórutjarnaskóla í Þingeyjarsveit laugardaginn 9. maí nk og hefst kl 13:30. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er: „Menntun á tímum uppgjörs og endurnýjunar: Samtök fámennra skóla 20 ára.“
Lesa frétt
10. mar. 2009
Sjöundi ársfundur FG verður haldinn fimmtudaginn 12. mars á Hótel Loftleiðum í Reykjavík.
Lesa frétt
30. jan. 2009
Fyrsta föstudag í febrúar ár hvert er haldinn Dagur stærðfræðinnar og er það 6. febrúar að þessu sinni. Þema dagsins í ár er þríhyrningar.
Lesa frétt
21. jan. 2009
Umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur standa að verkefnasamkeppni um umhverfismál. Skilafrestur er til 27. mars 2009.
Lesa frétt14. maí 2008
Úthlutað hefur verið úr Þróunarsjóði grunnskóla fyrir skólaárið 2008-2009.
Lesa frétt
29. jan. 2008
Móðurmálskennsla - Málþing föstudaginn 1. febrúar í fyrirlestrasalnum Bratta í Kennaraháskóla Íslands frá 14:00-16:00.
Lesa frétt28. jan. 2008
Kynningarfundir á drögum að samningsmarkmiðum Félags grunnskólakennara vegna komandi kjaraviðræðna!
Lesa frétt25. jan. 2008
Námskeið um útiskóla haldið 9. til 13. júní 2008 í Bergen, Noregi.
Lesa frétt25. jan. 2008
Félag grunnskólakennara og Félag leikskólakennara halda málþing um nám barna á mörkum leik- og grunnskóla í Kennaraháskóla Íslands föstudaginn 22. febrúar 2008 kl. 13:00-16:00.
Lesa frétt25. jan. 2008
Menntaáætlun Nordplus: Opnunarráðstefna í Norræna Húsinu 1. febrúar 2008 kl. 12:30 - 17:00. Þátttaka skráist rafrænt á heimasíðu nordplus www.nordplus.is eða í síma 525 4311 fyrir 30. janúar.
Lesa frétt
17. jan. 2008
Föstudaginn 25. janúar nk. verður málþingið Enginn er eyland haldið í Kennaraháskóla Íslands við Stakkahlíð. Málþingið er haldið í tilefni af útkomu bókarinnar Fjölmenning á Íslandi sem Rannsóknastofa í fjölmenningarfræðum við Kennaraháskóla Íslands og Háskólaútgáfan gefa út. Málþingið fer fram í Skriðu, fyrirlestarasal í Hamri, nýbyggingu KHÍ frá kl. 13:00 -16:00.
Lesa frétt
11. jan. 2008
Sjónarhóll – ráðgjafarmiðstöð stendur fyrir málþingi um systkini barna með sérþarfir, fimmtudaginn 7. febrúar nk., kl. 8.30 – 12.30 í Gullhömrum, Grafarholti.
Lesa frétt29. nóv. 2007
Í nýlegu fréttabréfi frá kjararannsóknarnefnd (KOS) kom fram að kaupmáttur launa grunnskólakennara og skólastjóra í Reykjavík hafi rýrnað um 5,6% frá árinu 2005 á meðan kaupmáttur almennt, mældur með launavísitölu Hagstofunnar, hefur vaxið um rúm 8% fram á mitt ár 2007.
Lesa frétt26. nóv. 2007
Ingibjörg Óðinsdóttir skrifar grein í Morgunblaðið fyrr í þessum mánuði þar sem hún vekur athygli á ástandinu í grunnskólum landsins.
Lesa frétt
21. nóv. 2007
5. ráðstefna Norræna félagsins gegn illri meðferð á börnum verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica 18. til 21. maí 2008. Þema ráðstefnunnar er Börn og vanræksla: Þarfir - Skyldur - Ábyrgð.
Lesa frétt21. nóv. 2007
Kennurum í eldri bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum er boðið á kynningu á nýju
stafrænu námsefni. Kynning verður haldin í Kennaraháskóla Íslands 23. nóvember 2007 kl. 13:30 -16:30.
Lesa frétt6. nóv. 2007
Á tímabilinu 1. október 2007 til 1. apríl 2008 mun Norræna skólahlaupið fara fram á öllum Norðurlöndunum og verður það í 23. skipti sem Íslendingar taka þátt.
Lesa frétt
2. nóv. 2007
Í tilefni af útkomu bókar Sigrúnar Aðalbjarnardóttur prófessors „Virðing og umhyggja – Ákall 21. aldar“, sem Heimskringla – Háskólaforlag Máls og menningar gefur út, gangast Félagsvísindadeild og rannsóknasetrið Lífshættir barna og ungmenna fyrir málþingi föstudaginn 9. nóvember 2007.
Lesa frétt
29. okt. 2007
Ráðstefnan verður haldin kl. 8:15-16:00 á Grand Hóteli í Reykjavík. Síðasti skráningardagur er í dag, mánudaginn 29. október.
Lesa frétt
18. okt. 2007
Hægt er að minnast dagsins með margvíslegu móti, t.d. upplestri, ritunarsamkeppni, verðlaunum og viðurkenningum, handritasýningum, samkomum af ýmsum toga og tónlistarflutningi svo að fátt eitt sé nefnt.
Lesa frétt
15. okt. 2007
Talfræðingurinn, ársrit Félags talkennara og talmeinafræðinga, er nýkominn út en þar skrifa margir talmeinafræðingar áhugaverðar greinar um fagleg efni sem nýtast bæði leikskóla- og grunnskólakennurum.
Lesa frétt
15. okt. 2007
Umsóknir ásamt fylgigögnum skulu berast fyrir 1. nóvember 2007. Tilkynnt verður um úthlutun fyrir 1. desember 2007.
Lesa frétt
15. okt. 2007
Krakkar úr bekk 63 úr Hólabrekkuskóla kynntu verkefni sitt um ruslpóst á Umhverfisþingi í morgun. Krakkarnir voru útnefndir Varðliðar umhverfisins af umhverfisráðherra á Degi umhverfisins 25. apríl eftir þátttöku í verkefnasamkeppni umhverfisráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur.
Lesa frétt
12. okt. 2007
Í miðborginni iðar mannlífið og þar blómstrar menningin. Í tengslum við sýningar á tveimur íslenskum verkum býður Þjóðleikhúsið sérstakt tilboð til hópa og fyrirtækja sem vilja eiga saman eftirminnilega kvöldstund í miðborginni.
Lesa frétt8. okt. 2007
Þann 26. og 27. október stendur Flötur, samtök stærðfræðikennara, fyrir námstefnu á Selfossi. Námstefnan er opin stærðfræðikennurum á öllum skólastigum.
Lesa frétt2. okt. 2007
Á vef menntamálaráðuneytisins kemur fram að borist hafi fyrirspurnir þar sem óskað er eftir túlkun á 33. gr. grunnskólalaga nr. 66/1995, sem breytt var með lögum nr. 98/2006, er lýtur að því ákvæði að óheimilt sé að taka gjald af nemendum vegna ferðalaga sem flokkast undir vettvangsnám eða eru að öðru leyti hluti af skyldunámi nemenda.
Lesa frétt1. okt. 2007
Nýr þáttur á Rás 1 um listgreinakennslu og skapandi starf með börnum og ungmennum á Íslandi.
Lesa frétt27. sep. 2007
Þau verða 24.-25. nóvember, 12.-.13. janúar og svo í mars.
Lesa frétt27. sep. 2007
Verkefna- og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands auglýsir eftir umsóknum félagsmanna í grunnskólum um námslaun vegna framhaldsnáms á skólaárinu 2008-2009.
Lesa frétt25. sep. 2007
Hagstofa Íslands, hefur í tilefni af degi tungumála í Evrópu 26. september, tekið saman yfirlit yfir fjölda nemenda í grunn- og framhaldsskólum sem lærðu erlend tungumál skólaárið 2006-2007 í tilefni af degi tungumála í Evrópu 26. september.
Lesa frétt24. sep. 2007
Lesblindir nemendur í 4. og 7. bekk hafa kost á því að sleppa lesskilningshluta íslenskuprófs í samræmdum prófum í íslensku í haust.
Lesa frétt21. sep. 2007
... tók gildi 1. ágúst 2007.
Lesa frétt21. sep. 2007
Sækja þarf um fyrir 15. október.
Lesa frétt
13. sep. 2007
Dagana 17. og 18. nóvember verður haldið tveggja daga námskeið um notkun indigo kjarna við hegðunarvandamálum barna.
Lesa frétt10. sep. 2007
Í ályktun sem stjórn Kennarasambands Íslands hefur sent frá sér er lýst yfir miklum áhyggjum vegna þess alvarlega ástands sem nú ríkir í leik- og grunnskólum, aðallega á höfuðborgarsvæðinu.
Lesa frétt
10. sep. 2007
Samkvæmt lögum félagsins er auglýst er eftir framboðum og/eða tilnefningum til trúnaðarstarfa fyrir FG, Félag grunnskólakennara.
Lesa frétt
29. ágú. 2007
Þessi dagur var fyrst haldinn hátíðlegur á Evrópsku tungumálaári 2001 að frumkvæði Evrópuráðsins til að fagna fjölbreytileika tungumála í Evrópu og til að hvetja til tungumálanáms.
Lesa frétt24. ágú. 2007
Grunnskólakennurum og skólastjórnendum um land allt býðst að taka þátt í sex vikna fjarnámskeiði um stjórnsýslulög og stjórnsýslurétt 11. september til 19. október.
Lesa frétt
9. júl. 2007
Skrifstofur Kennarasambands Íslands og aðildarfélaga þess verða lokaðar í þrjár vikur vegna sumarleyfa frá mánudeginum 9. júlí til mánudagsins 30. júlí. Þeir sem nauðsynlega þurfa að ná sambandi við Orlofssjóð meðan á sumarlokun stendur geta hringt í síma 899 5931 eða sent tölvupóst á hanna@ki.is.
Lesa frétt
3. júl. 2007
Námskeið ætlað íslenskukennurum í efstu bekkjum grunnskóla.
Lesa frétt21. jún. 2007
Spurningalisti var sendur 20 grunnskólum sem kenna 8. til 10. bekk, 13 á höfuðborgarsvæðinu og 7 á landsbyggðinni, og var þess gætt að skólar í sveit og þétttbýli, fámennir jafnt sem fjölmennir væru meðal þátttakenda.
Lesa frétt19. jún. 2007
Félag náttúrufræðikennara á grunnskólastigi hefur tekið í notkun nýja heimasíðu á vefslóðinni http://www.fng.is.
Lesa frétt5. jún. 2007
Skráningarfrestur er til 31. ágúst 2007.
Lesa frétt23. maí 2007
Nám við allra hæfi, dregið úr brottfalli, list- og verknám eflt og aukin náms- og starfsráðgjöf.
Lesa frétt23. maí 2007
Námskeið fyrir kennara og heimsóknir nemendahópa.
Lesa frétt15. maí 2007
Menntamálaráðuneytið hefur birt á heimasíðu sinni skýrslu nefndar sem menntamálaráðherra skipaði í nóvember sl. til að gera tillögur um úrræði fyrir nemendur með lesblindu eða aðra lestrarörðugleika í grunn- og framhaldsskólum.
Lesa frétt4. maí 2007
Nemendur í 10. bekk grunnskóla fá bréf með leiðbeiningum og veflykli sem opnar þeim aðgang að innrituninni. Forráðamenn þeirra fá einnig bréf frá ráðuneytinu með upplýsingum um innritunina.
Lesa frétt3. maí 2007
Dagsetningar samræmdra prófa fyrir 10. bekk 2007.
Lesa frétt3. maí 2007
Menntamálaráðherra hefur ákveðið, að tillögu ráðgjafarnefndar, að veita styrki að upphæð alls 20 milljónir króna til 35 verkefna, en samtals voru umsóknir 81.
Lesa frétt16. apr. 2007
Á næstunni mun rísa ný gerð skóla í Krikahverfi í Mosfellsbæ. Í skólanum, sem verður fyrir um 200 börn, verða daggæslubörn á aldrinum eins til tveggja ára, leikskólabörn á aldrinum tveggja til fimm ára og grunnskólabörn á aldrinum sex til níu ára.
Lesa frétt13. apr. 2007
Kennarasamband Íslands, Félag framhaldsskólakennara og Félag grunnskólakennara efna til þriggja umræðu- og kynningarfunda með kennurum um nýja menntastefnu á grundvelli tíu punkta samkomulagsins undir heitinu „Skóli morgundagsins“.
Lesa frétt2. apr. 2007
Alls bárust sjóðnum 41 umsókn til 100 verkefna.
Lesa frétt27. mar. 2007
Er yfirskrift eins dags málþings í Rúgbrauðsgerðinni sem haldið verður 18. apríl n.k.
Lesa frétt21. mar. 2007
Haustsýning Námsgagnastofnunar í Reykjavík verður haldin mánudaginn 20. ágúst í Árbæjarskóla. Sýning verður á námsefni í öllum greinum og á öllum stigum. Samhliða sýningunni verður boðið upp á fyrirlestra um nýtt námsefni, kennurum að kostnaðarlausu.
Lesa frétt7. mar. 2007
Á hádegi í dag, miðvikudaginn 7. mars, var þessi nýi vefur Félags grunnskólakennara tekinn í notkun. Veffangið (slóðin) er http://fg.ki.is.
Lesa frétt
21. feb. 2007
Hvers vegna er ekki hægt að koma á jákvæðu samstarfi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambandi Íslands um grunnskólann?
Lesa frétt